Kollster

28.7.2009

Sullið

Það er undarleg tilfinning að vita ekki almennilega hvernig manni líður . Í dag (þá meina ég almennt í lífinu..ekki endilega bara daginn í dag) tel ég mig vera orðna nokkuð góða í að vita sirka hvernig mér líður hverja stundina svona alveg án þess að ég sé neitt endilega að skoða það mikið hverja stund. Eitt af því allra stærsta sem ég hef fengið í leynifélaginu sem ég tilheyri er einmitt þetta ; að vita hver ég er og fá að vera ég sjálf án þess að ég dæmi mig fyrir það sem ég er og án þess að ég þurfi að vera einhver önnur en ég er sátt við að vera. Að ég tali nú ekki um þá gjöf að geta verið það mikið ég sjálf að ég þarf ekki að skipta um karakter eftir því hvaða fólki ég hangi með.
Alveg samt komin út fyrir efnið sem ég var að skrifa um...bakka aðeins..já semsagt svona flestum stundum geri ég mér nokkuð vel grein fyrir því hvernig mér líður.
Svo að þegar það koma svona tímabil þar sem ég veit ekki hvernig mér líður og tilfinningarnar mínar rokka frá vanlíðan yfir í ofsakæti þá verð ég alltaf soldið lítil í mér. Mér finnst óþægilegt að vita ekki hvar ég hef sjálfan mig.
Mér finnst rosalega vont að geta ekki skilgreint allt í tætlur og þarf aðeins að læra að sleppa tökunum á því að þurfa að vera Pollyanna í öllum mínum hugsunum...eins og ég er á góðum stað með ótrúlega margt þá stundum líður manni bara illa ..eða er sorgmæddur ..og það er bara alveg ok...það má finna til og það má finnast maður ekki endilega vera besta manneskjan í heimi án þess að fá geðveikan móral yfir að vera ekki "í prógramminu". Því ég þarf stundum bara að heyra mig segja það upphátt að það að vera í prógrammi er ekki að líta vel út á við og vera alltaf með bros á vör..það að vera á góðum stað í lífinu finnst mér miklu meira vera sú sem allir sjá á að eitthvað býr bak við brosið á...erfitt að útskýra samt.
Mér finnst betra að vita af vinkonum mínum vera trúar sjálfri sér og leyfa sér að líða eins og þeim líður hverja stund heldur en að þær séu að blekkja sjálfa sig og reyna að brosa í gegnum tárin...
Ég veit að þessi færsla kemur til með að "lúkka" nett þunglyndisleg en hún er það alls ekki . Hún er meira svona leið fyrir mig til að skrifa til mín það sem ég myndi skrifa til vinkonu ef henni liði eins og mér líður inn á milli. Ég er í verkefni sem ég er ekki almennilega byrjuð á nema bara í hausnum á mér og það krefst þess að ég grafi upp alskyns hluti í hjarta mínu ...og ég held að ég sé byrjuð á því innst inni og þarafleiðandi veit ég ekki hvernig mér líður...bladibladibla...ég steypa eintóma þvælu eflaust og engin skilur hvað ég meina nema ég sjálf.
En stundum þarf bara að koma orðunum frá sér og þá er það frá..
Átti yndislega kvöldstund að horfa á Bruno með nokkkrum svo ótrúlega fallegum og góðum og heillandi manneskjum og svo kósý spjall heima hjá Pálí minni. Fór svo heim þegar mömmu-mórallinn fór að segja til sín...því Flexi minn er heima núna og ég vil vera komin heim á skikkanlegum tíma þegar hann er heima eins og gefur að skilja..

vá hvað ég er tætt inn í mér þegar ég er búin að sitja og reyna eftir fremsta megni að skilja af hverju mér líður svona og hinsegin yfir þessu og hinu..á sumu er bara engin útskýring eða rökstuðningur ..sumt bara er...og ég þarf að læra það...og lifa með því :)

Ætla að fara að sofa í þreytta hausinn minn sem er algjörlega búin að OFhugsa allt í dag...

Kollsterinn....gerir svona "krúttsvip" (híhíhí bara fyrir Pálí & Grímu)

Skrifað 28.7.2009 kl. 22:56 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.7.2009

Mömmuhjartað

Hallú.

Þá er afbrýðissemin úr garð gengin (segir maður ekki svona ef eitthvað er liðið hjá annars ?)
Í morgun keyrði ég litla strákinn minn dásamlega til hinnar móður sinnar... í sakleysi mínu gerði ég ráð fyrir að það að vakna 7 væri alveg mátulegt, svo þegar prinsinn vaknar um  hálf sjö þá tek ég hann upp í til mín og við liggjum saman í hálftíma að kúrast og spjalla...bara ljúft.
Þegar ég gerði ráð fyrir að 45 mínútur væru nóg til að klæða okkur / borða / gefa honum að borða og allt það sem fylgir því að hafa sig til og koma sér út þá steingleymdi ég að reikna með því að sonur minn sem er núna 1 og hálfs árs er komin á nýtt tímabil í lífi sínu. Þetta tímabil heitir ÉG GET SJÁLFUR OG ENGIN MÁ HJÁLPA MÉR . Sem gerir það að verkum að það að klæða sig, borða morgunmat , skipta aftur um föt eftir morgunmat sökum subbuskapar..tekur MUN lengri tíma en 45 mínútur.
Nú svo þegar allt er reddí og maður ætlar að skokka með hann niður stigana út í bíl þá vill hann auðvita líka labba ALVEG SJÁLFUR niður stigann..opna bílinn með lyklinum SJÁLFUR og helst myndi hann vilja keyra bílinn því ég held hann haldi núna að hann sé að verða jafn stór og Alex stóri bróðir sinn...ekki alveg að sjá að þarna er smá munur á.
Þetta gekk nú samt á endanum og við komumst á Grettisgötuna ...en þegar þangað var komið þá var ruslabílinn að hirða tunnurnar í götunni svo að minn maður varð auðvita að fá að fylgjast með því..einstök upplifun að hlusta á lætin , finna fýluna og sjá flottu ruslakallana vinna vinnunna sína :)

Svo að mín var komin í vinnunna sína soldið seint í morgun en samt með bros á vör því ég elska að fylgjast með öllum þessum dásamlega þroska í stóra stráknum mínum sem er samt svo lítill ennþá...hann er svo mikið að uppgötva heiminn og verst að hann er ekki farin að tala neitt að ráði svo maður gerir soldið af því að öskra og verða reiður þegar engin skilur það sem maður er að reyna að segja...

Nú er hann hinsvegar farin til mömmu Lilju og verður þar fram á næsta mánudag...í sumarfríi að hanga með mömmu Lilju og yndislegu systkynum sínum...veit að hann mun hafa það bara yndislegt en litla mamma Kolla á eflaust eftir að fá saknaðarstinginn á hverjum degi. Búin að vera nokkuð dugleg að fylla dagbókina af ýmsum skemmtilegum plönum út þessa viku svo ég hafi örugglega nóg fyrir stafni..það er oft betra þegar manni er illt í mömmuhjartanu.

Í dag er planið að fara að hrissta rassinn beint eftir vinnu og svo bruna til Nalla litla sleikstráks að leika Dyke ...nú svo á morgun er hópferð á Bruno með dónó + Singles...eintóm gleði og hamingja...svo kanski næ ég að fara með litlu gelgjunar mínar í bíó á miðvikudaginn ef allt gengur upp...

Kollsterinn...með nóg fyrir stafni

Skrifað 27.7.2009 kl. 9:33 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.7.2009

Afbrýðissemi

Það er sumar og það er gott að vera til...það koma þó alltaf dagar þar sem skapið á það til að sveiflast aðeins. Ætli það sé líka ekki bara eðlilegt að vera ekki alltaf skínandi glaður allan sólahringinn.
Ég veit samt fátt verra en að vera pirruð, þoli ekki þegar ég get ekki hrisst það af mér eða fundið lausn á pirringnum og bara talað hann út eða reynt að finna rótina og rífa hana upp.
Yfirleitt er auðvita pirringur (gremja ef maður notar leynifélagsorðið) eitthvað sem maður getur í flest öllum tilfellum fundið ástæðu fyrir hjá sjálfum sér. Eitthvað sem maður ákvað í hausnum á sér að yrði svona eða hinsegin en varð það ekki.
Minn pirringur er næstum undantekningalaust óöryggi með umhverfið mitt, fólkið í kringum mig og mína veröld...í dag er ég nokkuð frjáls frá því að verða pirruð yfir litlum hlutum eins og að eitthvað kosti of mikið eða ef einhver svínar fyrir mig í umferðinni.
Minn pirringur kemur helst út ef ég get ekki stjórnað aðstæðum sem mig langar að geta stjórnað...svo eins kjánalega og það hljómar og er eflaust þá get ég líka orðið pirruð þegar ég finn að ég er afbrýðissöm. Ég tel mig almennt ekki vera sérlega afbrýðissama en það kemur fyrir samt, enda er manns bara mannsveskja. Afbrýðissemi er ótrúlega vond tilfinning og mér var einu sinni sagt að ef ég fyndi óþægilega tilfinningu þá ætti ég að finna andstæðu hennar og reyna að finna leið til að komast þangað...

Hver er andstæða Afbrýðissemi ? hmmmm...

Æi já..stundum þarf manni bara að líða eins og manni líður og leyfa því að vera, það þarf ekki alltaf að fara í Pollyönnu leik og brosa sínu skærasta (þó svo að brosið mitt fari reyndar bráðum að vera mikið notað þar sem tannhvítunarefnið sem mín fagra/yndislega/besta Maggý lét mig fá er að gera góða hluti).
Stundum er bara nóg að viðurkenna blessaða tilfinninguna og þá kanski fer hún bara sjálf, segja sjálfum sér að svona sé þetta bara og það sé ekkert sem ég get gert til að laga aðstæðurnar eins og þær eru í dag...sumt þarf bara að fá að vera eins og það er og ég þarf líklegast bara að læra að láta það ekki trufla mig.

Ég veit alveg í hjarta mínu að þessi tilfinning er óþörf
Ég veit alveg að þetta óöryggi sem er að eiga sér stað er óþarft líka

Ég veit svo margt....bara alveg merkilegt hvað hausinn á manni samt nær að blokka það úti þegar svona tilfinning kemur upp.

Kollsterinn..ætlar að lesa yfir og læra

Skrifað 21.7.2009 kl. 8:21 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.7.2009

Hlakki hlakki

Það er annsi margt að hlakka til þessa dagana....

Dæmi :

- Esjan á morgun með snillingssystur minni
- DJ Dick & Dyke sunnudaginn 9.ágúst kl 20
- Flateyjarferð með fallegu fólki
- Sumarbústaðaferð á Snæfellsnesið með erfingjann næstu helgi
- Tónlistarflipp í kvöld með Nalla mínum
- Heimsókn á Nesveginn miðvikudag (þegar það kemur confirm frá Dagnýju ;)
- Tannhvítun í massavís
- 2 vikur eftir af sumarfríi með syninum
- bústaðaferð með börnin hjá mér og Pálí megadóna!

Mikið gaman - Mikil gleði !

Kollsterinn...finnst gaman að hlakka til

Skrifað 20.7.2009 kl. 16:30 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.7.2009

Síminn

Ég verð svo hræðilega glöð þegar íhaldsseminn mín borgar sig...eins og á við um símafyrirtækismál. Ég prufaði að skipta um símafyrirtæki ekki alls fyrir löngu og hálf skammast mín að segja það ..en auðvita prufar maður hlutina þegar það er kreppa og svo framvegis. Ég skipti semsagt frá Símanum sem ég hef verið í viðskiptum hjá frá því ég átti fyrsta símann minn og fór yfir til Tals. Tal stóð sig engan vegin og símreikningurinn minn gerði ýmislegt annað en að lækka eins og lofað hafði verið , ásamt því að ég fékk aukarukkun þegar ég ákvað að hætta hjá þeim og fara aftur yfir á mitt gamla rótgróna Símann...sem pirraði mig það mikið að ég myndi ekki einu sinni hugsa mig um þó Tal biði mér einhvern mega-pakka. Núna sit ég í vinnunni og er búin að vera að baksa mikið við að finna mér tónlist að hlusta á meðan ég geri alskyns verkefni sem ég þarf að sitja lengi við tölvuna í.
Síminn býður í sumar fyrir sína viðskiptavini fría áskrift hjá Tónlist.is . Nú sit ég hér með ALLA þá tónlist sem tónlist.is hefur upp á að bjóða og er að missa mig í gleðinni . Ákkurat núna er ég til dæmis að hlusta á RENT og rifja upp góðar stundir inn í mér í partýum þar sem ég tók mig til og mæmaði öll hlutverkin í hverju lagi fyrir sig.
Í dag mun ég svo gera mér ferð í búð Símans og kaupa mér símtæki hjá þeim jafnvel þó það sé örlítið ódýrara annarsstaðar því ég versla við þá sem þjóna mér best.
Sömu sögu er að segja um Toyota...þeir eru svona fyrirtæki sem ÞJÓNAR sínum viðskiptavinum.

Húrra fyrir Símanum (og Toyota)

Kollsterinn..sáttur viðskiptavinur

Skrifað 17.7.2009 kl. 15:22 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.7.2009

High Class DJ's of Drama

Skoða nánar

15.7.2009

Væmnin

Skoða nánar

11.7.2009

Ferðalangur

Skoða nánar

5.7.2009

Roadtrip

Skoða nánar

2.7.2009

Yndislegt

Skoða nánar

1.7.2009

Góð byrjun

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 196
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 348861
Samtals gestir: 106004
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 02:32:54
eXTReMe Tracker