Kollster
27.1.2010
Ástríður
Ég kom mér í stellingar og var að renna yfir það sem mig langaði að horfa á í sjónvarpinu í kvöld. Sem kom í ljós að var ekkert í rauninni svo ég ákvað að skella mér í að horfa á þættina Ástríður sem voru sýndir á síðasta ári á stöðinni 2. Pálí mín sagði mér að hún hefði dottið í þessa þætti á Vodinu ..og ég veit að við Pálí erum ekki með ólíkan húmor fyrir utan að Silja sem skrifar þættina er ekki bara sjúklega fögur heldur líka mjög svo fyndin. Allavega...ég settist niður og horfði á ALLA 7 þættina og fannst þeir ÆÐI !
Nú langar mig bara að horfa á þá aftur með Pálínu , og helst að horfa á þá með dónaklúbbnum og horfa svo á þá með Diljá vinkonu, svo getum við Diljá sest niður eftir smá tíma og rifjað upp fyndnu brandarana í þættinum .
Eins og þegar Ástríður er að telja upp ókosti Fanneyjar fyrir fyrrverandi kærastanum...og segir "hún er fín hún Fanney" HAHAHAHA
já ég veit...engin skilur nema hafa séð þetta.
En þá er einmitt málið að horfa á þættina ! skil barasta ekkert í því að engin hafi skipað mér að horfa á þetta fyrr !
En núna er sjónvarpstíminn búin í kvöld og við tekur bókatími ;) Ætla að ná nokkrum köflum í annars ágætri bók áður en ég fer í háttinn.
Kollsterinn...finnst Bjarni frændi fyndnasti karakterinn
Flettingar í dag: 279
Gestir í dag: 87
Flettingar í gær: 223
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 349788
Samtals gestir: 106273
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 21:25:56

