Kollster
31.10.2007
9 Vikur
Annars gott að frétta bara, litli maðurinn er farin að hreyfa sig annsi duglega en passar sig að leyfa engum að finna fyrir því nema mér ennþá, alveg duglegastur þegar maður er að reyna að fara að sofa eða liggja upp í sófa að horfa á sjónvarpið, þá byrja lætin alltaf :)
En jæja, var að koma úr yndislegri bíóferð með múttu og Hönnu siss, glöð að við skelltum okkur saman mægðurnar og erum strax búnar að ákveða hvaða mynd verður næst fyrir valinu og þá verður allt stóðið tekið með í för :)
Kollsterinn...á leið í háttinn með góðu bókina (sem ég segi ekki strax hver er)
29.10.2007
Þegar ljósið slokknar
Þetta er sönn lífsreynslusaga um ungan dreng sem tapar í
baráttunni við geðsjúkdóm sem svo margir í heiminum eru að berjast við. Bókin
er skrifuð bæði af stráknum og móður hans í gegnum veikindin. Titus greinist á
unglingsaldri með geðhvörf en bókin fylgir honum nokkurvegin alla ævina í gegn.
Móðir hans skrifar um sögu hans og hann skrifar oft á tíðum um sömu atriðin í
hans lífi en kanski bara frá allt öðru sjónarhorni eða hangs eigin.
Hann bjó á Íslandi um hríð með fjölskyldunni sinni og hér
heima er fólk sem þekkir þessa fjölskyldu og hjálpaði þeim eins og meðal annars
Kári Stefánsson.
Bókin er næstum því eins og nýkomin úr ofninum því sagan er
svo nýsögð og þetta er allt svo nýgerst.
Ég mæli með að fólk taki sér tíma og lesi þessa bók því ég
veit að ennþá eru fordómar í samfélaginu gagnvart þessum einstaklingum.
Ég vil líka taka ofan fyrir móður hans Titusar fyrir að vera
svo hugrökk að skrifa þessa sögu því ég er viss um að hún á eftir að gefa öðru
fólki út í heimi ljós í sitt líf og von um að betri dagar séu framunda. Maður
verður klökkur á köflum og ekki laust við að manni finnist maður þekkja
fjölskylduna eftir lestur þessarar bókar.
Já svona þegar öllu er á botninn hvolft þá er ég ekki endilega mikið fyrir að lesa sannar sögur en þessi er öðruvísi á þann hátt að hér er bara verið að skrifa um hlutina eins og þeir gerðust og ekkert verið að búa til neitt sérstakt drama í kringum neitt heldur bara verið að leggja spilin á borðið fyrir aðra að geta lesið úr og vonandi nýtt sér.

Höf : Clare Dickens (& Titus Dickens)
Útg : JPV
28.10.2007
Ólétta konan sem þekki Pál Óskar
Nýjustu gullmolarnir eru alveg á þá leið að erfitt er að sleppa því að skrifa um þá hér og leyfa ykkur hinum að njóta með okkur.
(Föstudagskvöld ...ég , Lilja og Alex að spjalla inn í herbergi)
Alex : "hvernig er hægt að vera lesbía ? ég skil það bara ekki"
Kolla : " nú það er bara eins og allt annað elskan mín , maður er bara það sem maður er , ef mamma þín væri ekki lesbía þá myndi ég ekki þekkja þig og vera svona rík að fá að vera stjúpmamma þín"
Alex : "ég er líka rosalega glaður að þú ert líka mamma mín Kolla , á ég að segja þér af hverju ?"
Kolla : " já endilega "
Alex : " af því að þú þekkir Pál Óskar !"
hahahahahahahahahaha
(Laugardagskvöld heima hjá Pálínu og Dodda því kallinum var boðið þangað í gistingu)
Alex : " Vitið þið hvernig Kolla varð ólétt ? "
Doddi : "nei hvernig?"
Pálína : "segðu okkur það"
Alex : " hún setti svona pillu upp í .......... á sér og þannig varð hún ólétt"
hihihihihihihihihi
Já þessi drengur er bara snilld og svo yndislega gaman að honum.
Annars gott að frétta af okkur , sitjum hér í sófanum afvelta þar sem Lilja fékk smá myndarlegust-kast og bakaði bananabrauð, köku og skellti í tvö stykki heitt í ofni, ég hringdi svo í Unu mína og Jódísi og Puff og allir gæddu sér hér á sunnudagslúxusfínerísmat :) Allir farnir til síns heima núna og hér sitjum við eftir sáttar og sælar.
p.s. ég keypti bíl í dag og fékk memmér Grímu vinkonu að velja...stóðum okkur ótrúlega vel og ég er mjög sátt við bílinn sem ég fer ásamt Lilju að sækja á morgun upp í umboð.
Toyta Corolla - ljósblár :)
Kollsterinn...dugleg um helgina
27.10.2007
Hverjum finnst sitt fólk fallegast !
Ég áttaði mig algerlega um leið og ég ákvað að byrja aftur að vinna mína vinnu á að ég var komin alveg í gamla farið, farin að tuða og vera týpa sem ég nenni engan vegin að vera.
Fékk að heyra ótrúlega viturleg orð frá litlu tólf ára skvísunni á heimilinu sem vakti mig til umhugsunar um hvernig móðir ég vil vera í framtíðinni bæði gagnvart mínum núverandi börnum og litla krílinu í bumbunni.
Svo ég vaknaði snemma , skellti mér á fund og er komin á fullt með fallega sponsornum mínum í alskyns vinnu sem mér finnst erfið en samt svo góð.
Erfiðast er að feisa sjálfan sig þegar maður er ekki að gera hlutina eins og maður hefði viljað vera gera þá en það er samt svo gott að sjá að maður getur alltaf breyst til batnaðar. Batnandi manni er best að lifa.
Svo er ýmislegt sem hefur verið að trufla mig í tengslum við mitt nánasta fólk eða jafnvel tengslum þeirra á milli sem ég sem betur fer fæ ótrúlega góð verkfæri í prógramminu mínu að díla við.
Er að átta mig á því þó erfitt sé að það eru ekki allir alltaf vinir , öll dýrin í skóginum eiga ekki alltaf vel saman en ég get elskað þau öll samt sem áður og þarf ekkert að breyta einum eða neinum því ég elska fólkið mitt eins og það er og það er ég þakklát fyrir að fá að sjá.
Vorum í afmæli hjá Hjalta bro áðan, mútta bauð í rosa fínan brunch og mikið sem mér finnst fjölskyldan mín það fallegast safn af fólki sem ég get verið í kringum, maður velur ekki fjölskylduna sína en það er engu líkara en að ég hefði valið þau öll sjálf og makana þeirra líka meira að segja...mér finnst þau öll hver á sinn hátt svo yndislega stórkostleg og hvert og eitt þeirra svo æðislegt að erfitt er að lýsa því með orðum.
Elsku fallega fjölskyldan mín sem les þetta blogg , við ykkur vil ég segja að ég elska ykkur út af lífinu og langar aldrei að taka ykkur sem sjálfsögðum hlut því þið eruð mér svo mikilvæg hvert og eitt ykkar. Hlakka til að hitta ykkur aftur í næsta boði og fá að vera þakklát áfram :)
Kollsterinn...í smá erfiðleikum en égbreiði yfir þá með þakklætinu
25.10.2007
Alex lögga
Komin fimmtudagur og þá er svona litla helgin.
Setti líka inn eina mynd af kúlunni þar sem hún er nú orðin 30 vikna en sú mynd er inn á Páliníus , höfum þetta alveg aðskilið svo ég sé ekki að hrúga inn bumbumyndum og slíku á tveim stöðum.
Er núna í smá bókakreppu, það eru nefnilega komnar nokkrar bækur sem mig langar mikið til að lesa og ég veit ekki hverja ég á að lesa næst, byrjaði á einni í gær sem mér fannst ekki nógu grípandi svo ég hætti snögglega við að lesa hana en þarf að ákveða í dag hvaða bók verður næst....einhverjar hugmyndir ?
Liljan mín fallegust sagði mér í gær að vinkona mömmu hennar byrjar alltaf daginn sinn á að lesa bloggið mitt og ég varð næstum því bara hálffeimin (þessi vinkona hennar gaf okkur engil í brúðargjöf og fyrst hún les þá þakka ég henni hérmeð kærlega fyrir fallega engilinn og fyrir auðvita að nenna að lesa þessa vitleysu í mér daglega :)
Hey svo á ég lítið leyndarmál sem ótrúlega fáir vita og ég má ekki segja frá því ....þetta er lítið leyndarmál sem mér finnst gaman að vita og hlakka til að vita meira um ;)
En jæja..myndirnar af litlu löggunni eru komnar inn og ég þarf að vinna meira og pikka minna.
Kollsterinn...í myndaskrallinu

