Kollster

7.2.2010

Sveitin

Ég og erfingjinn áttum yndislega og ógleymandlega helgi upp í sveit hjá Magnúsi, Guðrúnu, Jódísi & Gordon. það var farið á róló oftar en einu sinni, göngutúr í fallegu náttúrunni (sem betur fer komin engin ísbjörn) , Fórum líka að gefa hestunum að borða og margt annað skemmtilegt. Strákarnir voru æðislegir saman en áttu smá tímabil þar sem allt gekk út á að eigna sér hlutina, það var alveg orðið þannig að þegar við fórum út að labba eða í bíltúr þá var verið að benda á fjöllin og segja "áetta". Það er algjörlega ómetanlegt að eiga vini eins og fallegu fjölskylduna á Bifröst. Draumurinn er auðvita svo bara að við búum öll í Vesturbænum (helst í sama stigagangi) ..drengirnir fari í sama leikskóla...sama skóla og verði miklir vinir eins og við tjellingarnar erum. 
Núna erum við í heimsókn hjá ömmunni og afanum sem söknuðu okkar mikið meðan við vorum í seitinni. 
Ég er jafnvel bara að hugsa um að skella mér í háttin þegar prinsinn fer að sofa í kvöld, eða allavega ekki mikið seinna því það á að massa ræktina þessa viku þar sem ég er búin að bæta líklegast góðu kílói á dag í þessari sveitaferð (gleymdi að nefna að göngutúrarnir voru tveir en þættirnir sem horft var á yfir nammi og kók voru annsi mikið fleiri) 
Nú er bara að taka á því fram að árshátíð og vona að bumban sjái sóma sinn í að mæta ekki á svæðið , hún hefur alveg fengið að fara á nógu mörg mannamót undanfarin ár  ! 
Ég vona að þið hafið líka átt æðislega helgi eins og við og séuð sátt og sæl (og södd eins og ég)

Er annars svona almennt í leit að góðri bók að lesa...svo ef þú ert með tips þá væri gaman að fá komment ! 

Kollsterinn...stundum sveitastelpa

Skrifað 7.2.2010 kl. 18:55 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349404
Samtals gestir: 106150
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:08:36
eXTReMe Tracker