Kollster
27.6.2008
Frændi er fæddur
Já ég er orðin stolt frænka lítils guðdómlegs drengs. Systir mín yndislega stóð sig eins og hetjan sem er hún er og fæddi lítin gullmola á miðvikudagskvöldið. Það eru komnar myndir af Stubb inn á barnanetinu hans Felixar ef ykkur langar að kíkja á hann.
Það verður annars lítið um blogg þessa vikuna sem kemur því tölvan okkar góða er að fara í viðgerð.
Þangað til næst knús og kossar
Kollsterinn..að springa úr stolti

25.6.2008
Litli frændi kemur !!!
Já Hanna systir er komin af stað...nú bíðum við bara ótrúlega spennt eftir símtalinu góða. Ég er reyndar nett óþolinmóð og hringi á klukkutíma fresti í múttu sem er stödd upp á spítala hjá fallegu systur minni. Ég bara sit og tárast þegar ég skrifa þessi orð af gleði því ég er svo glöð að litli frændi er að koma í heiminn og Hanna mín er að fá strákinn sinn í hendurnar á þessum sólarhring.
Ég sendi henni auðvita alla mína engla því þetta er ekki auðvelt verk að koma barni inn í þennan heim en eins erfitt og þetta er þá er þetta vel vel vel þess virði.
Ætlaði að setja hér mynd af Hönnu sem ég tók í fyrradag en það tókst ekki...langaði að sýna ykkur hvað hún lítur vel út komin svona langt á leið og hversu mikið hún skín af gleði :)
Getið bara skoðað myndirnar inn á barnanetinu hjá Felix Skafta ef þið viljið :)
Kollsterinn...að verða stoltasta frænkan

24.6.2008
Sólin
Það er aldeilis búið að vera sól og sæla þessa dagana. Við erum búnar að vera massa duglegar að sleikja sólskinið , búnar að fara tvisvar með Felix í sund og alles.
Í dag er planið að sækja Alex Una og fara svo eitthvað út, kanski maður skelli sér enn einu sinni í sundlaugina ef veður leyfir.
Annars er orðið verulega stutt í sumarbústaðaför og allir á heimilinu farnir að iða í skinninu að komast út úr bænum. Við erum búin að semja við Hönnu siss um að fá bílinn hennar lánaðan svo að við komum okkur öllum með í ferðina ásamt farangri , þurfum alveg tvo bíla til þess enda stór fjölskylda og svo kemur Hildur vinkona Elísabetar með okkur.
Í gær átti fallega móðir mín afmæli og Hanna systir hefði átt að fæða samkvæmt settum degi, en svo varð ekki og nú er bara bið framundan, er nú samt að vona af öllu mínu hjarta að það gerist áður en við förum út úr bænum. Nú ef það gerist á meðan við erum í sveitinni þá bruna ég bara í bæinn til að kyssa litla kútinn.
Nú nennir Felix ekki lengur að leika einn svo ég segi þetta gott í bili.
Kollsterinn...sólarsleikja

23.6.2008
Ég köttur ?
Shy !!
You are a shy person you prefere to keep out of trouble...you are wise and caring and that's why your friends love you!
23.6.2008
Quiz time
Hip Hop
You like to follow your own beat and you think quickly and sometime unrationally but you are loved because you are so unique
þegar maður nennir ekki að blogga eða hefur lítið að segja þá er fínt að gera bara svona quiz og leyfa því að segja öðrum hvernig maður er :)

Flettingar í dag: 169
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 223
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 349678
Samtals gestir: 106234
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:23:32