Kollster

30.8.2009

Leikskólastrákurinn

Sunnudagskvöld...og sú gamla er að bilast úr þreytu...samt svaf ég til 14 í gær og til að verða 13 í dag. Sofnaði reyndar ekki sérlega snemma hvorugt kvöldið áður og maður er ekki lengur 21.árs svo það er kanski ekkert að furða þó úthaldið sé ekki endilega upp á marga fiska.
Á föstudagskvöldið fór ég í ótrúlega skemmtilega heimsókn í Árbæinn, endaði þar í partýi hjá vinkonu hennar Pálí og fór svo í bæinn að hittta Ölbu dansfélaga minn. Við dönsuðum með öllum skinkunum sem skreyttu Barböru þá nóttina og skemmtum okkur bara nokkuð vel.
Á laugardagskvöldið var svo Los Dónos ..síðast dónakvöldið áður en Eva kemur litlu Dan í heiminn...og það er ekkert lítið sem ég elska þessar dónastelpur mínar, nú svo fljótlega ætlum við að fjölga í hópnum og hittum verðandi dónastelpu immit inn á Boston í gær ;)
Við Pálína ákváðum í gærkvöldi að fara í könnunarleiðangur um bæinn, fórum inn á hérumbil alla skemmtistaða miðbæjarins og inn á öllum stöðum nema tveimur var PRUMPULYKT þegar maður labbaði í gegnum dansgólfið. Það er nefnilega það hræðilega við reykingabannið á þessum stöðum, núna finnur maður ekki reykingalykt..nei nei..í staðinn finnur maður hinsvegar alla líkamslykt sem fólk gefur frá sér...svita/prumpu fýla og önnur líkamslykt er ekki sérlega heillandi og ég pant þá finna frekar reykingalykt heldur en þennan viðbjóð.
Nú svo enduðum við stöllurnar á Barbörunni þar sem aftur var mjög straight stemning í gangi, sem kemur auðvita fyrir inn á milli svo við tókum það bara rólega, sátum mestallt kvöldið bara í spjalli og huggulegheitum sem er kanski ekki endilega það sem ég er vön þar sem ég er danssjúk allajafna.
Drengurinn minn er komin heim frá mömmu Lilju og við erum að fara í fyrsta dag í aðlögun á morgun í leikskólanum, ég er að tryllast inn í mér úr spenning að sjá hvernig litli strákurinn minn bregst við leikskólanum sínum :)

Svo átti ég yndislegan síðdegis-lunch með Evunni minni í dag...oooooohh hvað það var ótrúlega næs, ég elska Evuna mína ótrúlega mikið...takk fyrir samveruna fallega mín !

Sit hér inn í stofu að bloggast og er að leka niður...er maður orðin hræðilega gamall þegar maður getur vart haldið sér vakandi til 22 af því að maður fór út bæði föstudag og laugardag ?
hm....held líka reyndar að ég sé bara pínu tóm inn í mér....maður getur ekki verið hressa týpan alla daga ársins :)

Kollsterinnn...þreytt og tóm

Skrifað 30.8.2009 kl. 21:17 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.8.2009

Elskandi

Vá hvað þessi vika er búin að vera rosalega fljót að líða....enda nóg að gera. Sá stutti fer til mömmu Lilju á morgun og minns er með nokkuð bókaða helgi framundan. Dónaklúbburinn mun hittast í síðasta sinn áður en einn af okkar ástkæru meðlimum ungar út ...og ekki nóg með það heldur eru þá í rauninni tveir ástkærir meðlimir að eignast ungann því þær eru jú par og saman í þessu :)
Planið er svo að bjóða velkomin nýjan meðlim...og þá er ég ekki að tala um litlu ófæddu, heldur ófæddan verðandi dónameðlim sem fær inngöngu um helgina að ég held barasta.
Það er alltaf svo sjúklega gaman þegar dónarnir hittast og núna er frá sérstaklega mörgu að segja og gaman að vera til sem dóni í þessum fína félagsskap.
Nú svo er auðvita fullt af lífi fyrir utan dónaskapinn því litli maðurinn á heimilinu er að fara að byrja á leikskóla eftir helgina, ji hvað ég hlakka óstjórnlega til að fylgjast með honum innan um hin börnin, enda verður nægur tími til að sjá þetta allt gerast þar sem aðlögunin er heilir sjö dagar í leikskólanum. Minn maður á eflaust eftiir að þurfa að nota alla dagana sjö því hann er soldill mömmustrákur þessi elska.
Talandi um að vera mömmustrákur þá er ég alveg soldið að komast að því að karlmannlegi litli Felixinn minn er ekki eins karlmannlegur og ég held stundum fram að hann sé.
Hann er alveg í því þessa daganna að máta alla skónna hennar ömmu sinnar og helst vill hann fá að púðra sig á meðan, ég kenni mömmu Lilju hans alfarið um þetta hommagen takk fyrir..ekki finnur hann púður og stelpudót í mínum fórum ! Nú svo er hann nú pínu virðist vera að erfa frá mér meðvirknina, vorum í heimsókn hjá Úlfi Kára og Grímu vinum okkar í dag...og Úlfur er aðeins að prufa alskyns hluti með sjálfan sig...núna er alveg flottast að vera alltaf að fara í fýlu...sem er hræðilega krúttlegt hjá svona litlum manni...en Felix Skafti er ekki alveg að skilja þetta...alltaf þegar Úlfurinn leggst í gólfið og fer í fýlu þá fer minn maður og nær í dót handa honum..nú eða gítarinn hans og réttir honum. Gengur auðvita ekki að einhver sé í fýlu ...maður verður að hjálpa til og koma fólki í gott skap :) alveg eins og mamma sín þessi elska :) hihihi

Nú svo bíð ég auðvita spenntust í heimi eftir litlu Dan sem er strax orðin svo mikill karakter að hún er ekkert að láta "snúa" sér eitthvað eftir hentusemi annarra takk fyrir. Hún ætlar bara að koma út eins og börn stjórstjarnanna í Hollywood og ekkert vera að láta mömmu Evu ganga í gegnum allt þetta vesen með fæðinguna og hananú. Mikið sem ég er strax byrjuð að elska þessa litlu mannveru...bara gleði og meiri gleði.

Ótrúlegt hvað hjartað í manni getur elskað marga einstaklinga og sama hversu heitt maður elskar fólkið sitt þá er alltaf pláss fyrir meira...vinátta er það allra fallegasta í þessum heimi og það á við vináttu milli vina og fjölskyldu líka...ég elska fólkið mitt og það eru svo endalaust margir sem ég elska svo endalaust mikið.

Að því loknu segi ég bara góða nótt og sofið rótt fallega fólk...

Kollsterinnn..sem elskar.

Skrifað 27.8.2009 kl. 23:51 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.8.2009

Veruleikinn tekin við

Er að vinna skýrslu í tölvunni og hún er svo þung að ég get ekkert unnið í kerfinu sjálfu á meðan..svo ég ákvað að henda inn hér nokkrum línum meðan ég væri að bíða. Vil ekki fara út í eitthvað annað verkefni á meðan því hausinn á mér er inn í þessu stóra sem stendur.
Bara allt ágætt að frétta af Kollsternum, helgin var annsi fljót að líða en samt sem áður ótrúlega margt sem var að gerast...
Dj Dyke tók mestan minn tíma þessa helgina enda kanski ekki að furða þar sem hún var að spila með Dick sínum á Barböru bæði fimmtudag og föstudag.
Nú svo var auðvita Menningarnótt á laugardag og þá fórum við vinirnir út að borða saman og svo um borð í Eldingu að horfa á flugeldana.
Þetta árið fór Elding út á báðum bátunum sínum ...sem gerði það að verkum að við lentum ekki í sama bát og Eva&Birna ...verð nú alveg að viðurkenna að það gerði siglinguna pínu svekkjandi. En það fólk sem var um borð með mér var samt dásamlegt , skemmtilegt, fyndið og fallegt svo ég var alveg sátt. Enda fékk ég að dansa við tóna DJ Glimmer í skaðabætur það sem eftir  lifði af nóttinni.
Ég fer semsagt út úr þessari helgi með bros á vör þó að ég sé ekki endilega sátt við hegðun mína við alla aðila...en þá getur maður víst ekki annað gert en að biðjast afsökunar á því sem maður er leiður yfir að hafa gert og halda svo áfram að sýna það í verki að maður sjái eftir þessu...sem ég mun alveg koma til með að gera. En þrátt fyrir þennan mínus þá er helgin samt búin að vera algjört æði og mikið mikið fjör. Dj Dick & Dyke eru alltaf að mótast betur og betur og finna sig í karakterunum sínum.... :)
Jæja...skýrslan er tilbúin svo minns ætlar að halda áfram að vinna  með bros á vör.

Kollsterinn...sem hlakkar til að knúsa strákinn sinn eftir vinnu

Skrifað 24.8.2009 kl. 13:57 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.8.2009

Fallegt

Mikið rosalega er tíminn eitthvað fljótur að líða þessa dagana, mér finnst ég alltaf hafa hellings tíma og ætla mér svo margt og mikið..hitta þennan og hinn og gera og græja þetta og hitt...svo allt í einu er bara komin miðvikudagur..sem þýðir að á morgun er fimmtudagur og Dj Dyke tekur þá við annað kvöld. Nú svo er bara komin helgi og allt að gerast um helgina.
Þarnæstu viku byrjar svo fallegi drengurinn minn í aðlögun á leikskólanum og þá loksins fer almennilegt rútínulíf í gang.
Eins mikið og ég er búin að vera að eeeeeeeeeelska þetta sumar þá kvíði ég engan vegin vetrinum því ég vil hafa allt í föstum skorðum. Get þó alveg sagt að ég er ekki alveg eins ferköntuð og ég var hér forðum daga, enda búin að bæta nokkrum týpum í innra safnið mitt (Úrsúlu, Dj Dyke og The Teenage girl) svo ég er í góðum málu.
Þessi vika er fullbókuð af vinnu , vinnu og meiri vinnu...bæði hér á skrifstofunni og svo auðvita líka upp á hinni fögru Barböru með honum Nalla mínum.

Nú svo í byrjun september þá kemur litla Dan sem neitar að láta snúa sér (þá er ég að tala um í bumbunni ..ekki snúa sér eins og frá gay í straight) hihih talandi um litlu ..þá er ég að fara að heimsækja Andreu Eik þegar ég er búin að taka nokkra spretti í lauginni eftir vinnu...semsagt hreyfa sig (verð að passa í dj dyke gallann) og svo fara upp í sveitina (kópavoginn) að knúsa litlu Andreu ..og auðvita líka Freyju Sól sætustu.
Ætli mar reyni ekki að segja hæ við Dagnýju og Carinu í leiðinni , en þær skilja eflaust vel að þær fái minnstu athyglina af þeim fjölskyldumeðlimum þessa dagana...

hér má sjá mynd af skvísunum fallegu....



jeij...ætla að henda mér í sundið svo ég sjái skvísurnar mínar fyrr....luv...

Kollsterinn...finnst lífið svo fallegt

Skrifað 19.8.2009 kl. 15:33 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.8.2009

DJ Dick&Dyke

Ef þið hafið verið að velta því fyrir ykkur í gegnum lesturinn á blogginu hjá mér hvað þetta Dick&Dyke mál er eiginlega þá ákvað ég að setja svarið hér svo að þið sem ekki eruð aðdáendur þessa fólks á facebook fáið þá tækifæri hérmeð til að bæta úr því :)
Dick & Dyke eru semsagt þetta ágæta fólk á myndinni hér sem mér og Nalla vini mínum er farið að þykja annsi vænt um...þau eru DJ ar og eru búin að spila einu sinni á Barböru og koma til með að gera að aftur komandi helgi. Það er að segja smá upphitun á fimmtudagskvöldið frá 22:00 til 01:00. Nú svo verður tekið alvarlega á góðri tónlist á föstudagskvöldinu frá miðnætti og til lokun. Ég veit að ég verð á svæðinu að dansa ...verður þú þar fallegi og yndislegi lesandi  ? :)
p.s. ef þið ýtið á nafnið hjá þeim þarna undir myndinni leiðir tengillinn ykkur á síðu þeirra á facebook þar sem má fylgjast með dagskrá þeirra´i framtíðinni.

Kollsterinn...vinkona Dick&Dyke




DJ DICK & DYKE !

Skrifað 17.8.2009 kl. 18:47 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.8.2009

Skúli skallaður

Skoða nánar

14.8.2009

Dónagolf

Skoða nánar

14.8.2009

Skúli minn

Skoða nánar

14.8.2009

Sumarfrí

Skoða nánar

13.8.2009

Nýjar myndir

Skoða nánar

8.8.2009

Gay Pride !

Skoða nánar

5.8.2009

Drag Kollster

Skoða nánar

4.8.2009

Jóga týpan

Skoða nánar

4.8.2009

Sátt við sitt ...

Skoða nánar

3.8.2009

Lítt gefin fyrir drama...þessi dama

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349404
Samtals gestir: 106150
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:08:36
eXTReMe Tracker