Kollsterinn & Felix Skafti

Er á meðan er ...best að njóta þess !

Nafn:

Kollsterinn

MSN netfang:

capt_kolla@hotmail.com

Afmælisdagur:

17.Janúar

Tenglar

27.07.2010 20:22

Veitiggi

Það er skrýtið þegar maður veit eiginlega ekki sjálfur hvað maður er almennt að hugsa eða hvernig manni almennt líður. En líður manni ekki samt sirka bát þannig þegar einmitt veröldin er bara í norminu, ekkert merkilegt eða dramatískt að gerast og allt bara sirka eins og það á að vera. Kann maður bara nokkuð annað en að vera um borð í bátnum þegar hann ruggar og vaggar ? Ég held að við Íslendingar og þá sérstaklega konur séum doldið þannig . Við kunnum best við okkur þegar það er nóg um að vera, nú ef við erum ekki að díla við neitt í eigin lífi þá getum við líka vel tekið að okkur að díla við hluti vina okkar eða ættingja.
Ég er rosa mikið að hugsa um hugsanir þessa dagana, í nótt sem leið lá ég andvaka eingöngu af því að ég var að reyna að átta mig á því hvernig mér liði svona inn í mér almennt. Í stað þess að halla bara hausnum og þakka fyrir að hafa ekkert ákveðið eða sérstakt sem ég hefði áhyggjur af. 
Já maðurinn er merkileg uppfinning, en við erum líka svo skemmtileg. Ég veit fátt skemmtilegra en að sitja í góðra vina hópi eins og ég gerði í fyrradag hér heima. Sat hér með dásamlegum vinum mínum og við ræddum lífið og tilveruna, við erum öll þrjú með ýmislegt sameiginlegt og gátum speglað soldið hvort annað...gaman að sjá fólk upplifa tilfinningar sem maður er sjálfur búin að ganga í gegnum og jafnvel oftar en einu sinni. Standa svo sjálfan sig að því að flissa að viðkomandi en vera í rauninni bara að flissa að sjálfu sér síðan í gamla daga...

Ég elska að fylgjast með vinum mínum ganga í gegnum sína hluti því maður lærir svo margt sjálfur með þeim...svo gaman líka að sjá vini sína þroskast þó við séum öll orðin fullorðin og frábær. 

Heyrðu en svo ég hætti nú að tala um tilfinningalífið þá er allt að gerast þessa dagana í vinnunni og ég að þykjast vera í sumarfríi. Það er nefnilega komið að því sem allir hafa biðið eftir.....jebbs ...Búlgarska Playboy er að koma til landsins fyrir helgina að öllum líkindum. Við erum búin að selja nálægt 150 eintök í forsölu á netinu og svo fer restin af magninu í búðirnar vonandi fyrir helgi ....kemur eflaust til með að seljast upp þar sem Ásdís okkar Rán er jú á forsíðunni ! Held alveg örugglega að ég fari með rétt mál þegar ég segi að það séu yfir 10 blaðsíður af henni inn í blaðinu líka. 

Ásdís Rán er klárlega tromp...kanski ekki eins stórt tromp og Tobba Marínós en hún er tromp samt :) whoop whoop 

Svo er bókaseasonið að byrja og mig er farið að klægja mikið mikið í puttana, ég elska að fylgjast með þegar jólabækurnar byrja að hlaðast inn og verð alltaf spennt að sjá hvort mínir uppáhalds höfundar séu með í flóðinu.

Svo er annað sem mér finnst líka hrikalega skemmtilegt og spennandi og það er heimkoma fólksins sem ég elska... 

Erna Rán & fallega fjölskyldan hennar er til dæmis að flytja heim og það bara á Gay Pride daginn sjálfan..svo gleðin mín þann daginn verður mjög svo mikil og jafnvel alveg þreföld á við þennan dag annars...Ég er búin að sakna Ernunnar minnar alveg hræðilega mikið og litlu drengjanna minna allra og auðvita Nadíu sem mér finnst ég bara ekki búin að fá að sjá nóg frá því hún fæddist. 

Erna Rán..ég er að telja niður dagana ! 

Svo kemur Áslaug okkar líka en reyndar eftir GayPride svo gleðin fer engan vegin neitt nema bara uppávið...fáum reyndar bara að njóta hennar í nokkra daga en það er nú aldeilis betra en ekki neitt samt :) 

Nalli minn er svo að flytja erlendis að eltast við ástarguðinn sinn ...sem er mjög svo gleðilegt að öllu leyti nema því að Dj Dick&Dyke þurfa að taka sér pásu. Það verður nú samt haldið stórt lokaball þar sem Dj Dick&Dyke ásamt sminkunni sinni gera allt vitlaust á Bleiku frúnni...hlökkum endalaust mikið til þessa. 

Já það er allt að gerast í flutningum hér og þar um heiminn...en nokk ljóst er að þessi kona sem situr hér og pikkar fer ekki langt nema það sé í fyrirfram ákveðin stuttan tíma. Ég er sú allra heimakærasta sem um getur.

Jæja...hætt í blaðrinu í bili..farin oní góða bók 

Kollsterinn...stands by me

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 90
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 617551
Samtals gestir: 148970
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 14:15:32
eXTReMe Tracker