Kollsterinn & Felix Skafti

Er á meðan er ...best að njóta þess !

Nafn:

Kollsterinn

MSN netfang:

capt_kolla@hotmail.com

Afmælisdagur:

17.Janúar

Tenglar

26.07.2010 17:36

Hausinn

Mér finnst alveg stundum merkilegt hversu fastur maður getur verið inn í hausnum á einhverjum öðrum en sjálfum sér en samt fer þetta allt saman fram inn í hausnum á manni sjálfum.
Hljómar eflaust nett öfugsnúið en ég meina bara svona þegar maður fer inn í þann pakka að hugsa til dæmis af hverju viðkomandi gerir eða hugsar eins og hann/hún gerir. Af hverju fólk er ekki bara eins og maður kýs að það sé eða einfaldlega af hverju fólk er ekki bara eins og ég ...þá meina ég af hverju sumir hlutir skipta fólk máli sem skipta mig engu máli og svo framvegis. 
Þetta veldur mér stundum höfuðverk því ég get fest mig óþarflega lengi í að hugsa um af hverju einhver ákvað að tjá sig við mig um eitthvað mál sem var aldrei mál fyrr en sá hinn sami setti það upp eins og hann gerði. 
Nú svo er ég alltaf að segja við vini mína að maður stjórnar jú eigin hugsunum og þegar maður er fastur í að vera með þráhyggju yfir einhverju sem einhver sagði eða jafnvel vera með þráhyggju yfir því hvað einhver sé mögulega kanski jafnvel að hugsa þá er auðveldast að nota bara öndurnaræfingar og reyna að henda út þessum pælingum öllum saman sem gera nákvæmlega ekkert gagn. Þessar hugsanir allar og pirringur yfir einhverju sem skipti þig upphaflega engu máli geta nefnilega alveg horfið ef maður einbeitir sér nógu vel. Fín æfing er til dæmis að anda inn um nefið og hugsa "INN", anda svo út um munninn og hugsa "ÚÚÚT" og í leiðinni jafnvel að segja þetta upphátt svo engar aðrar mannskemmandi hugsanir komist að. Þetta gæti til dæmis verið ágætis æfing fyir þann sem er sérlega forvitin..ég hef persónulega ekki þurft að nota það í þeim tilfellum þar sem forvitni mín liggur mjög grunnt. En ég get aftur á móti verið annsi dugleg að hugsa hlutina aðeins of langt og mögulega aðeins of lengi ...ég er meira að segja svo "fær" að ég get hugsað fyrir aðra og mig í einu...semsagt búið til heilu samtölin um það sem gæti komið upp ef ég færi að ræða hluti sem liggja á hjarta mínu. 
Hafið þið ekki lennt í því ? vera búin að æfa sig heima..."ef hann segir þetta ..þá segi ég auðvita bara þetta ...bladibladibla" svo hittiru viðkomandi og ALLT sem þú æfðir kom hvergi fram í neinu samtali og allar áhyggjur voru óþarfar. Svo maður hlær að sjálfum sér og reynir að muna þetta næst þegar samtal hefst í hausnum á manni þegar maður er einn með sjálfum sér. 
Best lausnin við svona höfuðverk þessa dagana hjá mér er góð bók, bækur eru það eina sem algjörlega fá mann inn í annan heim, sérstaklega ef þær eru nógu góðar til að maður sökkvi inn í þær. 
En auðvita á maður líka að geta kúplað sig út úr hausnum á sér án þess að þurfa einhver verkfæri til þess. Allt bara spurning um æfingu og traust á einhverju aðeins æðra okkur mannfólkinu.
Nú ætla ég að smella mér oní eina góða bók sem ég er að lesa og sjá hvort þessi kjánagangur í hausnum á mér verði ekki búin að þurrkast út þegar ég er komin vel inn í miðja bók.

Kollsterinn...kjáni


Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 90
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 617551
Samtals gestir: 148970
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 14:15:32
eXTReMe Tracker