Kollster
2.1.2010
Þakklæti 2010
Fyrsta bloggið á nýju ári. Hellingur búið að gerast á árinu sem leið en ég hafði ekki hugsað mér að skrifa neinn annál því mér finnst alltaf nett erfitt að gera það . Hrædd um að ég gleymi einhverju meiriháttar fallegu eða skemmtilegu og einhver gæti þá líka auðvita orðið sár.
Svo ég kýs bara í þetta skipti að þakka öllum sem áttu samleið með mér á árinu 2009 fyrir allt sem þeir hafa bætt inn í mitt annars mjög fallega og þakkláta líf.
Maður er orðin eitthvað svo fullorðins þegar barnið manns er barasta orðið 2ja ára. Ein af bestu vinkonunum búin að eignast fjórða barnið sitt og ég sit hér í tölvunni og horfi í kringum mig á litla heimilið mitt sem ég þreif hátt og lágt í dag.
Ég er ótrúlega þakklát kona, og það er ekkert að ástæðulausu því ég hef svo margt til að vera þakklát fyrir...fyrir utan það að þakklæti er svona tilfinning sem nær að leggja teppi yfir nokkurvegin hvaða aðra tilfinningu sem er..og þá sérstaklega ef hin tilfinningin er ekki góð.
Einn daginn fyrir mörgum árum síðan leið mér hræðilega illa, eflaust í einhverri af mörgum ástarsorgum þess tíma (á þeim tíma varð ég mjög skotin í konum mjög reglulega) ..allavega...þá settist ég niður og langaði ekki að líða svona illa lengur ...svo ég skrifaði niður lista yfir allt sem ég er þakklát fyrir í lífinu. Svo las ég listann yfir þegar ég vaknaði og áður en ég fór að sofa...og viti menn..þetta svínvirkaði.
Síðan þá hef ég oft gert þennan lista, hann hefur ekki ratað inn í Excel áráttuna mína ennþá en kemur eflaust til með að gera það.
Nú er listinn líka oft bara stikkorð , því ég skil auðvita hvað ég á við ef ég skrifa bara .."Pálí" eða eitthvað í þá áttina :)
Ég mæli algjörlega með því að gera svona lista, líka bara þó ekki væri nema til að minna mann á að vera þakklátur.
Mér finnst rosalega leiðinlegt að hitta fólk í lífinu sem er ekki þakklát og sér bara hræðilegu og vondu hliðarnar á öllu, það er svo vondur staður að vera á og erfitt að hjálpa fólki að komast af þeim stað því það er eiginlega ekki hægt.
Svo er líka fullt af fólki sem gleymir að vera þakklátt jafnvel þó það sé ekkert endilega með vonda sýn á lífið.
Ég var einmitt að tala um eitthvað í þessa áttina um daginn við vin minn. Ekki endilega þakklæti en það spilar samt inn í .
Ég þekki til dæmis nokkrar einstaklinga hér heima á litla klakanum okkar sem eru rosalega sjarmerandi og hæfileikaríkir (þekki mjög marga gædda þessum eiginleikum en ég er að tala um nokkra ákveðna) og eftir að þessir einstaklingar urðu örlítið þekktir þá virðast þeir eiga það til að missa ákveðin sjarma ...sem er svo ótrúlega leiðinlegt. Sjarminn á það nefnilega til að fara þegar fólk fer að hætta að vera þakklátt fyrir jákvæðu athyglina sem það fær og fer í staðinn að finnast ótrúlega sjálfsagður og eðlilegur hlutur að fá hrós...æi erfitt að útskýra, mun eðlilegra að tala saman um þetta og við vorum svo rosalega sammála.
Of erfitt að útskýra þetta hér og þetta liggur nú ekki þungt á mér að tala um þetta en ég kom þessu nú samt alveg frá mér :)
Ég kem allavega vonandi alltaf til með að vera þakklát og er jafnvel að hugsa um að láta það vera tilfinningu ársins 2010 hjá mér..þakklæti með vott af smá dónaskap auðvita :)
Kollsterinn...komin inn í nýtt og fallegt ár og kveður fallega árið 2009
Flettingar í dag: 169
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 223
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 349678
Samtals gestir: 106234
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:23:32

