Kollster
4.2.2010
Núna
Fimmtudagar eru fallegir. Minn fimmtudagur var allavega mjög fallegur. Það er svo dýrmætt að finnast skemmtilegt í vinnunni sinni og mér finnst ennþá mjög gaman að því sem ég geri.
Kollsterinn...lives & learns
Ég sat í bíl um daginn með samstarfsfélaga á leiðinni í verkefni og við vorum einmitt að tala um þetta, hvað það væri frábært að vinna við það sem manni finnst skemmtilegt. Ég veit allavega að ég myndi ekki skipta um vinnu eingöngu fyrir hærri laun því mórall á vinnustað og skemmtilegt starfið sjálft gefur manni svo miklu meira heldur en há laun. Auðvita þarf maður að sjá fyrir sér og sínum og á aldrei að láta bjóða sér að vinna meira heldur en manni finnst launin bjóða upp á...en meðan maður er sáttur í vinnunni og getur séð fyrir sér þá finnst mér allavega frábært að elska vinnunna mína.
Maður eyðir 70% sirka af deginum í vinnunni og það væri nett glatað að finnast sá tími leiðinlegur eða óþarfi. Þá kæmi maður líka heim til barnsins síns (ef maður á barn) og væri ósáttur..sem bitnar á tímanum með barninu og það er aldrei gott.
En sama hversu glöð ég er í vinnunni þá hlakka ég samt alltaf til helganna , ég á tvenns konar helgar í lífinu síðan ég skildi, helgar sem ég eyði með barninu mínu og nota tímann eins vel og mér er unnt fyrir okkur saman. Svo helgarnar sem ég nota fyrir mig til þess að gera "grown up stöff" ef svo má segja, þá fer ég á pöbbinn (pöbbahelgar) og skelli mér í Dj Dyke ...mæti í dónaklúbb og spilakvöld.
Báðar helgarnar eru mér ótrúlega ljúfar og vega hvort aðra upp, ég held að ég sé fyrst núna eftir heilt ár að læra að njóta þess að vera barnlaus aðra hvora helgi, segi ekki að ég sé ekki farin að stara á rúmið hans Felixar á sunnudegi með söknuð í maganum en þetta er nú samt allt að koma.
Báðar helgarnar eru mér ótrúlega ljúfar og vega hvort aðra upp, ég held að ég sé fyrst núna eftir heilt ár að læra að njóta þess að vera barnlaus aðra hvora helgi, segi ekki að ég sé ekki farin að stara á rúmið hans Felixar á sunnudegi með söknuð í maganum en þetta er nú samt allt að koma.
Fyrsta allavega hálfa árið sem ég þurfti að láta hann frá mér um helgar gat ég varla sofið , fannst bara frábært að vera að vinna á skemmtistað eða dansa alla nóttina því þá þurfti ég ekki að fara heim að horfa á tóma rúmið hans.
En ég veit að hann skemmtir sér vel í hinu kotinu ásamt systkynum sínum svo ég er að læra að nýta minn tíma með mér inn á milli. Sá tími gefur mér líka bara enn meira ástæðu til að njóta tímans með honum þegar hann svo kemur aftur til mín.
Ég er að læra svo margt þessa dagana og í dag áttaði ég mig á því þegar ég stóð í talningu í Hallarmúlanum hversu tíminn er fljótur að líða..og ég fór að hugsa hvað ég væri búin að gera margt skemmtilegt á þessu ári..og hversu fallegt þetta ár er í raun búið að vera.
Í dag fer ég sátt að sofa og skelli mér á hnén til að biðja englana mína að vaka yfir mér og mínum. Á morgun fer ég svo í vinnunna og óska einni Kjærustunni minni til hamingju með afmælið sitt , verð að knúsa hana þrefalt þar sem ég er í facebook pásu og get ekki sennt henni kveðju þar ;)
Eftir vinnu ætla ég svo að sækja prinsinn minn og eiga dásamlega helgi með honum og fallega fólkinu okkar.
Í kvöld ætla ég að vera steingeitin sem ég er og skipuleggja mig fyrir morgundaginn, ákveða hverju ég ætla að vera í ..og hverju Felix ætlar að vera í og setja það á sinn stað.
En þar sem ég er að æfa mig í að vera í núinu þá læt ég mér duga Núna að segja þetta gott og þakka ykkur fyrir að vera hér fyrir mig :)
Kollsterinn...lives & learns
Flettingar í dag: 159
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 580
Gestir í gær: 62
Samtals flettingar: 345374
Samtals gestir: 105557
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 06:46:34

