Kollster

24.1.2010

Facebook

Frá og með í dag er ég komin í feisbókarpásu. Fann bara að þetta var orðið eitthvað sem ég stjórnaði ekki alveg sjálf. Sem er ekki gott, svo er líka ekkert hollt að vera á þessu daginn út og daginn inn, það virðist ekki vera það fyrir mig allavega. Maður hættir að heyra í fólkinu sínu og lætur duga sér að skrifa komment inn á status eða skoða myndir af litlu fallegu börnunum í stað þess að skoða þau inn á barnasíðum eða jafnvel fara og hitta fólkið sem á litlu fallegu börnin. 
Ég finn allavega að ég þarf að taka mér pásu. Ætla að sjá hvort það dugi mér ekki bara að láta það vera að fara inn , nú ef ég svindla þá er ekkert annað í stöðunni að gera en að láta Hönnu systur hafa lykilorðið mitt og biðja hana um að breyta því í óákveðin tíma eða þar til ég er hætt að finna þessa óstjórnlegu þörf til að fara inn á facebook. Ég gat hætt að reykja og það algjörlega svo ég ætti nú líklegast að "púlla" það að sleppa því að fara inn á eitt stykki vefsíðu daglega ;) 
Ég geri stundum grín að fólki sem er sjúklega háð facebook , fólki sem kommentar inn á alla statusa og heyrir ekki í neinum nema í gegnum facebook en það er örugglega mjög auðvelt að detta inn í þann gírinn. Ég er til dæmis heima öll kvöld eftir að Felix fer í háttin ...úpps...heimsókn.
Gotta go..meira síðar 

Kollsterinn....later.

Skrifað 24.1.2010 kl. 14:40 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 181
Gestir í dag: 55
Flettingar í gær: 223
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 349690
Samtals gestir: 106241
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:46:19
eXTReMe Tracker