Vefdagbók
8.desember 2008
Rosalega langt síðan mamma mín hefur skrifað eitthvað skemmtileg um mig. Núna er ég að verða 1s árs og farin að vera ótrúlega duglegur að labba út um allt, þegar ég sé eitthvað sem mig virkilega langar að koma í þá stend ég bara á fætur og geng í áttina, jafnvægið er ennþá svolítið að trufla mig en ég set bara hendurnar út og vanda mig mikið.
Um helgina sem leið eða sunnudaginn 7.des var ég svo skírður, Hjörtur Magni fríkirkjuprestur kom í veisluna og hellti vatni á hausinn á mér sem mér fannst soldið skrítið, en ég fór ekkert að gráta enda í fanginu hjá afa Skafta þar sem mér líður alltaf vel.
Ég er heima í dag með mömmu Lilju því ég er eitthvað slappur, finnst það æðislegt að fá að vera heima því mér finnst ekki neitt hrikalega gaman að fara til dagmömmu þó mér finnist hún alveg fín.
Jæja...segi ykkur meira af mér síðar.
Kv.
Felix Skafti
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
25.ágúst 2008
Mamma Lilja var rétt í þessu að finna fyrstu tönnina mína og mikið sem mömmurnar voru glaðar , útskýrir kanski hvers vegna ég var ekkert æstur í að sofa í nótt..vildi bara kúrast uppí og láta knúsa mig :)
Kveðja
Felix Skafti
..............................................................................................................................................
25.ágúst 2008
Hæ hæ
Nú er ég að verða átta mánaða og finnst sjálfum löngu komin tími á að líkaminn leyfi mér að labba aðeins um. Ég horfi á Alex bróðir minn og langar svo hrikalega mikið að labba bara á eftir honum hvert sem hann fer, ég kvarta þegar ég þarf að skríða mikið því mér finnst ég vera svo stór strákur. En í staðinn fyrir að labba þá stend ég bara allstaðar þar sem ég get togað mig upp og fjölskyldan mín er alltaf á nálum á eftir mér svo ég meiði mig ekki þegar jafnvægið gefur sig í fótunum mínum.
Ég er meira að segja farin að sleppa höndum af og til og hef held ég lengst náð að standa á eigin fótum sirka 15 sekúndur sem mér finnst nokkuð gott svona miðað við að allir eru að segja mér að ég eigi ekki að geta þetta.
Ég er farin að borða fullt af góðum mat og í uppáhaldi hjá mér er allt sem mamma Lilja býr til , rófustappa til dæmis finnst mér alveg sérstaklega góð :)
Af okkur er annars bara allt gott að frétta og ég er kátur með lífið og tilveruna eins og sjá má á flestum myndum sem eru teknar af mér.
Kveðja
Felix Skafti
..............................................................................................................................................
08.júlí 2008
Halló halló.
Ýmislegt hefur gerst síðan mamma mín skrifaði fyrir mig hér síðast. Ég er búin að eignast ótrúlega flottan frænda sem Hanna frænka átti 25.júní síðastliðin. Ég hlakka sko til að fá að sjá hann en ætla samt að reyna að passa mig að vera ekki að klappa honum neitt því hann er svo rosalega lítill ennþá.
Ég fór í fyrsta skipti í sumarbústað um daginn með mömmum mínum og systkynum og fannst það bara alveg sæmilegt, ég var reyndar mun glaðari þegar ég kom heim aftur og skríkti eins hátt og ég gat þegar ég kom inn úr dyrunum heima og sá teppið mitt og dótið mitt.
Núna er það nýjasta sem ég er að prufa er að standa upp, mér hefur ekki gengið nógu vel að læra að skríða þannig að ég lærði bara í staðinn að setjast upp og kann það alveg eins og ekkert sé. Núna er það ekki nógu spennandi svo ég er að æfa mig að standa upp í rúminu mínu eða bara upp við bumbó stólinn minn, mömmur mínar verða alveg kreisí og hlaupa til mín þegar ég geri þetta og mér finnst það bara fyndið og skemmtilegt :)
Kolla mamma er byrjuð að vinna og það er soldið skrýtið að hafa hana ekki heima en núna fáum við Lilja mamma góðan tíma saman sem er gott :)
Bless í bili og hafið það gott
kv. Felix Skafti
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
29.maí 2008
Hæ hæ allir saman.
Nú fer ég alveg að verða 5 mánaða og er farin að gera alskyns skemmtilega hluti. Byrjaði ekki alls fyrir löngu í sundkennslu með mömmunum mínum hjá henni Sóleyju sem mér finnst mjög skemmtileg.
Í dag fórum við í fyrsta skipti í kaf og ég stóð mig bara nokkuð vel þó ég segi sjálfur frá. Reyndar segir Sóley að ég loki svo stutt fyrir svo mömmurnar mínar verða að passa vel að setja mig rosalega stutt í einu oní kaf. Ég grét ekkert og fannst þetta bara skemmtilegt enda ætla ég að verða mikill sundkappi þar sem mömmu Kollu finnst svo gaman að fara í sund, nú svo á ég örugglega eftir að vera mikið í laugunum með stóra bro og stóru siss.
Ég er búin að vera svolítið kvefaður undanfarna daga en ég held barasta að það hafi allt losnað í sundinu áðan :)
Er alveg búin á því eftir köfunina svo ég held ég leggi mig bara í vagninum og biðji mömmu Lilju um að koma með mig í göngutúr.
Þar til næst
gleði og bros framaní ykkur öll
Kv. Felix Skafti broskall
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------14.maí 2008
Komin 14.maí og sólin farin að skína. Ég er byrjaður í ungbarnasundi með mömmunum mínum og í dag fór ég í fyrsta skipti út í sund. Við fórum saman í Árbæjarlaugina og stóra siss fékk að koma með okkur. Ég er orðin frekar duglegur að dunda mér á nýja pússlteppinu mínu og sný mér á magann þegar ég er þreyttur að liggja á bakinu enda stór strákur.
Amma Sara og Afi Skafti fengu að passa mig um daginn meðan mömmurnar kíktu í leikhúsið og mér finnst sko ekki leiðinlegt að vera með ömmu og afa enda eru þau svo rosalega góð við mig. Ég tek bara pelann þegar amma gefur mér hann því ég veit sko alveg að ef Kolla mamma er til staðar þá get ég fengið brjóst og mér finnst það auðvita miklu betra en pelinn.
Við fjölskyldan erum svona aðeins að skoða það að skipta um húsnæði en ég veit ekki samt hvort það verði eitthvað á næstunni, væri voðalega gaman að vera komin með garð og svona þegar ég fer að geta farið út að leika með systkynum mínum :)
Bið að heilsa ykkur í bili
Kveðja
Felix Skafti
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------9.apríl 2008
Já það eru sko liðnar tvær vikur síðan þeir löguðu á mér höfuðkúpuna og ég er alveg hinn hressasti. Allt er bara að komast í sama horf og það var í og þannig líður okkur hér á Seilugrandanum líka best. Alex stóri bróðir var hjá okkur um helgina og mér finnst eiginlega næstum ekkert eins skemmtilegt og að sitja í stólnum mínum og fylgjast með stóra bró leika sér með dótið sitt. Þegar systkyni mín eru annars vegar þá barasta horfi ég með mestu aðdáunaraugum því mér finnst þau bæði bara svo ótrúlega skemmtileg og barasta merkilegt fólk.
Ég fór aðeins í heimsókn til löngu Kollu í dag og langa Hödda, þeim finnst alltaf svo gaman að fá mig í heimsókn og mamma Kolla fékk heitt kakó og heitt rúnstykki því nafna hennar er alltaf svo myndarleg og mömmu minni finnst ekki leiðinlegt að fá alltaf kræsingar þegar hún mætir til ömmu sinnar með mig :)
Já af okkur er allt rosalega gott að frétta og allir braggast vel, mér líður ótrúleag vel og brosi allan daginn, ég er farin að spjalla alveg heilan helling og svo er ég líka orðin mjög duglegur að fikta í dótinu mínu og reyna að halda á hlutum.
Kveðja
Felix Skafti Liljuson
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1.apríl 2008
Loksins er komin sá dagur að þetta er afstaðið. Aðgerðin búin og við komin heim í kotið okkar eftir erfiða spítalavist. Ég var samt alveg ótrúlega duglegur og stóð mig allan tímann eins og hetja. Snúrurnar voru teknar úr mér í gær og svo var saumurinn tekin í dag, mér fannst það hrikalega vont en sofnaði sæll og glaður svo þegar mömmurnar mínar voru búnar að knúsa mig og lofa að ég fengi að fara heim í dag.
Þegar ég vaknaði svo heima hjá mér eftir smá bíltúr var ég glaðari en ég hef nokkru sinni verið, lék mér á teppinu mínu, skoðaði stóllinn góða og spjallaði heilan helling.
Núna er ég að hugsa um að leggja mig aðeins með mömmu Lilju upp í hjónarúmi...takk fyrir allar kveðjurnar, það er gott að eiga góða að þegar svona stendur á.
Kveðja
Felix Skafti og Co
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
28.mars 2008
Hæ hæ elsku góða fólk.
Ég er hér á barnaspítala hringsins ásamt mömmum mínum. Aðgerðin sem ég fór í á höfðinu mínu gekk ótrúlega vel og nú þarf ég bara að vera hér í nokkra daga svo allt nái að jafna sig vel áður en ég fer aftur heim. Við höfum það mjög huggulegt hérna þó mér líði ekkert alltaf vel í höfðinu en reyni að vera eins sterkur og ég get og öllum finnst ég svo rosalega duglegur og stór strákur. Amma Sara er dugleg að vera hjá mér og afi Skafti auðvita líka, svo kom hin amma mín líka í heimsókn í gær og knúsaði mig soldið.
Hér er allt til alls svo engum leiðist, tölva og dvd og sjónvarp og fínerí ..verst að ég get ekkert notið þess neitt þar sem ég er ennþá of lítill fyrir þetta allt saman en mömmurnar mínar geta þó stytt sér stundir þegar ég ákveð að leggja mig. Hjúkkurnar hérna eru alveg frábærar og okkur er farið að þykja vænt um þær allar ásamt bara öllu starfsfólkinu hér á spítalananum.
Núna er mamma Kolla vakandi að pikka inn fyrir mig því ég ákvað að nenna ekki að sofa meira í nótt heldur þarf að vaka aðeins og fylgjast með umhverfinu mínu.
Biðjum að heilsa ykkur í bili og sendum knús á línuna.
Kveðja
Felix Skafti Liljuson spítalastrákur
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------10.mars 2008
Hæ hæ
Af okkur fjölskyldunni er allt gott að frétta en það kom upp leiðindamál í síðustu skoðun hjá ljósunni. Hún var að þreifa á hausnum á mér eins og hún gerir alltaf þegar hún er búin að vigta mig og mæla og fannst holan oná hausnum mínum vera að minnka of hratt. Hún sendi mig til barnalæknis sem sendi mig beint í myndatöku upp á barnaspítala hringsins. Því miður kom í ljós að holan mín er að minnka of hratt fyrir svonan ungan strák og ég þarf að fara í aðgerð á næstu vikum til að heilinn minn komist seinna meir betur fyrir inn í höfðinu mínu. Mér finnst þetta sjálfum ekkert stórmál en mömmur mínar eru rosalega áhyggjufullar enda auðvita erfitt fyrir þær að þurfa að sjá mig svæfðan og svoleiðis.
En svona fyrir utan þetta leiðindamál þá er ég eldhress og stækka með hverjum deginum eins og hrausti strákurinn sem ég er :)
Mömmurnar mínar biðja að heilsa og biðja ykkur öll um að hafa mig í bænunum ykkar.
Knús
Felix Skafti hetjustrákur
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------1.mars 2008
Í dag þann 1.mars ákvað ég að hætta að stríða mömmum mínum og tók bara snuðið sem þær eru alltaf að reyna að setja upp í mig eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Urður vinkona mömmu Kollu var hér í heimsókn og náði þessu á myndavélina sína. Við fáum myndirnar frá henni við tækifæri og setjum þær hér inn svo þið getið séð hvað ég er krúttlegur með snudduna upp í mér :)
Mamma Kolla er hrikalega montin með mig og auðvita líka glöð því nú get ég kanski farið að sofa enn lengri lúra á nóttinni og mamma Lilja fengið að stinga upp í mig snuðinu þegar mamma Kolla vill lúra aðeins lengur.
Í dag erum við svo að fara í afmæli til Úlfs Kára vinar míns og hlökkum mikið til.
Sendum ykkur kveðjur, nú ætlum við mamma að leggja okkur á meðan ég er svona góður með snuðið og þarf ekkert að drekka í smástund.
Kveðja
Felix Skafti og mömmurnar
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------24.febrúar 2008
Hæ hæ ! Við Kolla mamma erum hér hjá ömmu og afa Söru og Skafta af því að mamma Lilja fór með stóru siss til Danmerkur í verslunarferð. Ég er rosalega mikið duglegur að brosa til ömmu og afa og svaf í fyrsta skipti í nótt í nýja rúminu mínu sem amma og afi keyptu handa mér. Mamma Kolla fær bara að hafa mig þegar ég er svangur og fer að kvarta því hér vilja allir halda á mér alltaf þegar ég er vakandi. Ég hef það rosalega gott hér en auðvita sakna ég mömmu Lilju og stóru siss og hlakka mikið mikið til að fá þær heim aftur. Í næstu viku fer ég í 9 vikna skoðun og ég veit að mömmur mínar eru annsi spenntar að sjá hvað ég hef stækkað mikið enda er ég svo duglegur að drekka alltaf. Af okkur er bara gott að frétta og við skrifum meira þegar mamma Lilja er komin heim. Knús knús Felix Skafti
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
29.janúar 2008
Halló halló.
Í gær varð ég 4 vikna og mömmur mínar tóku helling af myndum af mér og settu hér inn enda frekar stoltar af stráknum sínum. Ljósmóðirin okkar kom í dag og vigtaði mig, hún þurfti næstum hjálp við að halda mér uppi því ég er sko orðin 5500 grömm enda stór strákur.
Í dag kom líka Steinunn í heimsókn til mín ásamt mömmu sinni sem heitir Laufey og er vinkona hennar mömmu Kollu.
Já það er semsagt allt rosalega gott að frétta af okkur og allt gengur ótrúlega vel.
Knús og kveðjur
Felix Skafti
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
11.janúar 2008
Hæ hæ heimur.
Ljósan kom loksins í fyrstu heimsóknina í dag. Henni fannst ég algjörlega æðislegur. Hún kom reyndar soldið seint en við vorum rosalega glöð öll þrjú þegar hún loksins mætti.
Hún vigtaði mig og ég er búin að þyngjast um hálft kíló á tæpri viku eða síðan ég fór heim af spítalanum. Hún sagði að mamma kolla væri greinilega að mjólka eins og almennilega kú :) hihi
Ég er sem sagt að dafna duglega og ég ljósan segir að mömmurnar mínar megi alveg fara með mig út í nýja vagninum sem amma Sara og afi Skafti gáfu mér mjög fljótlega og þá bara alveg strax þess vegna í næstu viku.
Við förum kanski saman ásamt Elísabetu siss yfir til ömmu og afa í vagninum þegar mamma Kolla á afmæli í næstu viku.
já vildum bara segja ykkur frá heimsókninni og þakka þeim öllum sem hafa komið til að kíkja á mig fyrir heimsóknirnar :) við elskum ykkur öll svo mikið og þykir svo gott að vita af öllu þessu góða fólki sem er á bakvið mömmurnar mínar báðar. Hér kom afi Villi í gærkvöldi og lagaði fyrir okkur ofnanna og kom þurrkaranum okkar í gott stand líka. Afarnir voru hér báðir reyndar og ömmurnar líka og það er svo gott að eiga svona mikið af góðu fólki sem öllu langar að gera allt það besta fyrir mig og mína fjölskyldu.
Þangað til næst elsku ættingjar og vinir
Kveðja
Felix Skafti Liljuson
