Kollster

29.5.2008

Skjálftinn

Já í dag kom skjálftinn mikli og ég , Lilja og Felix Skafti vorum í góðum gír að keyra heim úr sundinu og urðum ekki vör við eitt eða neitt.
Þegar við komum heim sagði unglingurinn okkur að hún hefði upplifað soldið rosalegt. Þær sátu hér við tölvuna hún og vinkona hennar og voru að dunda sér, hér við hliðina á tölvuborðinu er ofn sem er aðeins laus frá veggnum, þegar maður rekur fótinn í ofninn þá glymrar í honum frekar leiðinlega. Elísabet sagði okkur í miklum æsing að hún hefði rekið sig í ofninn þegar þær voru í tölvunni..."svo sko svo sko vorum við að labba út úr herberginu og þá byrjaði ofninn með læti aftur og engin nálægt honum, við fengum alveg sjokk og hlupum bara inn í ykkar herbergi og læstum að okkur af því að við héldum að ofninn væri að fara að springa" nú svo þegar þær voru komnar inn í herbergi þá var gólfið á reiðiskjálfi eins og þær lýstu því og þá uppgötvaði vinkona hennar að þetta væri nú kanski jarðskjálfti og ofninn væri alls ekki að springa.
Besta við þessa sögu fannst mér samt eiginlega að þær læstu hurðinni, ég hugsaði mikið út í hvort ofninn hefði átt að reyna að ráðast inn í herbergi þar sem þær voru eða af hverju þeim fannst þær öruggari læstar inni :) ég spurði hana meira að segja að því og henni fannst ég bara fyndin.
Já það er ekkert grín að vera unglingur og lenda í svona stórum skjálfta.
Eftirminnilegasta jarðskjálftaatriðið sem ég hef lennt í var samt með Diljá minni þegar við vorum að horfa á Fight Club, væri gaman ef hún myndi nenna að segja frá því í góðu tómi þar sem ég nenni ekki að blogga alla söguna hér :)

Annars gott að frétta, Felix hetjustrákur var að kafa í sundinu í dag og stóð sig með prýði, honum fannst þetta hið minnsta mál en mér fannst þetta nett erfitt.
Gott að ég var ekki að setja hann í kaf þegar skjálftinn reið yfir :)

Kollsterinn..búin að segja orðið skjálfti annsi oft í einu bloggi

Skrifað 29.5.2008 kl. 22:25 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.5.2008

Nú get ég bloggað

Fyndið : ég er ekkert búin að blogga í marga daga vegna þess að andinn hefur barasta ekki komið yfir mig, hinsvegar núna fann ég mig knúna til að blogga ...líklega vegna þess að moli sefur og ég á að vera að taka til í íbúðinni fyrir opna húsið um helgina eða þá vera dugleg og svara spurningum úr leyniheftinu mínu :)
Já maður finnur alltaf eitthvað til að blogga um á svona stundum þegar maður ætti raunverulega að vera að nota tímann í eitthvað allt annað :)
Una mín er í garðræktinni hér beint fyrir utan húsið mitt og ég er ekki frá því að mér finnist það frekar notalegt, vita af Unu minni hér bara steinsnar frá mér.

Föstudagur og framundan er opið hús, verður forvitnilegt að vita hvernig það fer allt saman og hvort einhver geri tilboð í íbúðina okkar, svo er auðvita júróvisjón á laugardaginn sem verður horft á heima hjá Mikka og Maju þar sem Bashir er á landinu og allir ætla að hittast þar í grillveislu að ég held.
Felix er búin að vera lasarus undanfarna tvo daga og ekki gaman að því , hann er nú samt ekki svo óhress þrátt fyrir smá hita og hor í nös litla greyið. Hann brosir bara eins og hans er von og vísa og finnst lífið bara gott.

Jæja...ætli það sé ekki best að skella sér í tiltektina áður en moli vaknar og ég fæ móral yfir að hafa bara notað tímann fyrir framan tölvuna á meðan hann svaf :)

Kollsterinn..ótrúlega skynsöm...bráðum

Skrifað 23.5.2008 kl. 17:17 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.5.2008

Lífið með öllu

Í dag er víst komin föstudagur og helgi framundan :) það er aldeilis að tíminn líður hratt á gervihnattaöld.
Í gær fórum við í annað skiptið okkar í sund með litla mola og hann var ekkert smá duglegur, kom reyndar í ljós að hann er lofthræddur og finnst ekki skemmtilegt að standa á höndunum á manni því þá er hann komin of hátt upp. Sundkennarinn kallaði hann líka kennarasleikju af því að hann var að naga á henni puttana sem okkur fannst frekar fyndið enda er hún skemmtileg hún Sóley sundkennari :)
Á heimilinu hér hefur ýmislegt verið að gerast, unglingurinn á heimilinu er að fara út úr líkamanum í gelgjunni og ég held sveimér þá að molinn sé að undirbúa sig undir það að fara að skríða svo mikill er æsingurinn á honum á teppinu.

Um helgina ætlar unglingurinn okkar hún Elísabet að selja dót og drasl í kolaportinu ásamt Hildi vinkonu sinni og Lilju verður með þeim svona til halds og trausts svo ef þig langar að styðja heimilið þá endilega kíktu við í koló og verslaðu við unglinginn :)
Planið hjá okkur Lilju er svo að fara að skoða íbúðir í Hafnarfirðinum á sunnudaginn, nei við erum ekki að hugsa um að flytja þangað en ákváðum nú samt að skoða allt sem í boði er svo hægt sé að taka góða ákvörðun á endanum.
Núna hinsvegar er ég að fá rosalega bakþanka, hef hangið inn á mbl að skoða fasteignir undanfarnar vikur og er bara ekki að sjá neitt sem mér líst á nema það kosti yfir 40 millur og það virðist ekki skipta miklu máli í hvaða bæjarhluta það er. Ég er aldeilis  ekki að fara að selja hér nema auðvita að eitthvað betra sé í boði , annað væri nú bara tóm vitleysa.
Lilja Huld vinkona sendi mér reyndar link á íbúðina við hliðina á sér sem er ótrúlega flott og húsið var byggt 2006 , hún er sett á miljón lægra en okkar íbúð og er ekki í blokk heldur fjölbýlishúsi...þetta væri hrikalega freistandi EF íbúðin væri ekki staðsett í MOSÓ !
hihihi

já hitt og þetta í gangi og allt bara í góðu.

Kollsterinn...að díla við lífið á sinn háttinn

Skrifað 16.5.2008 kl. 15:43 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.5.2008

Þú lánar ekki eftirá !

Ég var rétt í þessu að ljúka við eitt það kjánalegasta símtal sem ég hef tekið þátt í. Ég hringdi í sakleysi mínu í íbúðalánasjóð þar sem þeir gefa sig út fyrir að lána fólki vegna endurbóta á húsum sínum. Nú það fannst mér heppilegt þar sem það á að gera upp allt húsið okkar í sumar og á eftir að kosta sinn skildinginn.
Til að gera langa sögu stutta þá sagði konan hjá þjónustuveri íbúðalánasjóðs mér það að þeir gætu svo sannarlega lánað fyrir slíku en þeir geri það að endurbótum loknum. Ég hélt ég misskildi hana eitthvað svo ég spurði ótrúlega heimskulega að henni fannst hvort ég skildi hana rétt að þeir láni fyrir þessu þegar maður er búin að greiða þetta upp...
Jú ég skildi hana rétt..þeir lána fyrir endurbótum þegar maður er búin að koma með plögg upp á að allri viðgerð sé lokið og það þarf að líða að minnsta kosti 6 mánuðir eftir að verkinu líkur þangað til maður hefur rétt á láninu !!!

Hvaða rugl er þetta eiginlega ?
Hún benti mér á að ég gæti tekið lán hjá bankanum eða lífeyrissjóðinum mínum nú eða borgað þetta út í hönd ef ég ætti pening.

EF ÉG ÆTTI FYRIR ÞESSU ÞÁ VÆRI ÉG EKKI AÐ BIÐJA UM LÁN !

Kollsterinn..er ég ein um að finnast þetta fáránlegt ?

Skrifað 13.5.2008 kl. 13:41 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.5.2008

Svona til gamans ...

ég ætlaði að setja inn ótrúlega krúttlegt myndband af youtube en það tókst ekki svo ég set bara linkinn hérna ef þið hafið áhuga á að kíkja á það
http://www.youtube.com/watch?v=6Wm-HycVmTQ

En svona annars er lítið að frétta, ég er að plana vikuna framundan og það er ýmislegt á döfinni, ungbarnasund, hittingur með góðri vinkonu sem ég hef ekki hitt alltof lengi, við Felix kíkjum áreiðanlega með ömmu Kollu í göngutúr á morgun í kirkjuna og svona má lengi telja.
Helgin er liðin hjá og var indæl í alla staði, við tjellingarnar erum búnar að vera með Felix Skafta í smá svefn-plani og satt að segja hefur það gengið betur en við þorðum að vona, hann er farin að drekka bara einu sinni yfir nóttina og sá árangur náðist bara á einni helgi með þrautseygju mín og konunnar minnar í að standa okkur og ekki þjónusta strákinn þegar hann vaknar á nóttunni öðruvísi en að rétta honum snuð og dulu. Hann er orðin sáttur við þetta enda var það bara orðin vani hjá honum að drekka á nóttunni bara svona til að kúra hjá múttunni sinni.

Ég er annars orðin nokkuð spennt bara fyrir því að byrja aftur að vinna en byrja sem betur fer ekki nema í 50% starfi fyrstu mánuðina, svo um leið og ég er hætt að gefa brjóst þá er planið að finna mér góðan skvass-félaga sem nennir að mæta með mér nokkrum sinnum í viku því það er svo leiðinlegt að vera á leiðinni í skvass og þurfa alltaf að finna einhvern með sér, ef einhver þarna úti hefur áhuga á að spila skvass þá má sú/sá hinn sami/sama endilega bara bjalla á mig og við bókum tímana :)

jæja...ætla að taka af snúrunum áður en moli vaknar af værum blundi.

Kollsterinn...leitandi að skvass-félaga

Skrifað 13.5.2008 kl. 12:42 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.5.2008

Dauðasyndirnar sjö

Skoða nánar

5.5.2008

Smotterí

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 159
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 580
Gestir í gær: 62
Samtals flettingar: 345374
Samtals gestir: 105557
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 06:46:34
eXTReMe Tracker