Kollster
31.10.2009
Afmæli
Nú nálgast óðfluga tvö annsi stór afmæli ..það er að segja þrítugsafmæli Pálí minnar og þrítugsafmæli Grímu minnar líka...ég var víst búin í einhverju hláturskasti inn í dónaklúbb að lofa því við Pálí að í afmælisgjöf frá mér myndi hún fá ósk sína uppfyllta, og sú ósk er eftirfarandi ;
Hún vill að
1. Úrsúla mæti í afmælið
2. Að Úrsúla flytji ljóð og það verður að vera smámælt
3. Að Úrsúla dansi nútímadans
Í afmælinu hennar Grímu vorum við Pálí svo í sameiningu búnar að lofa því að dansa ...
Svo niðurstaðan er á endanum sú að ég er búin að lofa mér að dansa KJÁNALEGA í tveim afmælum sem bæði eiga sér stað fyrir lok þessa árs...
Og hvernig get ég brugðist bestu vinkonum mínum á afmælinu þeirra ? Einfalt svar..ég get það ekki.
Það er ekki frá því að ég finni fyrir þó ekki nema sér smávegis vott af hnút í maganum yfir þessu öllu saman...gæti klárlega gert þessa hluti mjög auðveldlega þegar eingöngu dónaklúbburinn er viðstaddur...en fyrir framan skriljón afmælisgesti héðan og þaðan er allt annað mál.
Jæja..best að sinna syninum, hann er ekki sérlega sáttur við nýju svefnaðferðirnar hér á bæ...
Kollsterinn...Í smá klemmu (ekki mikilli en smá)
31.10.2009
Eitt sinn Gangster ávallt Gangster
Ég steingleymdi að segja ykkur frá því þegar ég kom heim frá Phoenix að ég notaði allan minn tíma í flugvélum bæði á leiðinni út og tilbaka til að lesa. Ok ég var kanski ekki beint að lesa allt flugið en hinsvegar náði ég nú að klára heila bók bara á þessu ferðalagi og það var bókin sem ber sama titil og þessi færsla hér.

Bókin fjallar um mann sem er ungur læknakandítat með mjög svarta fortíð. Hann stekkur á milli tíma í sögunni og gerir það mjög vel. Hann er tengdur mafíunni og þó hann hafi valið sér starf þar sem hann sver að bjarga mannslífum svo lengi sem hann geti það þá hefur hann gert allt annað en það í gegnum tíðina.
Mér fannst bókin frábær, ástæðan fyrir því að ég hef ekki skrifað um hana er einfaldlega sú að ég skildi hana eftir úti hjá Ara vini mínum til að lesa og fór svo bara í aðra hluti þegar ég var komin heim. Ég náði nefnilega að klára hana á leiðinni út ..en hefði ég klárað hana á heimleiðinni þá eflaust hefði ég ekki gleymt að skrifa um hana. En það er nú samt algert aukaatriði þar sem ég var að hugsa til hennar núna sem segir líka hversu góð hún er ..þessi bók poppar upp í hausinn á mér af og til því hún var svo sterk, hún er ekki fögur og eflaust ekki allra þar sem hún er soldið svört en mér fannst hún virkilega góð.
Ég hugsaði með mér að ég hefði betur kosið mér eitthvað léttara efni svona á ferðalagi en í rauninni kom bara í ljós að þetta var miklu betri kostur því ég fór svo djúpt oní sögunni að ég steingleymdi því að ég væri að bíða á flugvelli í marga klukkutíma og rétt hafði tíma til að ná mér í mat áður en ég hennti mér aftur ofaní söguna af Peter og hans skrautlega lífi.
Það er oft erfitt að skrifa um bækur þegar langt er liðið frá því að maður las þær og því reyni ég að leggja það í vana minn að skrifa um bók sem ég klára sama dag og ég klára hana...þannig að ég get ekki endilega verið eins nákvæm og ég er vön...enda held ég að það dugi alveg fyrir mig í þessu tilfelli að segja ykkur að bókin er góð...ég veit ekki alveg hverskonar bókmenntir ég myndi setja þetta í og ég veit ekki nákvæmlega hverjum ég myndi gefa þessa bók í jólagjöf ...en eitt er víst að ég kem til með að gefa einhvejrum hana einhverntímann því ekki ólíkt Ilminum þá er eitthvað við þessa bók sem ég get ekki sett fingur á en það er þarna án efa.
Kollsterinn....betra er seint en aldrei
Höf : Josh Bazell
Útg : Bjartur
29.10.2009
Pabbi minn !
Ég verð ótrúlega sjaldan reið...og þegar ég verð reið þá tengist það yfirleitt ekki neinu sem sagt er við mig eða gert í minn garð.
Áðan varð ég reið , ekki endilega öskrandi reið heldur bara reið og líka ótrúlega hissa því ég var að lesa bloggið hjá pabba mínum, hann er farin að blogga á Eyjunni og þar sem pabbi minn er mjög pólitískur þá er hann að skrifa um pólitík. Hann er með ákveðnar skoðanir og óhræddur við að setja þær á bloggið.
Mér varð litið á nýjasta bloggið hans og þar sem ég veit ekki mikið um pólitík og hef alltaf kosið að segja ekki mínar skoðanir um þau mál á netinu þá les ég samt alltaf því mér finnst pabbi minn klár og frábær mannneskja.
Þegar ég var búin að lesa greinina þá tók ég eftir því að þrátt fyrir að hún hafi verið skrifuð í dag þá voru samt komin 30 ummæli...ég las þau auðvita líka og hugsaði með mér að pabbi hafi nú aldeilis fengið athygli út á þessa grein....en athyglin var ekki eins og ég hafði séð fyrir mér.
Fólk út í bæ leggur það í alvörunni á sig að skrifa niðrandi um annað fólk inn á blogginu hjá viðkomandi..ef þú ert ekki sammála þá er nú aldeilis í lagi að koma með rök á móti en að kalla einhvern AULA á blogginu hans er bara kjánalegt...ég varð eiginlega soldið mikið reið og gerði smá komment sjálf bara af því að mér fannst ekki alveg í lagi sjálf að segja ekki eitthvað við þessu. Ég skrifaði ekki endilega neitt málefnalegt á móti þessu kjánafólki en ég gerði samt mitt og sagði það sem mér fannst.
Æi það reiðir mig að fólk skuli tala niður til einhvers af því að þeir haldi að þeir hafi "rétt" fyrir sér..kalla skrifin hans pabba barnaleg og þurfa endilega að tjá sig á þennan máta.
Ég veit vel að pabbi minn er pabbi minn og þetta hefði eflaust ekki truflað mig eins mikið ef þetta hefði verið einhver maður út í bæ en mér finnst þetta samt rangt. Eflaust er það líka þannig að fólk setur sig í rauninni í það sæti að láta skjóta á sig með því að tala um pólitík á netinu en aftur á móti er alveg hægt að svara án þess að vera móðgandi.
Kollsterinn....Pabbastelpa

28.10.2009
SEX GRUNAÐIR
Rétt í þessu sat ég og spjallað við Pálí mína á msn en náði líka í leiðinni að klára bókina Sex grunaðir sem ég byrjaði á ekki alls fyrir löngu.

Ég er búin að lesa eina aðra bók á undan þessari í nýja flóðinu en ég kem ekki til með að skrifa um hana hér strax sökum óviðráðanlegra aðstæðna (vó hvað þetta var samt flókin setning) en jæja..
Sex grunaðir er bók eftir sama höfund og skrifaði hina frábæru bók Viltu vinna miljarð?
Því miður þá get ég ekki sagt að ég sé jafnhrifin af þessari bók eins og þeirri fyrri .
Brjálaður glæpamaður er skotin í eigin veislu þar sem hann fagnar því að hafa komist upp með glæp. Sex eru grunaðir fyrir morðið og í bókinni er farið létt yfir sögu hvers og eins af þessum grunuðu, ástæður sem þeir hefðu til að fremja morðið og svo komst að því á endanum hver það var sem framdi glæpinn á glæpamanninum. Þetta var innihaldið sirka bát.
Sagan er vel skrifuð og heldur á köflum mjög vel en ég verð alveg að viðurkenna að inn á milli var hún eiginlega bara of flókin fyrir mig, alltof mikið af Indverskum orðum sem síðan eru settir tölustafir fyrir aftan þar sem maður getur flett aftast í bókina til að sjá hvað orðin þýða (sem ég nenni ekki ef ég ætla að halda mér í sögunni eða vera ekki í margar vikur að lesa bókina) svo ég sleppti því að lesa skýringarnar . Sem kanski gerir það að verkum að ég náði ekki eins miklum skilning á sögunni eins og ég hefði eflaust getað gert ef ég hefði flett aftast inn í næstum hverri blaðsíðu sem ég las.
En utan þess þá samt náði sagan mér ekki alveg..mér fannst skemmtilegt á vissan hátt hvernig höfundurinn náði að flétta þeim grunuðu saman án þess endilega að þeir þekktust sjálfir. Samt var ég inn á milli að sjóða upp úr við að vanda mig að muna hver var hvað og hvernig viðkomandi kom hinum og þessum við.
Lokahnykkurinn fannst mér líka verða of langur í rauninni, hefði viljað fá minni útúrsnúninga en það er bara mitt persónulega álit auðvita og eflaust margir sem hafa gaman af flækjunum.
Það stóðu nokkrar sögupersónur upp að lestri loknum en bókin fer nú samt ekki í uppáhaldshilluna mína ef satt skal segja...en hún fór heldur ekki í "hillubóka" flokinn sem þýðir að mér leiddist hún ekki. Ég bjóst kanski við of miklu og var alltaf að bíða eftir einhverju rosalegu sem ekki gerðist.
Kollsterinn...er viðkvæm fyrir sterku og kanski var þessi bók bara of sterk
Höf : Vikas Swarup
Útg : JPV
27.10.2009
Ó já
Auður Rán : já þetta er hætt að vera fyndið hvað við erum duglegar að taka íslendinginn á hittingin okkar ..týpurnar sem segjum alltaf "svo verðum við að fara að hittast" en gerum það aldrei...hættum í ruglinu og ákveðum bara hvaða dag við viljum hittast með krílin beibí !
Annars allt veikt að frétta hér frá okkur Felix Skafta..hann er komin með einhvejra leiðindapest en ég er samt nokkurvegin viss um að hann er ekki komin með gríslingaflensuna því hann er barasta hinn hressasti og hefur ekkert verið með hita í gær eða í dag en hóstinn og augnsýkingin er samt sem áður í blússandi fíling . Svo ekki er leikskóli í nánustu framtíð , ekki eins og staðan er í dag allavega. Vonum nú samt að hann verði komin í betri gír þegar líður að helginni.
Ma og pa voru að fara til úglanda í dag og nú situr minn maður hér inn í tölvuherbergi að dunda sér í leik með allt dótið sitt. Við ætlum svo sannarlega að njóta þess að vera hér í kotinu ein með Hjalta bro ... kanski smellum við okkur í sund saman þegar kúturinn minn kveður kvefið.
Ég er með strax-veikina á háu stigi gagnvart ákveðnum myndum sem við erum að bíða eftir að ákveðin snillingur í ákveðnum Hafnarfirði klári að dúllast í ;) Fengum nokkur sýnishorn sem má sjá í myndaalbúminu hér og það var eins og að fá smakk af súkkulaðikökunni en þurfa svo að bíða eftir sneiðinni sinni ! híhí
Ég stekk úr einu í annað enda er hugur minn ekki algjörlega á staðnum þar sem ég er að fylgjast með ótrúlega krúttlegum leik sonar minns hér í herberginu..svo dásamlegt að horfa á þessa litlu engla þegar þau halda að engin sé að fylgjast með.
Hey..góðar fréttir...eða eiginlega frábærar fréttir, við Felix Skafti erum komin með íbúð í Bólstaðahlíð ! Fáum afhent fimmtudaginn 5.nóv og planið er að flytja þá helgina meðan Felixinn er hjá Lilju-mömmu. þeim sem eru að tryllast úr spenningi yfir að fá að taka þátt í flutningnum er vinsamlegast bent á að senda mér skeyti eða bara hringja í mig á skrifstofutíma til þess að skrá sig með í leikinn. Síðast komust færri að en vildu svo ég ráðlegg ykkur eindregið að láta mig vita sem fyrst ef þið viljið vera með ;)
Kollsterinn...dáist að matreiðsluleik litla snillingsins síns.
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349305
Samtals gestir: 106128
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 02:32:06