Kollster

30.4.2009

Fallega fólkið...

...hringir til að gá hvenær maður fer í sumarfrí
...býr í Keflavík
...eignast þrjá stráka og eina stelpu
...stundar nám á Bifröst
...er alltaf í útlöndum
...vinnur hjá Íslandsbanka
...segir góðar sögur af gyllinæð
...er ólétt
...er duglegt að setja saman skápa úr Ikea
...vinnur í "bransanum"
...er vörustjórar
...selur Herbalife
...notar glimmer í miklu magni
...er að massa ræktina
...pissar í sig af hlátri
...er gafflarar
...notar 123.is
...mistekst að elda hakk og spaggettí
...elskar endalaust og alla leið tilbaka
...skellir á bossa
...sminkar

....er fólkið sem ég þekki.

Kollsterinn....sem sér fallegt fólk allt í kringum sig

Skrifað 30.4.2009 kl. 17:42 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.4.2009

Allt sem ekki má

Eftir að ég bloggaði í gær um að ég væri komin í lestrarpásu þá auðvita var það fyrsta sem mig langaði að gera þegar ég var búin að svæfa..var að sökkva mér ofaní bókina sem ég er að lesa núna, svona er mannveran ótrúlega furðuleg. Ef okkur er bannað eitthvað eða ef eitthvað ekki má ..sem er sossum það sama...þá langar mann mun meira að gera viðkomandi hluti.
Hanna systir til dæmis fékk einu sinni svona kristalla í eyrun (reyndar hefur það gerst oftar en það breytir ekki sögunni) ..allavega...í öllu þessu veseni þá komu nokkrir dagar þar sem það eina sem hún mátti EKKI gera var að fara í sund. Hanna mín er EKKERT hrifin af sundi og fer samasem ALDREI í sund...en þessa þrjá daga var hún viðþolslaus því hana langað svo mikið að dýfa sér ofaní Seltjarnarneslaugina. 
Felix Skafti sonur minn...hann er sérstaklega hrifin af því að gera það sem ekki má , eins og eflaust flestir guttar og dömur á hans aldri . Hann til dæmis hleypur inn í eldhús minnst einu sinni á dag....bíður þar til einhver kemur að gá hvað hann er að gera , og þegar einhver er komin í sjónlínu þá byrjar hann að opna alla skápana sem ekki má opna. Prakkari eins og mamma sín ;) 
Það hafa örugglega flestir frá einhverju svipuðu skemmtilegu að segja...svo endilega deilið því með mér hér í kommentin..mikið hefði ég nú gaman af því :) 

Kollsterinn...bíður eftir frábærum sögum frá ykkur 

Skrifað 29.4.2009 kl. 21:10 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.4.2009

Þriðjudagsþreytan

Þriðjudagar eru skrýtnir dagar..vikan er einhvernvegin svona næstum því hálfnuð en samt ekki komið nógu nálægt helginni til að geta farið að hlakka til þess að hanga með syni og vinum og svona...
Þriðjudagur finnst mér vera svona hlutlausi dagurinn í vikunni..erfitt að útskýra samt. 
Miðvikudagur er þó mun skemmtilegri...þá er vikan nákvæmlega hálfnuð og svo margt að baki..og líka margt framundan....á morgun er miðvikudagur...þá er líka ræktin hjá minni (tek það samt fram að það er ekki einu dagurinn í ræktinni) og á miðvikudögum einhverrra hluta vegna kem ég ótrúlega mörgu í verk. 
Já ég er furðuleg mannvera...það verður ekki tekið frá mér.
Hef nú ekki beint margt að tala um...er í smá bóka-pásu...finn alltaf allt í einu að ég er þarf að hvíla lestrarhestinn í mér. Það kemur alltaf svona tími inn á milli þar sem ég hef ekki eirð í mér til að lesa og þá er ég hrikalega lengi með hverja bók...sem er ekki eitthvað vanalegt hjá mér.
Á morgun er semsagt hinn margumtalaði miðvikudagur og þessa vikuna er hann töluvert betri en allir aðrir miðvikudagar því þetta er næstum því svona miffudagur...svona bland af miðvikudegi og fimmtudegi....því á föstudaginn er nefnilega 1.maí og allir í fríi.
Ég ætla sko að vera massa dugleg að finna eitthvað skemmtilegt fyrir okkur Felix að gera..hanga með fallegu , skemmtilegu vinum okkar og fjölskydlu. Gamla settið er reyndar að fljúga til úglanda svo þau fá ekki að njóta samverunnar með okkur komandi helgi ...en við finnum okkur nú aldeilis fullt annað skemmtilegt að gera.
...já ég flakka bara úr einu í annað og svo aftur yfir í eitt. 
Best ég hangi aðeins á msn og fari svo bara í háttin...minn maður er ekki beint að sofa alla nóttina þessa dagana (vá hvað þetta hljómaði illa) 
Felixinn er nefnilega soldið kvefaður og vaknar annsi oft við hóstann í sjálfum sér..og þá vaknar mamman auðvita líka til að hugga strákinn sinn..svo við erum ekki að fá sérlegan góðan svefn. 
Sem þýðir að ég ætti eiginlega að fara fyrr í háttin heldur en ég er vön...sem væri þá NÚNA..því ég er vön að fara í háttin um tíu :) 
Jæja..best að hætta þessu bulli áður en ég fæ ruglinu for real.

Kollsterinn...hlakkar svo til 10.maí (er þetta rétt orðað Gríma ? ) 

Skrifað 28.4.2009 kl. 21:33 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.4.2009

Húsnæðismálin

Nú líður að sumri og maður fer ósjálfrátt að skipuleggja sig fram í tímann. Sem er að mörgu leyti af hinu góða því gott er jú að vita hvað sumarið ber í skauti sér. En þó líka slæmt fyrir konu eins og mig sem er haldin strax-veikinni á háu stigi. Í gærkvöld þá nefndi vinkona mín við mig hugmynd sem mér fannst alls ekki galin. Við ákváðum að hugsa málið og skoða þetta á morgun (sem er í dag) ..nú er þetta dottið uppfyrir og ég er í mestu vandræðum með hvað ég skuli ákveða næst. 
Ég get ekki beint sagt að ég sé húsnæðislaus því það er ég sossum ekki...en ég veit samt ekkert hvar ég ætla mér að búa með Felixinn minn. Þetta snýst allt um að íbúðin mín leigist út ...nú ef hún gerir það ekki þá kanski er bara lausnin sú að ég búi þar þangað til hún selst..en þá yrði ég líklegast að leigja út eitt herbergi...sem er ekkert auðvelt ...því það er ekkert grín að velja þann sem ég myndi meika að hafa inn á heimilinu mínu ALLA daga. Væri eflaust auðveldara að skoða meðleigjanda ef ég ætti ekki Felix Skafta því það skiptir mig jú mestu máli að honum líði vel heima hjá sér.
Ég er allavega að skoða þetta allt saman núna og næstu dagar munu líklega verða nett erfiðir því ég þoli ekki að vera í óvissu....kanski ég leggi þetta undir fína klúbbinn minn...stelpur...hvað segið þið um að hittast á msn í kvöld og ræða þetta mál ? 
Núna er ég ða hugsa um að setjast niður með yndislegu móður minni því hún kann að skoða málin vel og vandlega, nú svo kemur pabbinn heim á eftir og þá verður þetta skoðað enn betur og enn vandlegar af okkur öllum saman.
Annars er gott af okkur að frétta..ég bókstaflega ELSKA nýju vinnunna mína og er algjörlega ða hlakka til að halda áfram að mæta til vinnu með bros á vör. 
Það er algerlega ómetanlegt að veraí vinnu sem maður elskar að mæta til ...sérstaklega á tímum sem þessum þegar fólk prísar sig sæla bara fyrir að halda vinnunni sinni. 
Ég þakka almættinu fyrir allt í mínu lífi....:) 
Held ég skelli mér í tölvuna mína og flokki myndir eða fari jafnvel niður á Seilugranda að taka aðeins til í geymslunni..hvoru tveggja hlutir sem róa hugann í mínu tilfelli :) 

Kollsterinn...í óvissu varðandi húsnæðismál

Skrifað 28.4.2009 kl. 20:09 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.4.2009

Örblogg

Allt í einu þegar ég er sest hér niður til að skjóta inn nokkrum línum þá sé ég að klukkan er orðin sex svo sonur minn er væntanlegur inn um dyrnar mjög fljótlega. Þarafleiðandi gerði ég ráð fyrir að þetta yrði mjög stutt blogg.
Langaði bara að þakka Maggý minni hér á blogginu fyrir fallega svarta pokann sem ég hellti mér oní í gær...þökk sé þér þá fæ ég tilhlökkunartitring þegar ég hugsa út í það hverju ég ætla ða klæðast í vinnunna hvern dag :) 
Takk elskan ..og takk auðvita Eva líka :) hihi

Kollsterinn....sem heitir GB stundum :) 

Skrifað 27.4.2009 kl. 18:00 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.4.2009

It´s a girl !

Skoða nánar

27.4.2009

Hórurnar fjórar

Skoða nánar

26.4.2009

Facebook vs. Bloggið

Skoða nánar

21.4.2009

Nóg að gera

Skoða nánar

15.4.2009

Hús Moskunnar

Skoða nánar

11.4.2009

Páskablogg

Skoða nánar

5.4.2009

Kona fer til læknis

Skoða nánar

1.4.2009

Veikindi

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 169
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 223
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 349678
Samtals gestir: 106234
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:23:32
eXTReMe Tracker