Kollster
30.8.2008
Gullmolarnir okkar
Hér koma tveir gullmolar frá tveimur gullmolum.
Á menningarnótt þegar unglingurinn á heimilinu er í bænum er Alex Uni heima með okkur mömmunum og Felix Skafta. Þegar líða tekur á kvöldið fer honum eðlilega að langa aðeins niður í bæ.
Lilja skellir sér með hann í bæinn til að sjá flugeldasýninguna og sækja svo Elísabetu þegar sýningunni er lokið. Á leið sinni heim þá rekast þau á ungan mann sem lætur öllum illum látum enda sauðdrukkin vitleysingur.
Nú svo koma þau hér heim og ég tek á móti þeim....á móti mér kemur Alex Uni æstur í að segja mér frá einhverju....
Alex ; "Kolla..Kolla...veistu hvað við sáum niður í bæ ?"
Ég ; "nei hvað sástu ástin mín?"
Alex ; " við sáum FYLLIBIL"
Ég ; "ha ? hvað er það ? "
Alex ; "mann sem var rosalega fullur !" (undrandi á að ég vissi ekki hvað fyllibilur þýddi"
Ég ; "já þú meinar fyllibyttu ?!"
Alex; "nei ég kalla það fyllibil ...af því að hann var rosalega FULLUR og líka alveg BILAÐUR"
þannig að héðan í frá mun ég kalla þá líka fyllibil !
Annar gullmoli...
Elísabet sat hér eftir skóla í vikunni að skoða fréttablaðið og var nett undrandi á svipinn svo hún spyr mig...
Elísabet ; "skoða útlendingar fréttablaðið?"
Ég ; já örugglega einhverjir...alveg ábyggilega fólk sem er búið að búa hér lengi og svona...nú af hverju spyrðu ?"
Elísabet ; "nei af því að það er TAX FREE helgi í Hagkaupum!"
já það er svo sannarlega gleði fólgin í því að vera móðir.
Kollsterinn...þreytt eftir stóran barnaafmælisdag

28.8.2008
Hvað er málið ?
Ansans ólukka...dagurinn lítur einhvernvegin svona út hjá mér...
-Vaskurinn í eldhúsinu er mjög svo stíflaður
-Villi tengdó gat því miður ekki lagað stífluna
-Módelið sem ég er búin að vera að byggja er ekki alveg að stemma hjá mér
-Felix Skafti vaknar oft á hverju kvöldi út af tanntöku
-það er afmæli hjá okkur á laugardaginn kemur og ég gleymdi því þegar ég ákvað að hitta Ernu Rán & Co immit þann dag
En auðvita er alveg hægt að sjá þetta svona...
-Villi tengdó er búin að skoða vaskinn og úrskurða að það þurfi pípara svo við þurfum ekki að lenda í því að fá pípara í verk sem við hefðum getað gert sjálfar og ekki þurft að borga fyrir.
-Módelið sem er 8 ára gamall sonur okkar fékk í afmælisgjöf er búið að stytta mér allnokkrar stundirnar á kvöldin yfir sjónvarpsglápi.
-Felix Skafti er að fá tennur og þroskast svo hratt og fallega
-ég hef alla hina dagana framundan í lífinu til að hitta fallegu Ernuna mína og fjölskylduna hennar :)
p.s. Erna mín ef þú lest þetta áður en ég man að hringja í þig þá er víst fjölskylduafmæli hér á laugardaginn svo við verðum að finna nýjan dag saman sæta mín :)
Kollsterinn...aðeins að skoða málin

25.8.2008
Tönn
Felix Skafti Liljuson er nú loksins að fá tennur. Ég var alveg hætt að segja eftir erfiðar nætur "nú hlýtur að vera að koma tönn" svo þegar drengsi var lítill í sér í nótt og þurfti mikið knús þá bara hafði ég hann upp í hjá okkur Lilju og hélt bara að þetta væri eitthvað tilfallandi. Ég heyrði hinsvegar í Liljunni áðan og hún var að koma við neðri góminn í honum og fann þar stingast litla hvíta tönn sem glitti í ....svo er efri gómurinn orðin bólgin og blár líka svo þetta er greinilega allt að gerast.
Langaði bara að koma þessu frá mér , finnst þetta mun merkilegra satt að segja heldur en silfrið á ólympíuleikunum...hahaha
Kollsterinn...áfram Tennur

22.8.2008
Föstudagurinn góði
Í dag er föstudagur...sem er gott því mér finnast föstudagar skemmtilegir enda byrjunin á helgi og allt það.
Magnús Bjartur vinur okkar er 1 árs í dag og við óskum honum og mömmunum til hamingju með daginn og auðvita til hamingju með að vera komnar í seitina sína :)
Í dag á víst líka að vera einhver merkilegur leikur, geri ráð fyrir að fólk sé að tala um handbolta því ég komst að því um daginn að það eru alskyns handboltaleikir í gangi tengt ólympíuleikunum og fótbolti er ekki það mikið sýndur í sjónvarpi ..svo ég reikna bara með að fólk sé að tala um handbolta. Hvaða lið er að spila á móti Íslandi veit ég hinsvegar ekki og ég er ekki einu sinni alveg klár á því að Ísland sé yfirhöfuð að keppa, en það hlýtur samt að vera fyrst fólk er alveg að tapa sér yfir þessu öllu saman.
Kanski maður stilli yfir á rúv í hádeginu til að þykjast fylgjast með ... hver veit nema ég meira að segja horfi á leikinn og hafi gaman af .
Planið er svo að horfa á Ríkið heima hjá Pálinu minni í kvöld enda bestu leikkonur þjóðarinnar í sjónvarpinu í kvöld (Inga María & Halldóra Geirharðs)
Kollsterinn...á föstudegi

17.8.2008
Stubbur er skírður...
Benedikt Bjarni Melsteð !
fagri fagri frændi minn er komin með nafn og ég fékk þann heiður að halda á honum meðan presturinn lagði blessun sína yfir hann og skírði hann þessu fallega fallega nafni.
Þegar Hjalti sagði nafnið á syni sínum þá tók snillingurinn litli upp á því að kúka duglega hátt og skýrt, var eiginlega frekar hlægilegt.
En hann stóð sig með prýði litli Benedikt og horfði bara á prestinn gefa sér nafnið mjög sáttur við lífið og tilveruna.
Nú er ekki lengur talað um Stubb heldur bara Benedikt Bjarna :)
Elsku Hanna og Hjalti , takk fyrir heiðurinn sem þið sýnduð mér með því að leyfa mér að halda á honum í skírninni og til hamingju með þetta ótrúlega fallega nafn á syninum :)

Kollsterinn..stolta frænkan

Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349322
Samtals gestir: 106132
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 05:26:31