Kollster

29.4.2008

A trip down memory lane...

Já ég er núna búin að venja mig á það að fara nokkrum sinnum í viku niður í geymslu rétt eftir að Felix sofnar til þess að taka örlítið til , ég er að gera þetta ótrúlega hægt og rólega því við eigum heimsins stærstu geymslu og inn í henni er alveg rosalega mikið af dóti bæði frá mér og Lilju. Ég er nú aðallega að fara í gegnum gamla dótið mitt og henda því sem henda má. Ég er alveg búin að komast að því að ég er aðeins of ýkt í að geyma minningar í veraldlegu formi og í dag finnst mér engin þörf á því að geyma þetta allt saman. Þannig að núna fer ég reglulega niður og skelli í poka því sem má fara í endurvinnslu og rusl en geymist samt sem áður í huga mér.
Hér eru nokkur dæmi

Hlutir sem eru farnir á haugana en gleymast ekki

- Handritið frá því ég fór í inntökupróf í leiklistarskólanum
- Inniskór sem ég keypti handa Bríeti Ólínu svo hún væri alltaf velkomin heima hjá mér
- Lyklakippusafnið mitt
- Ilmvatnsprufusafnið mitt
- Miðar að ÖLLUM leikritum sem ég hef séð

Hlutir sem ennþá geymast og ég tími ekki að henda

- Sónarmyndirnar af Önnu Þrúði
- Bekkjarmynd af mér í Grandaskóla
- Séð og heyrt sem ég og kúrekalessurnar vorum í
- myndir teiknaðar af litlum englum til mín
- afmæliskort frá Elísabetu til mín

já það má lengi telja í báðum flokkum og svo ótrúlega gaman að fara í gegnum þetta, líka mun skemmtilegra að gera þetta svona bara af og til því ef maður ætlar sér eina helgi í þetta þá nær maður ekki að njóta þess að róta í gegnum hvern kassa og verður alveg búin á því þegar öllu er lokið.

Já þetta var svona dæmi um hvað ég geri á kvöldin eftir að Felix er farin í háttin og stelpurnar eru til dæmis að horfa á Americas next top skrall eitthvað. En auðvita er þetta stutt stund í hvert skipti og ég að sjálfsögðu hangi frekar hér með stelpunum mínum þegar það er í boði :)

Kollsterinn...með stóru geymsluna

Skrifað 29.4.2008 kl. 21:05 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.4.2008

Mánudagur til mæðu

það er mánudagur í mér , enda mánudagur líka hjá flestum öðrum í leiðinni. Ég er einhvernvegin enganvegin í dag. Dagurinn byrjaði reyndar mjög vel þar sem við spúsan skelltum okkur í göngutúr með fallegu vinkonum okkar þeim Guðrúnu og Jódís og auðvita börnum og hundi :) en svona þegar leið á daginn fann ég mánudagsþreytuna koma yfir mig, kanski af því að ég fékk loksins sjö tíma samfelldan svefn í nótt og því er ég ekki vön :) Lilja ákvað nefnilega að vera svo yndisleg og bjóðast til að sofa mín megin í rúminu og vakna með Felix Skafta svona til að sjá hvort það myndi duga svo hann þyrfti ekki brjóstið eins oft, nú þá ákvað minn maður að byrja á því að sofa lengi lengi í fyrsta lúrnum. En auðvita er það bara besta mál og nú munum við Liljan mín fríð skipta um stað í hjónarúminu til að skemmileggja ekki þetta góða mál.
Skvísurnar skelltu sér í leiðangur og við Felix erum búin að sitja hér heima og skemmta okkur, er alveg búin að komast að því að honum finnst alveg hrikalega skemmtilegt þegar ég sit og spjalla við hann um heima og geima nú og er eins og kjáni auðvita á meðan að geifla mig og gretta svo hann hafi meira gaman af spjallinu. Hann er farin að hlægja svo fallega sem mér finnst óendanlega gaman.
Hef lítið að segja svo ég læt þetta duga í bili...knús knús

Kollsterinn..á mánudegi

Skrifað 28.4.2008 kl. 17:04 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.4.2008

Brjóst og meira brjóst

Er að spjalla við ömmu mína á msn, hún er svo tölvuvædd þessi elska, alltaf að senda manni alskyns kalla og svona sniðugt :)
Fallegust og fallegastur eru að leggja sig áður en við förum í mat til ömmu Kollu. Ég ákvað þó ég væri þreytt að leggja mig ekki því ég verð alltaf helmingi þreyttari ef ég legg mig á daginn og þá sérstaklega svona um miðjan dag svo mér finnst bara betra að sleppa því. Fer þá frekar bara fyrr að sofa í kvöld þar sem moli er hrikalega duglegur að vakna á tveggja tíma fresti alla nóttina til að hanga á brjóstinu á múttunni sinni. Ég er alveg að vanda mig við að gefa honum enga þjónustu á nóttunni en barnið virðist bara vera svangt því hann orgar á mig ef ég reyni að stinga upp í hann snuðinu og fara aftur upp í rúm eins og ekkert  hafi í skorist. Svo drekkur hann heil ósköp í hvert skipti sem hann vaknar og rotast um leið. Einhver sagði mér um daginn að það sé ekki gott fyrir börn að vera alltaf drekkandi á nóttunni því þá fengi meltingin enga hvíld hjá þeim...jú það má alveg vera rétt en hey...það er að mínu mati bara ekkert sniðugt að hann sé alltaf drekkandi á nóttunni því þá fær MÓÐIR hans enga hvíld ! hann er nú orðin fjögra mánaða næstum og í öllum bókum stendur að þá eigi minn maður að vera farin að taka góðan sex tíma svefn í fyrsta lúr og að einn brjóstatími sé alveg nóg yfir alla nóttina. Felix er hinsvegar langt frá því að vera sammála þessu og þrátt fyrir graut og fínerí þá er minn bara ekki nógu saddur virðist vera.
Ég þarf að tékka á hvað ljósan segir við þessu öllu saman en við förum ekki til hennar fyrr en 5 maí svo ég verð bara að vera með bauga þangað til býst ég við.
Annars er bara svona allt við það sama, helgin búin að vera yndisleg eða það sem komið er af henni , fengum Magnús , Jódísi og Pálí okkar í heimsókn í dag og það finnst okkur æði því okkur þykir svo vænt um þau. Væri reyndar gaman næst að Puffsterinn myndi koma með en hún var að vinna.
Já já já ...ætla að vafrast aðeins um á netinu og skella mér svo fram að pússla þar til fallegasta fólkið er búið að taka sinn bjútí slíp.

Kollsterinn...ekki næturdýr

Skrifað 26.4.2008 kl. 16:59 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.4.2008

Vinnuskrall

Ég finn að síðan Felix fæddist hef ég þróað með mér einskonar óþolinmæði, ég er nefnilega að eðlisfari ekki sérlega óþolinmóð en núna finn ég það koma upp oftar og oftar. Það er þá sérstaklega í kringum hluti sem tengjast litla snáðanum okkar :) Ég bíð svo ótrúlega spennt til dæmis eftir því að hann megi fara að borða alskyns krukkumat, megi fara í pössun yfir nótt hjá ömmu sinni og afa (því ég veit hvað bæði hann og þau hefðu gaman af því) og svo auðvita bíð ég spennt eftir að hann fari að hlægja heilan helling og skríða og allt það sem kemur með tímanum. Já óþolinmóða konan hérna megin :)
Annars er bara allt gott að frétta héðan úr kotinu, ég fór í vinnuviðtal í gær og er búin að ákveða að fara að vinna á skrifstofu Pennans þegar ég kem úr orlofinu mínu því ég nenni satt að að segja ekki aftur í verslunarstjórabransann. Ég hlakka til að vinna bara 8-4 og engar helgar, vera ekki með vinnusíma sem hringt er í öllum stundum sólarhringsins og geta bara verið í fríi þegar ég er í fríi. Þá getur maður sinnt fjölskyldunni sinni betur og ef ég sinni henni betur þá mun mér líða betur sjálfri í kjölfarið því fjölskyldan mín er það dýrmætasta sem ég á.
Komst að því í gær þegar hausinn á mér fór með mig lengra en ég vildi að hann færi hversu ónýt ég yrði ef konan mín myndi hætta með mér, hún var nefnilega á fundi og setti símann sinn á silent , gleymdi svo að taka hann af silent þegar hún var að rabba eftir fundinn og ég hringdi og hringdi þegar ég fór að hafa áhyggjur af tímanum...mér fannst hafa liðið margir klukkutímar en það liðu í raun bara sirka 15 mínútur þar til hún hringdi tilbaka auðvita um leið og hún sá að ég hafði hringt. úff hvað það er vont að halda að eitthvað hafi komið fyrir ... ég sofnaði svo rótt þegar konan mín fallega var komin heim heil á höldnu.
Nú er komin miðvikudagur og sumardagurinn fyrsti er á morgun, þá er konan í fríi og við getum átt huggulegan dag saman með litlu hetjunni honum Felix Skafta.
Já ekki mikið meira sem ég get sagt ykkur frá í bili svo ég kveð ...

Kollsterinn...frjáls fyrir framapotinu

Skrifað 23.4.2008 kl. 12:26 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.4.2008

Ungbarnasund

Í morgun fór ég inn á netið og skráði hann Felix Skafta í ungbarnasund, það er ekki laust við að ég sé spennt því ég var eiginlega löngu byrjuð að hlakka til að fara með hann í sund áður en hann fæddist :) Við byrjum snemma í maí og það verður bara gaman að geta farið með hann ótrúlega vanan í laugarnar í sumar. Nafnabreytingin er loksins komin í gegn og nú heitir herramaðurinn Felix Skafti Liljuson í þjóðskrá.
Í næstu viku verður svo farið með alla fjölskylduna í vegabréfaskrall því við þurfum að fá ný vegabréf fyrir Florida ferðina á næsta ári og eins gott að ljúka þessu af sem fyrst, meira að segja Felix fær sitt eigið vegabréf og það verður bara fyndið að sjá hvernig þeim ætlar að takast að taka af honum passamynd þar sem hann þarf að horfa beint fram og svo framvegis.
Sumarið nálgast óðfluga og tíminn líður alveg ótrúlega hratt , næstum of hratt því mér finnst alveg óhuggnalega stutt þangað til fæðingarorlofinu mínu líkur og ég fer aftur að vinna. Er að fara í smá vinnuviðtal í dag til að sjá hvort ég hafi áhuga á að skipta um starf innan Pennans og fara að vinna bakvið skrifborð , reyndar við eitthvað sem mér finnst nokkuð skemmtilegt og hef unnið við tímabundið áður. Þetta er allt bara spennandi en eins og ég segi þá finnst mér eiginlega alltof stutt þangað til ég fer aftur til vinnu og hætti að vera heima með Felix á brjósti , farandi í heimsóknir til ömmu Kollu, ömmu Hönnu, Rögnu frænku og svo framvegis ...það er alveg unaður að vera heima með drenginn sinn og geta gert það sem mann langar til með honum.
Undanfarnar vikur hefur Puff okkar verið í stífu námi og prófum út á Bifröst og á meðan höfum við verið duglegar að fá Jódísi og Magnús Bjart lánuð hingað til okkar í kotið, það er bara búið að vera ótrúlega gaman að hafa þau og við vonum svo sannarlega að þau hætti ekki að koma og hanga með okkur þegar kella verður komin heim. Ég fæ reyndar að passa Magnús í dag aðeins þar sem Jódís er með þrjá aðra drengi í pössun hjá sér svo Felix og Magnús ætla að fá að hanga saman :)
Elsku fallega Jódís okkar, við erum búin að hafa mjög gaman og gott af að hafa ykkur hér hjá okkur á þessum vikum og viljum bara láta þig vita af því :)
Elsku fallega Puff, hlökkum til að sjá þig aftur og innilega til hamingju með glæstan árangur í skólanum, þú ert hetja dagsins !

Jæja..moli loksins sofnaður eftir nett erfiðan dag þar sem hann virðist vera aðeins að venjast grautnum og mallinn örlítið að stríða honum svo ég ætla að setjast fram í stofu og pússla í smástund áður en ég keyri konuna í vinnu og mæti í vinnuviðtal sjálf.

Kollsterinn...á leið í sund með Felixinn

Skrifað 22.4.2008 kl. 10:26 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.4.2008

Harður diskur

Skoða nánar

15.4.2008

Florida

Skoða nánar

11.4.2008

Stóri stóri strákurinn

Skoða nánar

8.4.2008

Eins og ekkert hafi " í skorist "

Skoða nánar

6.4.2008

Hamstraskrall

Skoða nánar

5.4.2008

Laugardagstjill

Skoða nánar

2.4.2008

Breytingar

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 169
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 223
Gestir í gær: 68
Samtals flettingar: 349678
Samtals gestir: 106234
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 14:23:32
eXTReMe Tracker