Kollster

22.2.2009

Sjötta skotmarkið

Í dag lauk ég við nýjustu þýddu bókina eftir James Patterson. Alltaf þegar ný bók eftir þennan höfund kemur út og þá sérstaklega í þessari ákveðnu seríu þá hleyp ég í búðina ! Þessi sería er um nokkrar vinkonur sem allar vinna við ólík störf en þau tengjast samt sem áður öll undarlega saman. Þær eru í kvennamorðklúbb saman og hjálpa hvor annarri að leysa ýmis morðmál.
Þessi bók er engu síðri en hinar sem á undan henni komu, hún ríghélt mér allan tímann. Í dag á ég ekki auðvelt með að finna mér bækur sem halda mér því hausinn á mér er fljótur að reika út úr bókinni og fara að velta fyrir sér því sem er að gerast í mínu lífi í dag ...sem er ekki lítið. En þessi bók náði að kippa mér út úr raunveruleikanum mínum....sem er gott og nauðsynlegt af og til.
Fyrir þá sem eru hrifnir af krimmum þá er alveg málið að byrja á byrjuninni á þessari seríu og lesa alla leið að nýjustu bókinni . Nú ef maður nennir ekki í þann leikinn þá má líka alveg lesa þær einar og sér...hver og ein bók er alveg sjálfstæð og ekkert nauðsynlegt hafa lesið þær sem koma á undan.
Þessi ákveðna bók fjallar um mann sem fremur morð um borð á ferju.....inn í það fléttast önnur saga um unga stúlku sem er rænt á leiðinni út í garð með fóstrunni sinni. Nú svo er mjög svo geðveikur maður sem gengur berkserksgang um byggingu sem ein af vinkonunum býr í. Já það er margt að gerast í þessari sögu en hún heldur manni samt sem áður alveg á tánum.
Ég mæli eindregið með þessari bók og bíð spennt eftir þeirri næstu. Verst að ég var ekki nema örfáa daga með þessa...hefði alveg viljað að hún væri lengri svo ég gæti hæglega dottið út úr mínum heimi á kvöldin þegar prinsinn er farin að sofa og farið inn í heim einhvers annars.

p.s. lánaði yndislegu ömmu minni fyrstu bókina um daginn og hún var svo spennt yfir þessu að hún er núna komin í hendann á seríunni !



Kollsterinn...alltaf dyggur aðdáandi kvennamorðklúbbsins

Skrifað 22.2.2009 kl. 16:56 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.2.2009

Ég og Jóhanna

Ég veit að bloggið mitt hefur legið í dvala í dágóðan tíma...og það eru engar merkilegar ástæður fyrir því annað en að ég hef bara haft lítið að segja. Núna hef ég hinsvegar fullt að segja en ekkert af því finnst mér eiga heima hér á veraldarvefnum. Svo ég bið ykkur elsku fallegu lesendur um að sýna mér biðlund. Ég mun koma aftur stærri og sterkari þegar sá tími kemur...ég segi bara eins og lessu-vinkona mín hún Jóhanna..."minn tími mun koma"
og hennar tími kom aldeilis svo minn mun vonandi gera það líka :)

Kollsterinn...kveður tímabundið

Skrifað 12.2.2009 kl. 13:13 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.2.2009

Skot út í bláinn

Stundum langar manni að gera hluti sem maður VEIT fyrir víst að munu ekki gera neitt nema gera hlutina verri sem eru slæmir fyrir. Stundum langar manni að gleyma öllu sem heitir skynsemi og bara láta vitleysuna í sér ráða för...
Ég hef sem betur fer leynifélagið til að rétta mig af þegar mig langar að gera hluti sem ég á eftir að sjá eftir...

En út í allt aðra sálma...Felixinn minn er búin að vera svo veikur svo mikið og lengi og ég maður er alltaf að halda að allt sé loksins liðið hjá en þá kemur í ljós enn ein veikindin hjá honum...núna er hann með eyrnabólgu litla greyið og komin á fjórða pensilínskammtinn sinn á stuttum tíma...ekki gaman en svona er þetta bara. Vonandi kemst hann til dagmömmunnar næstkomandi miðvikudag og þá get ég farið að vinna fullan vinnudag enda nóg að gera í los vinnos. 

En já..hef ekki mikið að segja en fann hjá mér þörf til að blogga smá og láta allt annað eiga sig á meðan :) 

Kollsterinn...ætlar að sleppa því að skjóta, því skotið myndi á endanum hitta í mig sjálfa !

Skrifað 9.2.2009 kl. 21:11 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.2.2009

L - orðið

Nú situr konan límd við skjáinn..það er að segja sjónvarpsskjáinn þar sem ég var svo góð að fá hjá Puff minni nýjustu seríuna af L-word með heyrnalausu konunni í aðalhlutverki...
Málið er hinsvegar að ég NEITA að horfa á þessa þætti, mér finnast þeir sýna asnalega mynd af lesbíum og fyrst og fremst finnst mér bara erfitt að horfa á þætti þar sem allir eru vondir við alla. Allir halda fram hjá öllum og allir hafa verið með öllum. Engin sambönd í þættinum endast og ég neita að horfa á svona vitleysu.
En konan hefur gaman af þessu og það er líka bara gott mál, við getum ekki öll fílað það sama og ég elska Lilju eins og hún er ...jafnvel þó hún elski L-orðið og gott ef ég elska hana ekki bara meira fyrir það að horfa á svona vitleysu og vera facebókarfíkill. hihihih

Annars lítið nýtt að frétta..Felixinn er mjög duglegur í að styrkja í sér ónæmiskerfið með því að vera veikur að minnsta kosti alltaf tvær vikur í hverjum mánuði.

Kollsterinn..ætlar að skjótast til siss meðan Lil horfir á Lessu-maulið

Skrifað 3.2.2009 kl. 20:25 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349404
Samtals gestir: 106150
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:08:36
eXTReMe Tracker