Kollster

29.12.2008

Jólin

Jæja...þá er jólahátíðinni svona hérumbil lokið, allt fer að detta í fastar skorður og fyrir steingeit eins og mig þá er það ekki slæmt. Mér finnst voðalega gott að vita til þess að fljótlega byrji börnin í skólanum, Felix reyndar hjá dagmömmunni og við tjellingarnar förum að vinna fyrir fjölskyldunni. Jólin eru samt sem áður ´buin að vera voðalega fín, temmilegur fjöldi af jólaboðum og mikið hangið heima á náttfötunum þess á milli. Felix Skafti var mun hrifnar af umbúðunum heldur en innihaldinu í pökkunum á aðfangadag. Konan eldaði dýrindis hamborgarahrygg og allir rosalega glaðir með kvöldið.
Á annan í jólum var svo hangiketsveisla hjá ma og pa á aflagrandanum og þar var tekið líka vel til matarins eins og vera ber. Gísli frændi er á landinu og náði að fagna jólum með okkur fjölskyldunni sinni...sem er gaman.

var búin að skrifa helling í viðbót en það datt út svo ég nenni engan vegin að skrifa það allt aftur :(

En þið getið skoðað jólin hjá okkur í myndaalbúminu hér ´síðunni undir Desember :)

Kollsterinn...nennir ekki að byrja að skrifa upp á nýtt

Skrifað 29.12.2008 kl. 11:06 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.12.2008

Hressari

Halló fallega fólk.

Dagurinn í gær var góður, erfiður en góður samt svona þegar á heildina er litið. Dagurinn í dag er allt í allt bara mjög góður. Vaknaði með Felix Skafta klukkan 10 , mjög svo þakklát erfingjanum fyrir að leyfa mér að sofa svona lengi á laugardegi :)
Fórum svo um hádegi í heimsókn til foreldra minna eða Ömmu Söru & afa Skafta þar sem Felix Skafta elskar að vera og vill helst ekki fara . Núna rétt áðan komum við svo heim saman og hann sofnaði um leið og ég lagði hann niður alveg búin á því eftir skemmtilega heimsókn á aflagrandanum.
Ég er búin að sitja hér við tölvuna að kaupa mér lög með Baggalút inn á tónlist.is og sit hér brosandi að hlusa á þessa mjög svo skemmtilegu hljómsveit. Það koma vonandi jól er algjörlega uppáhalds lagið mitt núna og ég hlusta á það á repeat í þessum töluðu ! :)

Nú er víst komin helgi og mjög svo stutt til jóla, ég er búin að taka mér frí milli jóla og nýárs og ætla mér að nota þann tíma í að knúsa fjölskyldu og vini í góðum fíling.

Já það er semsagt bara allt fínt að frétta og ég er að hugsa um að laga aðeins til hér heima því planið hjá mér er að sækja jólatréð niður í geymslu og leyfa svo Lilju minni og Elísabetu að skreyta það á morgun (ef það er ekki hallærislegt að skreyta tré það er að segja)

Kollsterinn..í góðum gír

Skrifað 20.12.2008 kl. 14:53 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.12.2008

Beiðni

Ég er orðin rosalega þreytt á að svara spurningum, ég veit að allir vilja rosalega vel og eru allir að vilja gerðir að hjálpa en ég bara get ekki svarað símanum mínum allan daginn. Elsku fallega fallega fallega fallega fólkið mitt, sms væri æðislegt svo ég geti bara svarað þegar ég er ekki að vinna því ég er nógu afundin í vinnunni og er ekki að ná að gera mikið meðan ég er að vinna , ég get ekki stillt símann minn á silent því það eru stundum símtöl varðandi það sem er í gangi og þeim verð ég að geta svarað um leið og þau koma upp. Þess vegna langar mig að biðja ykkur fallega fólkið mitt um að senda mér bara sms og ég mun sinna þeim um leið og mér gefst tími til.
Ég er þreytt á sálinni og er að gera allt sem í mínu valdi stendur til að hjálpa barninu okkar ða ganga í gegnum það sem hún er að ganga í gegnum .....það á eflaust við um okkur öll foreldrana en þar sem ég hef þennan vettfang þá langar mig að nota hann. Svo er mail líka yndisleg leið ef þið eruð með margar spurningar varðandi þetta allt saman ( erfiðust finnst mér símtölin sem eru bara á eina leið "hvar var hún?" hvað verður gert? eruð þið búnar að prufa að???" og allt í þessa átt. Þessu er auðveldara að svara á maili öllu saman því ég er ekki mikil "spjall" símakona...

Knús til ykkar allra

Kollsterinn..þreytt

Skrifað 19.12.2008 kl. 14:49 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.12.2008

Vanmáttur

Lífið er skrýtið þessa dagana. Ég er nokkuð tóm og hef lítið að segja eða skrifa um. Það hefur farið lítið fyrir lestrinum hjá mér undanfarið þó ég sökkvi mér inn á milli niður í bókina sem ég er að lesa bara til að komast aðeins burtu frá raunveruleikanum.
Ég bið englana mína á hverjum degi að hjálpa mér að taka réttar og góðar ákvarðanir og reyna að gera það í fullkominni ást til barnanna minna.
Ég var að tala um það við tvær konur ekki alls fyrir löngu að maður heldur alltaf að ekkert hendi sig og sitt fólk ..svo einhvernvegin einn daginn þá gerist það..lífið gerist og það beint fyrir framan augun á manni.
Stundum vildi ég óska að ég gæti sett sjálfa mig í staðinn fyrir einhvern annann og þá sérstaklega þegar börnin mín eiga hlut að máli. Ég vildi óska þess að ég myndi meiða mig í staðinn fyrir þau , að þau þyrftu aldrei að læra af reynslunni nema bara með því að sjá hlutina..ekki þurfa að meiða sig illa til að sjá hvað er öruggt og hvað ekki.
Já lífið er hreint ekki alltaf dans á rósum en það er svo sannarlega þess virði að lifa því og ég mun halda áfram að biðja englana að dansa með mér í gegnum rósirnar...nú ef ég sting mig á þyrnunum þá gróa sárin.
Ég veit að ég tala tungum en það verður bara að hafa það eins og staðan er í dag.
Bið að heilsa ykkur öllum í bili og sendi litla engla heim til ykkar að vaka yfir ykkur og börnunum ykkar.

Kollsterinn...vanmáttug

Skrifað 11.12.2008 kl. 21:24 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.12.2008

Fundin

Barnið er fundið og búið að gera viðeigandi ráðstafanir eins vel og hægt er. Nú er Lilja mín fagra að leggja sig og ég er að hugsa um að reyna að koma ofaní mig einhverjum mat.
Takk fyrir hjálpina allir.

Kollsterinn..fegin að hún er fundin

Skrifað 9.12.2008 kl. 13:57 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.12.2008

Strokin

Skoða nánar

8.12.2008

Fyrstu skrefin og skírnin

Skoða nánar

4.12.2008

Ör-frétt

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 196
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 348861
Samtals gestir: 106004
Tölur uppfærðar: 18.3.2010 02:32:54
eXTReMe Tracker