Kollster
29.3.2009
Tilræðið
Maðurinn sem lendir í þessu fer í gegnum alskyns tegundir af sjálfsskoðun og reynir að finna svör við öllu því sem hausinn á honum er endalaust að spyrja hann að. Það er erfitt að lýsa bókinni öðruvísi en svo að hún er góð. Hún ríghélt mér allan tímann þrátt fyrir að vera ekki spennusaga. Hún er svo bara búin áður en maður veit af og af því að ég er svo gamaldsags og væmin oft á tíðum þá hefði ég viljað vita miklu meira en ég fékk að vita í endann án þess að ég sé að gefa neitt upp.
En svona til að summa það saman þá fannst mér bókin góð..hún sýnir margar hliðar á mjög vafasömu máli ..hún hafið sterk áhrif á mig ég ég myndi pottþétt lesa fleiri bækur eftir þennan höfund ef þær eru þá til og yrðu þýddar :)
Tilræðið er góð bók, virkilega góð bók sem gott (vil ekki segja gaman beint) er að lesa.
Kollsterinn...sátt
Höf : Yasmina Khadra
Útg : JPV
24.3.2009
Skilaboðaskjóðan
Auður Rán....takk fyrir allt svo gamalt og falleg og gott
Birna.takk fyrir stutt en yndisleg og falleg kynni. Hlakka til að kynnast þér betur.
Dagmar...takk fyrir frábært spjall upp á Laugavegi um helgina
Dagný lögga...takk fyrir að vera frábær fyrirmynd og einstök manneskja
Dagný Eyjólfs....takk fyrir alla hjálpina alltaf og fallegu vináttuna
Díana...takk óendanlega fyrir hjálpina í leynifélaginu og alla væntumþyggjuna í minn garð.
Diljá...takk fyrir kósýkvöldin..endalaust orðin og tryggu fallegu vináttuna okkar
Döggin....takk fyrir yndislegan dag um daginn saman...og áframhaldandi góðar stundir
Erna Rán..takk fyrir að gera plön með mér sem við ÆTLUM einn daginn að standa við saman :) og takk fyrir gleðigjafana þína og þig sjálfa
Eva María..takk fyrir skilninginn og takk fyrir að vera litla mommsan mín
Eva Björk....takk fyrir lengstu verslunarferð sem ég hef farið í um mína ævi og takk fyrir ALLT
Felix Skafti...takk fyrir að vera ljósið mitt í lífinu ! Takk fyrir að hafa gefið mér það kraftaverk sem þú ert !
Gríma ....takk fyrir það sem okkur þykir svo dýrmætt...að geta alltaf treyst hvor annarri og geta elskað alveg skilyrðislaust.
Guðbjörg...takk fyrir að vera góður vinur og góður leynivinur líka
Gunnsa...takk fyrir góða stjúpu- vináttu og góð samskipti í gegnum árin
Hanna siss...takk fyrir svo ótal margt og mikið en fyrst og fremst fyrir að vera sú sem þú ert.
Hjalti bro....takk fyrir að vera uppáhaldsbróðirinn og uppáhaldsfrændinn líka !
Hrafnhildur...takk fyrir að vera yndisleg sponsía sem minnir mig á leynifélagið mitt og hjálpar mér í batanum mínum
Inga Hrönn...takk fyrir mailið og símtölin...verðum að hittast sem fyrst svo ég geti knúsað þig
Inga María...takk fyrir að vera fyndnasta og skemmtilegast konan sem ég þekki
Íris Björk...takk fyrir að vera svona góð við mig og Felix Skafta
Jóhanna...takk fyrir að kalla mig ljúfan, þykir alltaf jafn vænt um það bara af því að þetta ert þú !
Jódís...takk fyrir að koma beint í bæinn að hjálpa mér...takk fyrir að hringja í mig daglega..takk fyrir að vera mömmur mínar þegar ég þurfti mest á því að halda
Katrín Ósk ...takk fyrir stutt spjall á milli bíla um daginn , svo gott að sjá þig aðeins
Kidda rokk...takk fyrir heimsóknarhitting og dans við söngvaborg um daginn...það er svo fallegt að geta deilt gleðinni með börnunum okkar saman
Laufey...takk fyrir að vera vinur minn, takk fyrir tímann okkar saman á Bene, þykir svo vænt um þig.
Lilja...takk fyrir svo margt sem ég á erfitt með að setja í orð í dag en get það vonandi seinna.
Lilja Huld...takk fyrir að vera stórkostlegi persónuleikinn sem þú ert, ég elska þig nákvæmlega eins og þú ert og ekkert öðruvísi.
Maggý mín..takk fyrir hjólatúrinn , takk fyrir allt allt allt sem þú gefur mér með vináttunni þinni
Mamma mín...takk fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig og vera sú einstaka kona sem þú ert
Naglinn..takk fyrir mailið elskan og takk fyrir allar gömlu og góðu stundirnar
Ninna...takk fyrir póst-spjallið alltaf ..það er gaman að vera í vinnunni
Ösp...takk fyrir öll fallegu orðin þín og takk fyrir að vera þú
Pabbi minn...takk fyrir að vera sá klettur sem þú ert í mínu lífi
Pálí...takk fyrir að vera besti vinur minn og besti leynivinur minn líka..takk fyrir gleðigjafann sem þú fæddir og takk fyrir að hlægja alltaf að mér og með mér. Takk fyrir þig
Puff mín..takk fyrir svo margt gamalt og fallegt og gott en líka takk fyrir svo margt fallegt í dag..takk fyrir að fá mig ALLTAF til að hlægja. Það er sko bara til ein Puff og ég elska hana.
Raggý...takk fyrir að vera alltaf dugleg að fylgjast með mér í netheimum.
Ragnar...takk fyrir kósýkvöldið um daginn og takk fyrir gömlu Ally kósýkvöldin
Selma frænka...takk fyrir matarboðið um daginn og takk fyrir að vera frábær frænka !
Svansa ...takk fyrir djammið um daginn og takk fyrir kommentið með barborðið ..haahahah þú ert frábær
Tinna Rut...takk fyrir að vera ekki bara frábær frænka heldur líka frábær einkaþjálfari sem peppar mig upp , hlakka til að eyða meiri tíma með þér.
Una mín..takk fyrir að kenna mér svo margt í lífinu, takk fyrir að vera yndislega manneskjan sem þú ert, takk fyrir fallegu orðin þín til mín.
Kollsterinn...mjög svo meyr eftir þennan lista
24.3.2009
Takk fyrir ykkur
Felix Skafti - Mamma - Pabbi - Hanna - Hjalti - Íris - Jódís - Puff - Magnús Bjartur - Gríma -Úlfur Kári - Maggý - Eva Björk - Eva María - Birna - Una - Inga María - Pálí - Brynhildur Nadía - Díana
Takk fyrir undanfarin mánuð..hefði ég ekki haft ykkur þá veit ég ekki hvar ég væri stödd í dag...nokkuð ljóst að það væri ekki góður staður
Kollsterinn..sem er eflaust að gleyma einhverjum en vonar að engin taki það nærri sér...vantaði bara að koma fram þakklæti mínu.
23.3.2009
Karlar sem hata konur
Hún er nokkuð góð þessi bók...en alltof margt í henni sem ég hljóp eiginlega vísvitandi yfir því það var að þreyta mig alveg óendanlega. Ég er lítið fyrir bækur sem eyða mörgum mörgum blaðsíðum í fjölskyldutölur og sögu langt tilbaka. Sagan sjálf fyrir mér byrjar í rauninni ekki fyrr en komið er langt yfir miðja bókina. Samstarfskona mín gat hinsvegar ekki lagt hana frá sér og margir aðrir sem ég hef talað við sögðu það sama.
Ég get þó ekki sagt það, en ég get nú samt sagt að ég lagði hana ekki upp í hillu lengur en einn eða tvo daga og hélt svo áfram lestrinum.
Hún situr eftir í manni..svo mikið er víst...sagan leysist í rauninni vel áður en bókin er að enda komin en samt heldur maður áfram að lesa, yfirleitt þegar það er svona langur eftirmáli þá læt ég bara gott heita og loka bókinni...en mig langaði að vita hvað varð um aðalsögupersónurnar eftir að öll spennan var á enda. Og ég sé ekki eftir því...þetta var góð lesning þegar á botninn er hvolft og ég sé engan vegin eftir að hafa haldið þetta út. En auðvita er alltaf skrýtið að mæla með bók sem ég þurfti að minna mig á að lesa dag eftir dag til að geta klárað hana.
Já....ég er allavega fegin að ég er búin með hana og get snúið mér að þeirri næstu. Hvort ég lesi næstu bók eftir sama höfund þori ég ekki að segja til um...gott ef ég geri það ekki bara.
Kollsterinn...á báðum áttum
Höf : Stieg Larson
Útg : Bjartur
22.3.2009
Algjör dama
Ég eyddi megninu af deginum í Kringlunni og Smáralind..þræddi búðirnar alveg eins og ég ætti lífið að leysa...svo núna er ég heima með maska í andlitinu og maskinn er hrærð eggjahvíta , þar sem Maggý mín lofar að þetta svínvirki.
Svo núna sit ég með krem á kroppinum og eggjahvítu í framan ótrúlega mikið að undirbúa mig fyrir árshátíðina næstu helgi :)
Nú svo gerði ég eitthvað fyrir sjálfa mig líka á andlegu hliðinni í dag því ég hitti Díönu mína og við fórum aðeins yfir verkefni í leynifélaginu....svo fékk ég líka strákinn minn heim í dag :)
Þetta var og er búið að vera yndislegur dagur í alla staði....:) og það með búðarrápi...að hugsa sér :)
Knús á liðið
Kollsterinn....vantar bara gúrkur yfir augun og þá er allt fullkomið !

