Kollster
17.1.2010
Ammælisblogg
Skemmtilegt að blogga á afmælisdaginn sinn, ekki eins skemmtilegt að vera ekki orðin nógu þjálfuð í pikkinu þar sem ég er komin með gervineglur og þarf að stroka út annan hvern staf sem ég pikka inn þar sem neglurnar eru ekki alveg að hitta á rétta staði :)
Já ég er semsagt komin á fætur og lífið er svo fallegt. Það er svo óendanlega dásamlegt að vakna á sunnudagsmorgni eftir vel heppnaða helgi og fá að vera til.
Í gærkvöldi hélt ég upp á afmælið mitt með því að bjóða öllum sem ég þekki að koma upp á Barböru þar sem DJ Dick&Dyke voru að spila , auðvita komust ekki allir enda byrjaði stuðið á mjög svo ókristilegum tíma . En hinsvegar mættu hrikalega margir og stuðið var brjálað. Þetta er alveg klárlega með skemmtilegri afmælisnóttum sem ég hef upplifað. Og ekki leiðinlegt að halda svona upp á afmælið rétt eftir miðnætti því þá fæ ég alveg auka afmælisdag í dag.
Það verður hægt að skoða myndir inn á Dj Dick&Dyke síðunni á facebook síðar í dag ;)
Ég skemmti mér konunglega, fékk sjúklega fallegt hálsmen frá Pálí minni & Skúla áður en ég skipti yfir í Dyke týpuna og fékk svo triljón knús - fullt af hrósum - nokkur ber bök og mjög góða kossa í afmælisgjöf sem Dyke og henni leiddist það nú aldeilis ekki ;)
Ég er svo mikið þakklát og ég get ekki hætt að tala um það, svo á morgun fæ ég að sækja prinsinn minn í leikskólann og knúsa hann þangað til hann fer að sofa annað kvöld. Og þá tekur rútínan við , sem mér leiðist nú aldeilis ekki.
En áður en rútínan bankar á dyrnar þá er ég nú samt að fara út að borða í kvöld með dónaklúbbnum mínum og hlakka mikið mikið til !
Er að hugsa um að sitja aðeins lengur við tölvuna og reyna að þakka hverjum og einum fyrir afmæliskveðjurnar sem eru ekki ófáar.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í dag þar sem neglurnar gera mér það ófært að vera fljót að skrifa og hendi inn fleiri línum á ykkur þegar ég er komin í betri æfingu ( eða bara búin að naga þær af )
Kollsterinn...AMMÆLISBARN
Flettingar í dag: 111
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 328
Gestir í gær: 103
Samtals flettingar: 349948
Samtals gestir: 106324
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:08:10

