Kollster

24.9.2009

Heima er best

Í gærkvöldi skellti ég mér að sjá lokaæfingu á verkinu "Heima er best" á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. 
Til þess að segja um hvað leikritið er þá ætla ég bara að kópera textann sem er á síðu leikhússins svo ég segi allavega ekkert meira en má segja um verkið :) 



Tveir bræður leika sama leikritið aftur og aftur undir ógnarstjórn föður síns. Innan tveggja tíma hafa þrír menn drukkið sex dósir af bjór, borðað slatta af kexi með smurosti og sporðrennt grilluðum kjúklingi með undarlegri blárri sósu. Innan tveggja klukkutíma munu fimm manneskjur týna lífi. Sumsé. Allt eins og það á að vera. Í íbúð feðganna er raunveruleikinn endurskapaður og settur á svið með aðferðum farsans. Grófur ofleikur, eldsnögg búningaskipti og ógnvænlegur hraði. Heima er best er einstakt leikrit sem fær mann til að skellihlæja á meðan hrollurinn hríslast niður hrygginn.

Þetta er nú svona nokkurnvegin það sem sýningin fjallar um.

Ég skemmti mér nokkuð vel, það voru margir góðir sprettir í sýningunni en einstaka tími þar sem mér persónulega fannst sagan inn í sögunni verða í lengri kantinum og var farin að hlakka til þegar þeir myndu skipta yfir í sína upprunalegu karaktera.
Leikmyndin fannst mér gera rosalega margt í sýningunni því hún lýsti svo vel hversu mikið "hræsi" feðgarnir búa í en reyna þó að gera aðlaðandi með því að klæða ljósaperurnar í gervi-glamúr og alskyns fyndið sem hægt var að sjá þegar maður skoðar "heimilið" vel.
Leikararnir stóðu sig með eindæmum vel. 
Guðjón Davíð (betur þekktur sem Gói í dúóinu Gói&Jói) fannst mér langbestur af strákunum , hann náði að koma sér í topp 5 hjá mér af karlkyns leikurum Íslands.
Hinsvegar fannst mér algjörlega eiga vinning sýningarinnar leikurinn hjá Dóru Jóhannsdóttur. Ég hafði ekki hugmynd um að hún léki í sýningunni þar sem hún er svona hálfpartinn aukahlutverk og kemur seint inn en fyrir mér stal hún algjörlega senunni. Hún var með mun veigaminna hlutverk heldur en strákarnir í sýningunni en mér fannst hún gera það svo vel sem hún gerði að ég fylgdist allan tímann með henni þegar hún var á sviðinu. 
Ég hef ekki séð hana leika á sviði áður en nú mun þessi sýning verða til þess að ég á örugglega eftir að velja sýningu næst í Borgarleikhúsinu sem þessi stelpa leikur í.
Sýningin annars í heildina var ljómandi góð, eflaust ekki fyrir alla en ég hafði gaman af henni og fannst þetta góð sýning og ég er nokkuð viss um að Gríman mín (ekki verðlaunin heldur Gríma vinkona mín) hafi skemmt sér nokkuð vel líka. 

Hlakka til þessa leikárs hjá Borgarleikhúsinu og bendi fólki á að í dag kostar svipað að fara í leikhús eins og það kostar að fara í bíó...nema leikhús er miklu meiri upplifun að mínu mati. Smellið ykkur á áskriftarkort og ég skal með glöðu geði láta ykkur vita alltaf þegar ég sé sýningu sem mér finnst æðisleg :)

Kollsterinn...elskar leikhúsið

Skrifað 24.9.2009 kl. 8:24 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.9.2009

Litlan

Veit ekki hvort ég hafi talað einhverntímann um það hér á blogginu mínu en ég á í fórum mínum litla sirka 10 ára stelpu inn í mér sem mér finnst mjög MIS skemmtileg. 
það er ýmislegt sem hún segir og gerir sem getur farið óendanlega í taugarnar á mér og ég geri mér vanalegast mjög fljótt grein fyrir því þegar hún hefur tekið yfirhöndina, en einhvernvegin nær hún samt alltaf að koma sínu á framfæri áður en ég skynsemin í sjálfri mér nær að stoppa hana.
Svona sem dæmi þá er hún eins og flest önnur tíu ára börn ekki ennþá búin að læra hvenær er viðeigandi að sýna afbrýðissemi , hvenær er viðeigandi almennt að vera afbrýðissamur og ýmislegt í þeim dúr. Hún til dæmis er hrikalega matvönd og ræður alltaf í mátarmálum ! 
Núna um daginn þá eignaðist rosalega góð vinkona mín kærasta...og litla tíu ára stelpan náði yfirhöndinni í sirka eina kvöldstund, hún fór í fýlu út í lífið og varð soldið lítil í sér. Hún meira að segja sendi vinkonu sinni sms og skammaði hana fyrir að hafa tekið nýja "kærastan" fram yfir vinkonurnar (sem hún gerði ekki beint samt) en tíu ára vinkona mín ákvað samt að þannig væru málin.
Ég er búin að segja mínum nánustu frá þessari litlu stelpu svona aðallega til að fyrirbyggja leiðindi og til að þær sýni henni meiri skilning kanski heldur en að þær myndu sýna mér í ýmsum aðstæðum.
Sem betur fer þá lætur litlan ekki sjá sig í mæðrahlutverki mínu enda myndi það engan vegin eiga við.
Hún er þó engan vegin alslæm því hún er ekkert alltaf í fýlu eða neitt slíkt og hún á það til að segja rosalega fallega hluti við fólkið sem ég og hún elskum sameiginlega bara af því að hana langar til þess að þeir viti hvað henni finnst mikið til þeirra koma...og fyrir það er ég þakklát.
Þessi litla stelpa er auðvita bara í lok dags ég sjálf...eða hluti af þeirri manneskju sem ég er og stundum verð ég pirruð að leyfa mér að láta svona, en á móti kemur að ég myndi ekki vilja missa góðu hliðarnar við að vera sú sem ég er svo ég er sátt. 
Og ég þakka fólkinu mínu fyrir að taka mér eins og ég er ...jafnvel þó ég geti verið óttalegur kjáni inn á milli ;) 

Kollsterinn...Tíu ára þrítug !

Skrifað 20.9.2009 kl. 16:04 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.9.2009

Og hananú !

Mikið finnst mér undarlegt hvað fólk er oft fast í hvernig hlutirnir "eiga" að vera og líka fast oft í nett gamalli hugsun.
Nú er ég til dæmis lesbía eins og hefur eflaust komið fram oftar en einu sinni á þessu ágætis bloggi :) en allavega...ég á lítin yndislegan strák...þennan litla ótrúlega dásamlega dreng átti ég með fyrrum konu minni, við fórum saman í gegnum glasafrjóvgunarferli því það er jú lítið annað í boði en að fá smá hjálp þegar tvær konur eiga í hlut þar sem annar aðilinn er ekki með "sæðið" sem þarf víst til.
Þegar svo kom að fæðingu litla Felixar þá var Lilja (hin mamman) algjörlega til staðar fyrir mig, hún var með í gegnum alla fæðinguna og stóð sig eins og hetja, næstum því meiri hetja en ég verð ég að segja því hún er jú búin að fæða 2 börn sjálf og hefur eflaust átt erfitt með að vita hvað ég var að ganga í gegnum og ekki geta neitt gert til að auðvelda mér það. Allavega...ég veit ekki hvar ég hefði verið ef ég hefði þurft að ganga í gegnum þessa fæðingu án hennar...en það er nú samt langt frá því að vera aðalatriðið í sögunni...svo ég held bara áfram.
Þegar kom í ljós eftir sirka 40 tíma af hríðum að erfinginn væri ekki að fara að koma án þess að láta skera soldið í mömmu sína þá var mér flýtt inn á skurðarherbergi...þar sem hann var komin út sirka bát 15 mínútum síðar og þá settur beint í fangið á MÖMMU Lilju, hún sat svo með hann við hliðina á mér (ég var nota bene föst eins og kristur á krossinum negld niður eftir aðgerðina að láta sauma mig saman aftur) ..við horfðum á þessa litlu dásamlegu mannveru og urðum báðar ástfagnar af honum eins og foreldrar verða þegar þeir eiga börnin sín.
Nú svo var nokkra daga lega á spítalanum meðan skurður og móðir jöfnuðu sig þar sem ég var mjög fegin að þurfa ekki að standa í skiptingum á Felix Skafta því Lilja tók allt að sér sem krafðist annars en að taka út túttuna og fæða barnið :) 
Heimkoman var svo dásamleg líka..loksins fengu stóru systkyni Felixar að taka þátt í þessu öllu saman því þau máttu lítið sem ekkert vera upp á spítala.
Við áttum dásamlega daga ..dásamlegar vikur ...mánuði....svo allt í einu kom það upp að drengurinn þurfti að fara í aðgerð á höfði...sem gekk ótrúlega vel...þar lágum við "mæðurnar" saman og pössuðum barnið okkar...eins og er flestum foreldrum eðlislægt...(ég veit að sagan er löng..en það er ekki hægt að stytta hana og meika sama point og ætlunin er) svo ég held áfram ótrauð og þið leggið ykkur bara ef ykkur leiðist lesturinn ;) 
Heim var aftur haldið og dagarnir voru aftur dásamlegir  með börnum og buru..allt í einu var litli strákurinn okkar orðin 1.árs og það á gamlárskvöld...það var nú samt ekki blásið á kökuna sína því "litli" stóri strákurinn var nefnilega með flensu á afmælisdagin og allt nett ómögulegt. 
Nú í dag hafa leiðir okkar Lilju skilið....og við erum ekki lengur fjölskylda ..það er að segja ekki ég , Lilja og börnin 3. 
Um daginn heyrði ég konu segja við aðra konu að X væri ekki barnsmóðir Y því Y hefði jú átt barnið ein. Ég varð svo reið inn í mér að ég hefði getað tryllst...
Maður verður reiður ef maður getur tengt eitthvað við sjálfan sig og í þessu tilfelli gat ég það svo sannarlega...það er ENGIN í þessum heimi að fara að segja mér að Lilja til dæmis sé ekki barnsmóðir mín. Ég mun aldrei leyfa fólki að tala neitt nema fallega í eyru Felixar um Lilju því hún er móðir hans alveg jafn mikið og ég ...sama hver fæddi barnið. 
Ég á þónokkrar vinkonur sem gætu mun auðveldar sagt að "pabbi" barnsins síns hegði sér ekki eins og "barnsfaðir" heldur en Lilja til dæmis hegðar sér sem "barnsmóðir" 

Svona hlutir geta gert mig brjálaða og ég vona að engum láti sér nokkru sinni detta það í hug að foreldrið sem ekki gengur með barnið sé eitthvað minna foreldri. Þetta er gamaldags hugsunarháttur og eflaust ekkert endilega illa meint. En ég varð bara að tjá mig um þetta...

Kollsterinn...Barnsmóðir og móðir 

Skrifað 17.9.2009 kl. 22:37 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.9.2009

Felix Skafti

Yndislega mannveran hann sonur minn er nýbyrjaður í leikskóla. Aðlögunin var ekki eins erfið og ég hafði í raun reiknað með og hann var alveg að fíla sig ótrúlega vel strax frá byrjun, sagði rosalega spenntur alltaf þegar hann sá leikskólann framundan "gakkar , gakkar , gakkar" sem þýðir auðvita Krakkarnir :)
Svo þegar kom að því að mamma þurfti að fara á þriðja eða fjórða degi í burtu í smástund þá kom ekki svo mikið sem eitt tár. Minn maður varla hafði tíma til að vinka mömmu sinni bless því dótið allt og krakkarnir voru svo mun meira spennandi.
Þetta gladdi mig mikið og gerði alla þesa aðlögun mun auðveldari. Nú er hann búin að vera 3 fulla daga í leikskólanum og það gengur rosalega vel. Þessa helgina var hann hjá mömmu Lilju og þegar ég fór að sækja hann í leikskólann eftir vinnu í dag þá fannst mér hann grínlaust hafa stækkað allverulega...svo þegar við vorum að keyra heim þá apaði hann allt upp eftir mér sem ég sagði...Ég ; eigum við að fara heim ? Felix ; HEEEEIIIM !
Hann er semsagt komin á páfagaukatímabilið þar sem hann hermir eftir öllum orðum sem hann mögulega getur..og það er æðislegt að hlusta á hannn.
Hlakka svo mikið til að geta átt helgina með honum og farið í sund með hann og gert allt það sem okkur finnst svo gaman að gera saman mæðginunum...luuuuv it.
Á laugardaginn fékk ég að hitta litlu Dan sem ég elska óendanlega og stelpurnar spurðu mig einmitt hvort mér fyndist ekki stutt síðan Felix hafi verið svona lítill...en málið er að hann var ALDREI eins lítill og litla Dan er í dag...hann fæddist töluvert mikið stærri en hún er núna...en svona án þess að taka hlutunum bókstaflega þá finnst mér einmitt vera alltof stutt síðan hann var bara á brjósti og gat ekki án mín verið ...núna hleypur hann um allt og spyr eftir ömmu og afa...eða Hjalta frænda..nú eða krakkana..og mamman er minnst spennandi enda kanski eðlilegt :)
Þetta er fljótt að líða og maður verður að njóta hvers dags og alls sem hann býður upp á.

Nú kallar litli kallinn á bókalestur..svo múttan kveður.

Kollsterinn...mamma númer 1 og allt annað númer 2

Skrifað 14.9.2009 kl. 17:58 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.9.2009

Flottustu stelpurnar

Með þriggja daga millibili fæddust tvær ungar prinsessur ekki alls fyrir löngu. Þessar litlu fegurðardísir og englar koma til með að vera í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég elskaði þær báðar þegar þær voru baun í maga mömmu sinnar og nú eru þær komnar í heiminn.
Önnur fæddist þann 07.september síðastliðin og hin kom í heiminn í nótt sem leið eða 10.sept (afmælisdagur pabba míns)

Ég tárast af gleði og trylling yfir þessum englum....og vill endilega deila myndum af þeim báðum með ykkur til að monta mig aðeins.
Ég er sko skáfrænka þeirra beggja og mikið mikið stolt sem slík.

"Litla Dan" Maggý&Evu dóttir



"Litla prinsessa" Ernu&Ingó dóttir



Ég hlakka mikið til að fá að dekra þessar litlu dömur með endalausri ást og umhyggju.
Elsku Eva Björk & Maggý , Erna Rán , Ingó & strákarnir
Til hamingju með þessar fullkomnu litlu stelpur !

Kollsterinn......getur ekki hætt að horfa á þessa fegurð

Skrifað 10.9.2009 kl. 19:31 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.9.2009

Single life

Skoða nánar

6.9.2009

Vó ertu lesbía ?

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 94
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 392
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 348486
Samtals gestir: 105909
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 11:04:27
eXTReMe Tracker