Kollsterinn & Felix Skafti

Er á meðan er ...best að njóta þess !

Nafn:

Kollsterinn

MSN netfang:

capt_kolla@hotmail.com

Afmælisdagur:

17.Janúar

Tenglar

23.07.2010 13:20

Komdu aftur þegar þú ert glaður

Það læra börnin víst..sem fyrir þeim er haft. Ég hef alltaf verið rosalega meðvituð um það sem ég segi og geri nálægt barninu mínu og reyni eftir fremsta megni að vera nokkuð jákvæð og auðvita passa orðbragð og annað slíkt þegar sonurinn er nálægt. 
Auk þess finnst mér með því mikilvægasta að passa sig á er að tala alltaf fallega um annað fólk nálægt barninu mínu. Börn læra hlutina af okkur fyrirmyndunum , auðvita læra þau líka helling á leikskólanum en ég get auðvita ekki stjórnað því hvað gerist þar. Ég get hinsvegar eins og ég segi reynt að vanda mig við uppeldið og haga mér vel nálægt barninu mínu (það er svo annað þegar hann er ekki nálægt :) 
Rétt í þessu fékk ég klárlega að sjá sönnun þess að allt sem við gerum spegla börnin í okkur. Fallegi þroskaði sonur minn er núna að leika sér hér í leikhorninu sínu og apabangsinn hans er að fá að borða hjá honum. Felix er búin að elda handa honum hamborgara og þar sem apinn kann ekki að tala þá talar Felix fyrir hann...samtalið var einhvernvegin svona

Felix : vertu duglegur að borða api minn.
Apinn segir eitthvað sem ég skildi ekki 
Felix : jú þú verður að borða matinn þinn svo þú verður stór eins og ég . 
Felix : Ég má bara nota hnífinn api, bara fullorðin má nota hníf.

Eitthvað gerist greinilega í matarleiknum því Felix tekur apann í fangið mjög fallega og segir við hann þónokkuð ákveðið 

API ...það þarf ekki að væla, talaðu bara fallega ! 

svo hlýðir apinn greinilega ekki svo minn maður segir 

Nú þarf ég að fara með þig hér inn á herbergi og þú kemur bara þegar þú ert glaður !

Apinn þurfti svo að fara inn í herbergi og jafna sig aðeins á öllu þessu frekjuvæli þar til hann væri orðin glaður...þá mætti hann koma aftur að leika.

Þau eru svo dýrmæt þessar elskur...og nú kom snillingurinn með apann til mín og bað mig um að spjalla aðeins við hann fyrir sig. 

Nú ætlum við að leggjast saman upp í sófa þar sem hann náði ekki að leggja sig neitt og horfa aðeins á sjónvarpið saman..svo sund eftir hádegi :) 

Kollsterinn...hefur gaman aðissu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 90
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 617551
Samtals gestir: 148970
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 14:15:32
eXTReMe Tracker