Kollster
30.6.2009
Fer í fríið
Á morgun hinsvegar vakna ég með syni mínum og við þurfum ekkert að drífa okkur á lappir, getum bara tjillað upp í rúmi að kúra okkur og spjalla saman..fara rólega á fætur og fá okkur hafragraut - lesa bækur - spjalla - jafnvel horfa á Dýrin í Hálsaskógi -fá gott fólk í heimsókn og njóta þess að vera saman ! því á morgun er ég komin í sumarfrí.
Planið er nú samt að ferðast smávegis...langar að fara til Jódísar & Guðrúnar á Egilstaði og eyða smá tíma með þeim þar í sælunni...vona ða hitabylgjan sé komin til að vera þar á bæ...svo við missum ekki af henni :)
Í kvöld er það hjólatúr með litlu siss sem var svo dugleg að drífa sig með stóru siss í ræktina í gær, þarf nú samt aðeins ða herða hana betur til því hún átti það til að slugsa örlítið þessi elska, það tekur mann alltaf ákveðin tíma að komast í gang í svona hreyfingar-málum...þekki það rosalega vel sjálf. En hún Hanna mín er dugleg og ég veit að hún massar þetta með mér ef hana langar til.
Er búin að ganga frá öllum lausum endum hér í vinnunni og finnst því eiginlega bara að ég ætti að mega fara bara...núna sko..ekki bíða þar til stimpilklukkan segir að dagurinn sé búin....dadadadadædædæ...kanski ég reyni samt að gera eitthvað af viti og hætta þessu bloggeríi...er vit í að fara fram og fá sér sódavatn ? já ég held það...
Kollsterinn....andlega "komin" í frí
29.6.2009
Sumar og Sól
Nú eru í gangi plön um að skella sér til Egilsstaða...vá hvað ég verð sjúklega glöð þegar ég kemst loksins til stelpnanna minna ..og litla Magnúsar...búin að sakna þeirra óendanlega mikið...ekki væri nú ónýtt ef eiginkonan mín hún Gríma og strákurinn hennar Úlfurinn ákveddu að skella sér með okkur Flexa...UUUUU já takk !
nú svo framundan er líka fæðing lítillar prinsessu sem ég er orðin meira en lítið spennt að hitta...þann 09.09.09 er nefnilega von á englastelpu sem á tvær svo æðislegar mömmur sem bíða eftir henni ! Það er ekki ónýtt að vera á leiðinni í þennann fallega heim með konur eins og Maggý og Evu að taka á móti sér með hlýju hjörtunum sínum...
Nú svo er auðvita nánasta framtíð líka eins og til dæmis bara heimsókn til Nönu minnar á morgun með litla prinsinn minn, þau fá þá að hittast í fyrsta skipti þó ótrúlegt megi virðast.
Sumarfríið mitt byrjar svo á miðvikudaginn kemur...þá ætlum við Felix Skafti að hafa það huggó..svo er Lilju-helgi frá og með fimmtudeginum og alskonar ótrúlega falleg plön þá helgina..ekki frá því að maður sé farin að telja niður jafnvel...
Geiri æskuvinur minn átti svo 30 ára afmæli í vikunni sem leið og er að hugsa um að bjóða gamla hressa liðinu í bústað yfir eina nótt, almennilegt grill og með-ðí sem yrði ekki leiðinlegt !
Ég er bara búin með 2 þætti í SYTYCD sem þýðir að það er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast því ég er EKKI vön að láta uppáhaldsþáttinn minn aftast í goggunarröðina !
Sumarið er tíminn.
Kollsterinn..með gleði í hjarta og sól í augunum
26.6.2009
MJ
Nú af því að popp"kóngurinn" dó í gær....nú eru allir að selja af því að Jacksoninn er dáin, við erum sko alveg að tala um að bara í dag er ég búin að fá beiðnir um nýja pöntun að utan á 6 titlum sem ætla sér að vera með Special Tribute blað bara fyrir "kónginn".
Nei svona í alvöru talað...ég er engin MJ aðdáandi en eigum við samt ekki að láta manninn kólna áður en búnir eru til peningar úr þessu...fólk þarna úti hefur verið að í alla nótt (eða dag ef tímamismunurinn er þannig) við að finna myndir og búa til greinar um hann til að geta sett blaðið í prentun í dag og verða fyrstir til.
Eins gott að ég var ekki í fríi..þá hefði Ísland ekki fengið auka skammt af öllum þessu fínu blöðum um manninn með skerí skerí andlitið....
Er alveg að sjá fyrir mér fallegu tímaritarekkanna í búðunum okkar fyllast af fésinu á Michael Jackson og það er ekki fögur sjón !
Núna sitja í rekkunum fallegar konur og flottir menn og fínir bílar..en bráðum verður það bara hvíti maðurinn sem allir hötuðu ekki alls fyrir löngu þegar hann var trekk í trekk ákærður fyrir ða misnota börn....nú elskum við hann öll ...töff.
Jæja..best að blogga ekki lengi..mailin halda áfram að hrynja inn hjá mér.
Kollsterinn....ekki alveg að skilja þetta
26.6.2009
Allt að gerast
- Michael Jackson lést í gær
- Barbara Sunshine á afmæli um helgina
- Ég er að fara í sumarfrí eftir helgi
- Það er loksins verið að mála Seilugrandann
- Dónaklúbburinn og Singles er að plana hitting saman
- Ég er komin með "sítt hár"
- Felix er að hætta hjá dagmömmunni
- Pink kom út úr skápnum
- Pink fór aftur inn í skápinn
- Ég er að plana ferð austur að hitta stelpurnar mínar og Manga litla
- 9 búin og 12 eftir af átakinu "eins og áður var"
- Hanna siss er með bústað í Ágúst sem við Felix ætlum að troða okkur í.
Já það er sumar og ekkert nema bara gaman að vera til...hlakka svo til að gera alskonar skemmtilegt í sumarfríinu...okkur Dónos langar svo að finna sumarbústað til að hanga saman í eina helgi ...erum að leita út um allt en svo virðist vera sem allt sé uppbókað á þessum tíma, við erum kanski frekar bjartsýnar að halda að við getum púllað þetta svona á síðustu stundu. En það er samt aldrei að vita...nú ef allt klikkar þá bara búum við til sumarbústað í garðinum hjá Grímu til þess eins að styggja kelluna niðri sem var svo leiðinleg við okkur um daginn !
Nú er bara að klára þennan vinnudag svo ég geti farið inn í helgina eitur hress vitandi að í næstu viku er ég bara að vinna tvo daga og svo tekur við kvolití tími með litla prinsinum.
Kollsterinn....í sumarfíling
25.6.2009
Benni bjútí
Á þessum degi þann 25.júní fyrir nákvæmlega ári síðan var systir mín sem ég elska óendanlega og lít ávallt upp til þó hún sé yngri en ég ...að standa í því að koma út úr sér litlu kraftaverki....Þau Hjalti eignuðust lítin prins á þessum degi fyrir ári síðan og heimurinn er betri í dag fyrir mitt leyti eftir að þessi litli maður fæddist.
Hann er svo mikill sjarmör...model..gleðipinni...karakter og svo er hann LITLI FRÆNDI MINN !
Ég tárast við að rifja upp daginn sem hann kom í heiminn, ég fékk að koma og sjá hann bara alveg glænýjan og ef ALDREI og ég segi ALDREI verið eins stolt og þann dag af neinum í heiminum eins og ég var af þessari litlu fjölskyldu.
Elsku Hamsínan mín ...til lukku með fyrsta afmælið ...sjáumst á eftir og hlökkum mikið mikið til.
Hér eru þau ...þessar elskur ! 
Kollsterinn...á flottasta frændann sem er 1.árs í dag

