Kollster

13.12.2009

Hvatvís

Jæja ..þá get ég loksins sett niður nokkrar sögur af litla snillingnum sem hann yndislega Alex Uni sonur minn er ...(fyrrum stjúpsonur en sonur í hjarta mínu samt sem áður)
Hann er búin að koma hér nokkrum sinnum og tvisvar fengið að gista hjá okkur Felix Skafta því við höfum saknað hvors annars annsi mikið , enda miklir félagar sem við erum.
Það er aldrei leiðinlegt eða erfitt að vera í kringum hann Alex Una, þessi 9 ára polli er bara svo mikil snilld að það er engu lagi líkt.
Hér eru nokkrir gullmolar frá honum...

Í gær vorum við á leið í Hagkaup Skeifunni sem er sossum ekki í frásögur færandi nema að Alex spyr mig hvort hann megi segja mér brandara...ég segi JÚ eins og alltaf og brandarinn byrjar...nú svo þegar brandarum líkur þá fer ég ekki hlægja...var eitthvað utan við mig líklegast. Þá heyrist í mínum manni, "Kolla, þú myndir örugglega fíla húmorinn hjá Atla vini mínum" . Ég spyr af hverju og hann svarar
"Atli er með svona sérstakan húmor eins og þú , því hann er svo mikill karakter líka eins og þú"
Og já barnið er NÍU ára.

Þegar við erum að leggja af stað síðastliðin föstudag saman sem leið okkar liggur upp í leikskóla til yngri sonarins á jólaball fer Alex að tala um jólin. Ég spyr hvort hann hlakki ekki mikið til og allt það ..jú hann jánkar því. Hinsvegar segist honum finnast pínu erfitt að við mamma hans séum ekki saman lengur því hann langi að eiga jólin með mér líka, ég slæ þá á létta strengi og segi í sakleysi mínu "en hey, eitt er nú jákvætt við að við séum ekki saman...þá færðu fleiri pakka í ár (vitandi að það myndi gleðja minn mann)" en neeei. Þá segir Alex Uni frekar móðgaður "KOLLA , jólin eru tíminn þar sem maður á að njóta þess að vera með fjölskyldunni sinni" "ef maður er ekki með fjölskyldunni þá er ekkert gaman að fá pakka!"
Ekki bara er hann klár þessi elska..hann er líka svo einstaklega hlýr.

Í gær þegar þeir bræður eru að borða hér kvöldverðinn sinn segir Felix Skafti þegar hann ýtir burt diskinum sínum "takk hi mi" eins og hann lærði svo fallega á leikskólanum og Alex verður undrandi og spyr mig hvort hann sé löngu búin að læra þetta. Ég segi að þetta sé nú frekar nýtt hjá honum en hann hafi lært þetta á leikskólanum. Þetta fannst herra snilling aldeilis frábært af litla bróður og segir "hann er svo lítill og strax orðin elskulegur"

og ein í viðbót...

Í gærkvöldi þegar Felix Skafti er farin að sofa þá ákváðum við að horfa á bíómynd sem ég fékk lánaða hjá félaga úr vinnunni minni, myndin heitir Angels & Demons, þegar aðeins er liðið á myndina sé ég að Alex er ekkert alveg að fylgjast með svo ég spyr hann hvort honum leiðist myndin. Hann segist ekkert skilja neitt í neinu svo ég bið hann að velja þá bara aðra mynd og ég geti bara horft á þessa seinna. Hann velur 8 Mile með Eminem enda mikill aðdáandi hans eftir að hafa búið með mér ;)
Í miðri mynd þá ræðst Eminem á mann...ekki merkilegt nema Alex verður mjög skrýtin á svipinn og segir svo mjög hneykslaður..." Kolla, Eminem er nú aldeilis HVATVÍS , hann er svo HVATVÍS að hann hugsaði ekki einu sinni í smástund áður en hann brjálaðist bara og lamdi manninn"

Já það er ekki annað hægt en að elska þetta barn og það geri ég með öllu mínu hjarta...og svona til að toppa þetta allt saman þá sagði hann eins ljúfur og hann er í gærkvöldi við Kolluna sína...."Kolla, veistu að ég elska þig alveg jafn mikið og mömmu mína og pabba?" og ég sagði honum að ég elskaði hann líka jafn mikið og hin börnin mín. Hann var eitt stórt bros og við fórum að sofa saman sátt og sæl.

Kollsterinn...sem er rík.

Skrifað 13.12.2009 kl. 12:31 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 328
Gestir í gær: 103
Samtals flettingar: 349922
Samtals gestir: 106316
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 07:52:44
eXTReMe Tracker