Kollster
28.12.2009
Vinir - Par
Ég kem eflaust til með að hljóma eins og gömul og lífsreynd kona en er í rauninni ekkert sérlega gömul, þó örlítið lífsreynd að ég tel.
Hef mikið verið að skoða hjónabönd - sambönd - vinasambönd og bara allar tegundir af böndum undanfarið, ekki að ástæðulausu því maður fer jú ekki bara allt í einu að hugsa um eitthvað. Það er nú vanalegast eitthvað sérstakt sem kemur boltanum til að rúlla og í mínu tilfelli var það samband stelpna sem ég þekki og elska ótrúlega mikið. Svo auðvita er ég mikið í kringum parafólk (við einhleypingarnir köllum ykkur hin oft parafólk á bakvið ykkur en það er yfirleitt eintóm öfund og biturð) það parafólk sem ég þekki er flestallt mjög hamingjusamt og eftir að skrifaði undir skilnaðarpappíra sjálf á þessu ári þá hef ég verið að skoða pör í kringum mig mikið. Sem betur fer á ég aðallega vini og fjölskyldumeðlimi sem eru í góðum samböndum því það er svo mikið fallegt hægt að læra af öðru fólki.
Ég hef í gegnum tíðina eiginlega verið með nett brenglaða mynd af allavega ástarsamböndum, ég hélt einhvernvegin að það væri alltaf þannig að einn aðilinn væri alltaf meira hrifin heldur en hinn og þannig væri bara gangur lífsins.
Ég er ekki að segja að þannig hafi það verið í mínu hjónabandi heldur sá ég hlutina þannig áður en ég var sjálf í löngu sambandi en hef lært svo margt síðan þá.
Ég kem aldrei til með að tala um minn skilnað hér á blogginu mínu enda finnst mér ekki endilega það koma netheimum við hvernig ég fór í gegnum minn skilnað.
Enda var ekki planið að tala um skilnaði heldur einmitt ástarsambönd, ég elska að horfa á fólk sem maður sér langar leiðir að er hamingjusamt saman ..ég þekki fullt af slíku fólki en er þó með nokkur mjög góð dæmi nálægt mér sem ég elska að umgangast. Það er fátt fallegra en að vera með manneskju sem fær til dæmis sms frá þeim sem viðkomandi er með ...jafnvel eftir margra ára samband og í sms-inu stendur "mig langar í þig" .
Kanski finnast einhverjum ég ekki vera manneskjan til að kenna fólki hvernig á að vera í sambandi sínu þar sem ég er fráskilin sjálf en lærum við ekki einmitt hvað hefði mátt betur fara þegar maður horfir tilbaka.
Ég veit til dæmis að það er alltof algengt að fólk horfi í erfiðu hlutina, það sem ekki gengur vel og maður hugsar alltof oft þegar maður er í sambandi hvað sé að og hvað væri auðveldara að vera einn með ...maður einblínir hrikalega mikið á neikvæðu hlutina þegar maður er með þeim sem maður elskar..þegar maður er í sambandi. En hvað gerir maður svo þegar maður er EKKI með viðkomandi lengur...fer maður þá að hugsa um þessa hluti sem voru svo erfiðir og er glaður að vera laus við þá...neeee...þá fer maður einmitt að hugsa um hlutina sem maður hefði átt að hugsa um á meðan þeir voru. Flestir ef ekki allir hugsa einmitt um allt þetta fallega, fallegu minningarnar...fallegu tímana saman og góða kynlífið og allt það ..einmitt þegar þetta er farið og búið.
Svona erum við mannfólkið öfugsnúið..veit að ég er það á svo margan hátt.
Svo er það með vinasamböndin ..ég er búin að sjá það með sjálfri mér að ástarsambönd ættu að taka sér vinasambönd til fyrirmyndar. Vinasambönd eru í flestum tilfellum (þó því miður ekki öllum) samband þar sem báðir einstaklingar leggja jafnt á lóðaskálarnar og allir gefa og allir þyggja. Ég hef alltaf vitað að vinasambönd þarf að rækta, það þarf að minna vini sína á að maður elskar þá..senda þeim sms þegar maður hugsar til þeirra og segja þeim ef einhver talaði fallega um þá. Þetta á auðvita að eiga við líka í ástarsambandi en gerir það alltof sjaldan. Því maður tekur makanum sínum of oft sem gefnum hlut.
Þetta er án efa persónulegasta bloggið mitt í langan tíma en ég varð að koma þessu frá mér því ég hef setið hér í kvöld að hugsa svo mikið um þessa hluti...og þar sem ég er einhleypingur í dag þá einbeiti ég mér að þeim samböndum sem ég er held ég bara ágæt í ...sambandi mínu við börnin mín ...sambandi mínu við fjölskylduna og svo síðasta en engan vegin síst sambandi mínu við vini mína.
Ég hlakka til á komandi ári að sjá ástarsamband vina minna halda svona fallega áfram að þróast eins og það hefur gert þetta árið...því það að sjá fólkið sitt hamingjusamt (sem par eða einstaklinga sem eru eki hluti af pari) er það fallegasta sem ég get séð.
Kollsterinn...sérstaklega "djúp" í kvöld

Flettingar í dag: 213
Gestir í dag: 65
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349499
Samtals gestir: 106183
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 22:45:04