Kollster
28.11.2008
Ljósaskipti
Ég var að loka bókinni Ljósaskipti og ég sit á öndinni.
-Ég borðaði næstum ekkert af kræsingunum sem í boði voru í vinnunni í morgun af því að ég vildi frekar ná að komast áfram í bókinni.
-Ég vonaðist eftir rauðu ljósi alla leiðina í vinnuna til þess að geta lesið þó ekki væri nema hálfa blaðsíðu.
-Ég þakkaði guði mínum fyrir að starfsmaðurinn á Gæðabón var seinn í vinnunna í morgun og ég hafði afsökun fyrir að lesa heilan kafla á meðan ég beið eftir honum.
-Ég hefði verið tilbúin að fórna öllum matartímanum mínum í lestur ef ég hefði ekki náð að klára í kaffinu.
Þetta er ein sú rosalegasta bók sem ég hef lengi lesið...hún var góð strax frá fyrstu blaðsíðu. Inn í hálfa bók sirka les maður bara í rólegheitum og er ánægður með allt sem gerist. Svo allt í einu , alveg manni að óvörum er maður komin inn í rosalega spennu-hrollvekju-mega sega sögu og getur ekki lagt frá sér bókina frá þeirri blaðsíðu sem spennan byrjar og fram til lokaorðsins. Þannig var þetta allavega í mínu tilfelli.
Ég fór á bókakynningu í vikunni þar sem þessi bók var kynnt sem Unglingabók fyrir allan aldur en ég myndi segja að þetta væri bók fyrir allan aldur og bæði kyn...sama hvort viðkomandi er unglingur eða ekki. Þessi bók getur ríghaldið ungling og ömmu minni líka ef því er að skipta (enda amma mín mikill lestrarhestur)
Ég myndi líka mælast með því ef þú ætlar að lesa þessa bók, að þú stílir lesturinn inn á helgi svo þú getir lesið án þess að vera trufluð/truflaður, það var reyndar alveg líka partur af spennunni að þurfa að leggja bókina frá mér á meðan ég var að vinna og svo þegar ég fór í kaffi þá hlógu stelpurnar að mér því svipbrigðin voru mikil í andlitinu á mér meðan ég beið í ofvæni eftir að vita hvað myndi gerast næst.
Bókin fjallar um unga stelpu sem ákveður að flytjast tímabundið í smábæ þar sem pabbi hennar býr, hún er ósátt við að flytja en lætur sig hafa það..hún þolir ekki þennan smábæ og neitt sem honum tengist..þar til hún hittir Edward...þá breytist allt. Ég vil alls ekki segja meira um innihaldið og hefði í rauninni sjálf ekki viljað vita neitt áður en ég byrjaði að lesa.
Nú er hádegishlé í vinnunni og ég sit hér að skrifa um þessa bók því ég vil koma því frá mér strax hversu ánægð ég er með hana. Mér finnst það algjörlega SKYLDA mín að segja ykkur hvað mér fannst þessi bók góð , sérstaklega þar sem það eru til 3 aðrar bækur í þessari seríu og ég vil endilega gera ALLT sem ég get til að verða að því að Forlagið þýði þær líka J
Er líka nokkuð viss um að þegar ÞÚ ert búin að lesa þessa bók þá eigiru eftir að vilja fá hinar líka svo ef þú fílar hana jafn vel og ég þá hvet ég þig til að skrifa smá umsögn um hana inn á Forlagid.is eða bara inn á Eymundsson.is
Kollsterinn...sem vill meira þýtt eftir Stephenie Meyer
Höf : Stephenie Meyer
Útg : JPV
24.11.2008
Upp í hillu aftur
Nafn mitt er rauður e.Orphan Pamuk
Leitin að barninu í gjánni e.Guðberg Bergsson
Griðastaður e. Raymond Khoury
Vetrarsól e. Auði Jónsdóttur
þetta er svona smá brot :) nú ef þið hafið áhuga á að fræðast um bók sem hvorki er á þessum lista né á lista yfir góðu bækurnar hér til hliðar þá bara sendið komment og ég svara um hæl.
22.11.2008
Látið mig vita
Dagný mín kom með það komment hér aðeins neðar að gott væri ef ég gæti skellti inn lista yfir þær bækur sem hafa hafnað upp í hillu aftur hjá mér...eru fleiri sem vilja sjá þann lista því ef svo er ekki þá maila ég honum auðvita bara á Dagnýju. ???
Nú ef þið viljið sjá listann þá segið mér endilega í leiðinni hvort það eigi bara að vera listi yfir jólabækurnar í ár eða bara listi yfir bækur almennt ???
Kollsterinn...sem er þakklát að fá annað að hugsa um heldur en líðandi stund.
22.11.2008
Vargurinn
Hún er önnur bókin hans Jóns Halls (ef maður beygir það svona) og hin bókin var Krosstré sem er enn í miklu uppáhaldi hjá mér
Þessi bók fjallar um brennuvarg og gerist út á landi, að mig minnir Seyðisfirði.
Erfitt að gefa upp innihaldið án þess ða skemma neitt svo ég sleppi því. Þetta var góður krimmi og ég er orðin annsi hrifin af þessum höfundi.
Ég reyndar byrjaði á henni og lagði hana svo frá mér þegar önnur bók kom út sem ég var svo spennt fyrir en hún rataði ekki upp í hillu aftur heldur beið mín á náttborðinu eftir að ég lauk við hina bókina.
Þegar ég svo byrjaði að lesa þessa aftur þangað sem ég var komin þá tók ég eiginlega augun ekki af henni...ég las meðan ég beið eftir að vera sótt á morgnanna í vinnunna, ég las í kaffitímanum mínum og ég las á leiðinni á salernið í vinnunni, og auðvita á salerninu líka þó fæstir vilji kanski vita um það :)
Já bókin var góð og hélt mér vel, flott spennusaga sem gæti vel átt sér stað í raunveruleikanum ef út í það er farið.
Ég er mjög sátt við þessa bók.
Kollsterinn...veit ekki alveg hvað hún á að lesa næst.
Höf : Jón Hallur Stefánsson
Útg : Bjartur
20.11.2008
Þetta þarf ég
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt
Kjark til að breyta
því sem ég get breytt
og VIT til að greina þar á milli.

