Kollster

30.11.2009

Miðjan

Nú er síðan komin upp sem ég hef verið að tala um hér undanfarið.

Hér má framvegis finna mína dóma um bækur ...bæði sem svona almennan dóm og svo líka sem blogg inn á milli.

MIÐJAN.IS

Ég mun samt sem áður halda áfram að blogga hér svona um mitt daglega líf og pælingar...en bókamálin fara inn á Miðjuna :)

Nýjasti lesturinn minn má finna þar eða bara ýta á HÉR !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Kollsterinn...orðin "LES-PÍA" á veraldarvefnum

Skrifað 30.11.2009 kl. 12:48 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.11.2009

Bóst ?!?

Barnið komið í rúmið og það rúmlega níu...honum leiddist aldeilis ekki dagurinn og fór bara algerlega sjálviljugur upp í rúmið sitt og beint að sofa :)
Hér er búið að vera þvílík gleði á bæ hjá okkur mæðginum.
Dagurinn byrjaði fallega með því að Felix Skafti kom heim um ellefu, við lögðum okkur svo saman klukkan tólf og sváfum til að verða hálf þrjú ...nautnaseggirnir sem við erum :)
Svo var leikið hér alskyns eldhúsleiki þar til Pálí, Nadía & Anna Sigga komu í kaffi, gæddum okkur á góðeríi...svo smá heimsókn í Hagkaup í Skeifunni að skoða jólasveinadót (sonur minn elskar allt sem er rautt og hvítt því hann telur það allt saman vera Nóneinei (jólasveinn) ..svo komu Maggý & Eva með litlu Söruna sína klædda í jólasveinabúning sem gladdi minn litla mann mikið en kom honum hinsvegar líka soldið í opna skjöldu. Hann var ekki endilega alveg að skilja að jólasveinn gæti verið litla Sara vinkona hans.
Honum var svo öllum lokið þegar Eva fór að gefa Söru að drekka...hann fylgdist með og gapti eiginlega bara..það var næstum hægt að lesa úr andlitinu á honum eitthvað í þessa áttina "hún sagðist ætla að gefa litla barninu að drekka og barnið er að sjúga brjóstið hennar...hmm....skrýtið..best að gá betur" svo læddi hann sér alltaf örlítið nær og hafði ekki augun af brjóstinu og því sem fram fór . Það var eiginlega bara brjálæðislega fyndið að sjá þetta ...svo sagði hann bara "bóst" og var eitt stórt spurningamerki þessi elska. Bara fyndið.

Núna er planið að horfa á Karla sem hata konur í góðum félagsskap ...komin tími á það ...búin að vera alltof lengi á leiðinni að horfa á þessa mynd, en þar sem ég er nú komin með vod-ið þá er vidjóleigan jú komin inn í stofu hjá mér og því hæg heimatökin ;)

Kollsterinn..búin að deila með ykkur deginum

á morgun..IKEA & sund....good times.

Skrifað 28.11.2009 kl. 21:39 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.11.2009

Fráhvörf

Jólagjafalistinn er komin á blað, búin að kaupa reyndar nokkrar gjafir í Ameríkunni og ég er að EEELSKA litlu geymsluna í íbúðinni minni þar sem ég get nördast alein á kvöldin við að raða og enduraða hlutum inn, rétt áðan var ég til dæmis að raða inn jólagjöfum og flokka þær aðeins niður.
Er núna búin að setja niður á blað gjafirnar sem ég ætla að gefa og uppgötvaði mér til mikillar armæðu (nú myndi Kenneth Máni hlægja yfir þessu orði) að tölvan mín fína inniheldur allt í einu EKKI EXCEL , ég get ekki búið á heimili þar sem tölva hefur ekki Excel, svona í alvöru talað gott fólk !
Svo nú er ég búin að vera að skoða internetið og sjá hvort ég geti ekki fjárfest í nýjum tölvubúnaði og notað 500GB harða diskinn minn til að þurfa ekki að borga himinháa upphæð. Væri eflaust ekkert mál allt saman ef ég þekkti einhvern tölvusnilling sem gæti sagt mér hvað ég ætti að kaupa.
Þannig að semsagt jólagjafalistinn er bara á blaði skrifaður með penna enn sem komið er og ekki búin að raðast upp í skjali með lit í hverjum reit sem gefur til kynna hvort búið er að kaupa handa viðkomandi, búið er að ákveða kaupin nú eða bara lit sem segir að hvorugt sé búið og allt opið ennþá ;)

Mig langar svo fyrst að ekkert Excel er í boði að ná mér í spólu, langar að sjá Karla sem hata konur (búin að lesa bókina ) og horfa á hana hér í rólegheitum, fara svo með Evunni minni á hana í bíó...en ég kemst ekki beint út á leigu þar sem prinsinn er sofnaður...verð séð á morgun og fer á leiguna með strákinn með mér eftir leikskólann hans svo ég geti horft annað kvöld. Já það er góð hugmynd.

Núna hinsvegar er ég að hugsa um að henda mér ofaní bókina sem situr hér við hlið mér...

Kollsterinn..í Excel fráhvörfum

Skrifað 24.11.2009 kl. 20:36 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.11.2009

Betra svona

Mikið sem maður skiptir skapi þessa dagana, núna er ég til dæmis alveg á því að mánudagar séu engan vegin slæmir dagar.
Mætti í ræktina í morgun með duglegu einkaþjálfarastelpunni minni og hún er svo alltof góð við mig, held að ég sé einstaklega lagin við að komast undan en í dag langaði mig það barasta ekkert svo ég var ekkert að væla neitt. Gerði bara það sem hún sagði mér að gera og fékk mér svo hollan og staðgóðan hádegisverð þegar æfingu lauk.
Ég nenni rosalega takmarkað að vera í vondu skapi, maður fær illt í magann við það og verður þungur í höfðinu , nú svo græðir maður alveg nákvæmlega EKKERT. Nú svo er byrjuð vinavika í vinnunni minni og ég fékk þessa líka krúttlegu sendingu rétt áðan ..piparkökur, ískalt malt og litla vísu sem mig langar að monta mig af ...

Um Kollu gott vil ég gefa í skyn
og gleðja ei minna en hina.
Hennar eru góðverkin hvergi lin
og hvað er lífið án leynivina ?

Þetta samdi minn elskulegi leynivinur og ég hlakka til að knúsa viðkomandi næstkomandi föstudag þegar kemur í ljós hver er með hvern.

Ég ætla ekki að segja hinsvegar hvað ég gaf mínum leynivin í dag því allt sem fer á veraldarvefinn er fljótt að fréttast og betra að passa sig svo ekki komist upp um mig ;)

Nú svo ef ég er í góða skapinu þá er líka svo auðvelt að fá bros frá öllum í kringum sig og þá líður manni strax betur, Nana mín kom til mín í gær og við hlógum helling...ég hló aðallega af Hárbringusögunni hennar og ef ég rifja það upp þá tísti ég inn í mér ennþá...hahah...
Nú svo hringdi Gríman mín í gær og Pálí mín í dag og ég get barasta ekki kvartað yfir NEINU í mínu lífi ..ætla bara að vera þakklát og hætta þessu bulli sem stóð yfir í sirka sólahring samtals.

Svo lofa ég að fara að vera duglegri að blogga um bækurnar...er að vona að netsíðan fína fari í loftið í þessari viku í síðasta lagi , er líka að lesa eina bókina núna sem ég kem til með að setja hér inn :)

Kollsterinn...komin í sinn rétta gír aftur !

Skrifað 23.11.2009 kl. 13:42 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.11.2009

Kanski ekki..en jú samt

Sit hér meðan sonurinn svefur vært og hlusta á tónlist...er núna að fara í gegnum 80´s-90´listann okkar Nalla og skemmti mér bara nokkuð vel að dunda mér við þetta.
Veit samt ekki af hverju ég ákvað að taka mér pásu í tónlistarmálum og smella mér inn á bloggið mitt, kanski kom yfir mig óvænt þörf til að blogga og kanski ekki.
Líklegast þurfti ég eitthvað að tjá mig en er nú samt ekki svo viss um að það sé endilega góð hugmynd þar sem veraldarvefurinn er ekki alltaf viðeigandi staður til að tjá sig á...aðallega af því að það sem maður tjáir sig um er ekkert alltaf fyrir hvað augu sem er að skoða.
Þörfin var nú samt sterkari hjá mér heldur en almenn skynsemi og ég sit hér að blogga þó ég ætti kanski betur að sleppa því :)
Helgin er búin að vera ótrúlega einkennileg og ég sveiflast milli þess að vera í skýjunum alveg niður í að langa bara að vera einhver allt önnur en ég er.
Ég er mjög svo sátt við mitt líf í dag og allt sem í því er en stundum eru sumir dagar erfiðari en aðrir og þá væri gott að geta bara stungið af í smástund, finnst þó erfiðara þegar þessi dagar dúkka upp um helgi því það er mun auðveldara að stinga af í vinnu á virkum degi og koma svo bara alveg endurnærð að sækja prinsinn minn á leikskóla og vera honum sú mamma sem ég vil vera.
Stundum fyndist mér líka bara fínt ef tilfinningarnar mínar væru aðeins lokaðri en þær eru , bara örlítið meira faldar, það er ekkert alltaf kostur að vera svona kjáni eins og ég því það sést svo ótrúlega auðveldlega á mér ef ekki allt er OK.
En svona til að fara í Pollyönnu (Kollyönnu) leikinn þá átti ég nú samt sem áður dásamlegan dag með prinsunum mínum tveimur í gær , Alex kom með okkur Felix Skafta í sund...keyptum pylsur ...keyptum ís og fórum að versla í Krónunni þar sem Alex keyrði Felix út um allt í bílakerrunni ..báðir tveir alsælir eftir sundið og samveruna.
Svo var farið að velja dvd og heim í kotið, hér áttum við svo yndislegt kvöld saman og Alex Uni teiknaði óendanlega fallegar myndir handa mér, uppáhaldsmyndin er mynd þar sem hann teiknaði risastóra risaeðlu, ég held í risaeðluna í bandi og hann stendur fyrir aftan mig með tvö geislasverð ! mjög skemmtileg mynd og sýnir ímyndunaraflið sem þessi snillingur hefur.
Svo er yndislega fjölskyldumyndin komin upp á ísskápinn þar sem við höldumst í hendur..ég , Alex & Felix og erum öll með risastórt bros á vör !
Það er nefnilega svo auðvelt að gleðja þessar elskur, maður þarf ekkert að vera að kaupa dót endalaust ...samveran með þeim gefur þeim langtum mest og hún gefur mér líka svo mikið.
Kanski er það líka besta leiðin til að stinga sjálfan sig af í smástund, eyða tíma með börnunum sínum í að gera eitthvað sem þeim finnst gaman og gefa af sér...gleyma litlu ómerkilegu vandamálunum sínum því sjaldnast eru þetta vandamál (verkefni) sem ekki verða leyst á einn eða annan hátt ef heiðarleiki og einlægni fá að vera fremst í röðinni :)
Stundum er svo auðvita líka bara allt í lagi að vera ekki hressa lessan og fá bara að upplifa tilfinningarnar sínar eins og þær koma upp...en í flestum tilfellum tekur þetta fljótt af þar sem ég á svo sjúklega fallegt og gott fólk allt í kringum mig, hvernig er til dæmis hægt að vera annað en glaður þegar maður...
-er nýbúin að dansa Not Fair dansinn við Nönu sína
-dansar alla nóttina í trukkagallanum við fallega Nallann sinn
-fær að heyra Pálí sína gera grín að "sápu" atriðinu mínu sem gleður hana svo óendalega
-fær teiknaðar myndir af sér þar sem stendur að maður sé ástvinur og geti teymt eitt stykki risaeðlu
-fær að sjá son sinn vaxa og dafna eins og engin sé morgundagurinn
-getur sagt nýja lessubrandara í hvert skipti sem maður hittir nýju "lessuvinkonu" sína
-getur farið að hlakka til jólanna
-á lítin Bennalíus sem brosið sínu allra blíðasta í hvert skipti sem maður birtist
-fær knús í hvert skipt sem maður mætir til vinnu á morgnanna

Núna til dæmis er ég farin að finna fyrir brosinu myndast og það gerðist meðan ég rifjaði upp þessi atriði sem ekki er hægt annað en að brosa yfir...gaman að því.

Þetta er flókið líf og oft þarf ekki nema einn lítin atburð eða litla setninguna eða jafnvel bara andvarp frá einhverjum til þess að maður skipti úr góða gírnum yfir í eitthvað annað, en þá þarf ég bara að vera dugleg að rifja upp fallegu atriðin og reyna mitt besta til að henda hinu úr minninu.

Kollsterinn...í tjáningarþörf





Skrifað 22.11.2009 kl. 13:27 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.11.2009

Bækurnar

Skoða nánar

17.11.2009

SÁÁ

Skoða nánar

7.11.2009

Biðin

Skoða nánar

3.11.2009

Kanski

Skoða nánar

1.11.2009

Myndir

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 328
Gestir í gær: 103
Samtals flettingar: 349922
Samtals gestir: 106316
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 07:52:44
eXTReMe Tracker