Kollster
27.9.2007
Síðasti dagurinn
Hinsvegar efast ég um að ég versli mikið annað en kanski slatta af samfellum á litla prinsinn í H&M því Vín er ekkert ódýr, kanski örlítið ódýrari en Ísland en það munar nú samt ekki svo miklu í búðunum hér er mér sagt.
Er orðin ótrúlega spennt að komast heim ef ég á að segja eins og er, mútta mín ætlar að sækja mig út á völl á morgun og ég hlakka til að komast í örugga höfn eftir að ferðast í gegnum ógeðs flugvöllinn í París sem er án alls efa sá allra leiðinlegasti sem ég hef komið í.
Svo er bara brúðkaup á döfinni, eftir viku og einn dag þá verðum við Liljan mín fríð gefnar saman heima hjá foreldrum hennar Lilju með þau viðstödd og foreldra mína líka. Eftir þau fallegheit ætlum við að fara saman niður á Lækjarbrekku með foreldra okkar yndislegu og borða góðan mat. Hver veit nema maður skreyti jeppann hjá ma og pa og láti keyra sig þannig niður á veitingastaðinn...mútta mín kom með þá hugmynd og hún er alls ekki slæm
Nú svo eins og sum ykkar vitið þá er kaffiveisla sem við buðum nánustu vinum og ættingjum að mæta í á sunnudeginum. Þar ætla Palli og Monica að heiðra okkur með nærveru sinni og taka nokkur lög í tilefni dagsins.
Já þetta er ótrúlega gaman og ég hlakka mikið til.
Er að hugsa um að hringja yfir á hótelherbergi til samstarfskonu minnar hennar Ransý og sjá hvort við ættum ekki bara að skella okkur niður í morgunmat og koma okkur af stað. Eigum eftir að fara í tvö moll að skoða bókabúðir og endum svo líklega í miðbænum, eftir ferðalagið í dag fer Ransý á klassíska tónleika í höllinni hér sem ég hafði satt að segja ekki mikin áhuga á að fara á enda verð ég upptekin hér inn á herbergi að pakka niður fyrir morgundaginn, þarf að vakna snemma svo það er betra að vera viðbúin og hress fyrir að ferðast einn. Reyndar hefur mér ekki fundist ég vera ein alla ferðina því það er lítill kútur sem er ótrúlega duglegur að stytta mömmu sinni stundir með spörkum alltaf þegar ég ligg ein hér inn á herbergi og það er svo gaman :)
Skrifa kanski litla færslu í kvöld en ef ekki þá bara skrifa ég næst frá Reykjavík-Iceland og sé ykkur þegar ég sé ykkur.
Kollsterinn...bráðum eiginkona
26.9.2007
Dagfærsla að kveldi ...
26.sept - ráðstefnusalur.
Einn kúnninn er ekki mættur svo ég hef örlítin tíma fram á næsta fund til að pikka niður fyrir los bloggos. Er komin með þennan líka massa bjúg á lærunum sem er að gera mig algerlega geðveika.
Við Ransý áttum langt hádegishlé og tókum underground niður í bæ til að fá okkur að borða, eftir matinn svindluðum við okkur oggu poggu stund inn í H&M og ég keypti smá barnaföt en missti mig þó engan vegin samt.
Á morgun eigum við svo nokkurnvegin frí síðasta daginn fyrir utan auðvita kveðjuboðið og kanski einn eða tvo fundi.
Hlakka samt alveg ógurlega til að komast heim til mín og er annsi hrædd um að ég þurfi að hvílast vel alla næstu viku ef ég á ekki að vera með þennan ekki svo fallega bjúg á fótunum þegar ég klæði mig í brúðarfötin, efast um að buxurnar komist upp um mig eins og staðan er í dag.
Er að reyna að vera dugleg að drekka vatn því það á víst að hjálpa en verst er að vatnið hér er bara svo langt frá því að vera drykkjarhæft. Kaupi vatn í brúsum en það er samt svo vont á bragðið. Sódavatn er töluvert skárra og því læt ég það bara duga.
Hanna siss : hvað er gott ráð við bjúg ?
Hanna siss veit nefnilega allt um líkaman, hún er alfræðiorðabókin mín þegar kemur að því að vera með eitthvað líkamlegt og þurfa að losna við einkenni enda er hún svo klár þessi elska.
Í kvöld er sem betur fer bara eitt sitjandi boð sem ég þarf að láta sjá mig í , það er BURDA boð ( burda er saumablað sem við seljum heima) og það er eflaust eitthvað mjög flott í matinn. Boðið er haldið á Radison SAS hótelinu niður í bæ og ég mun taka taxa heim beint eftir boðið .....
Kúnni komin ..gotta go
Komin aftur, búin með þennan fund og næstu of seinn greinilega því hann er ekki mættur. Næ að kveðja ykkur í bili og skrifa eflaust aftur í kvöld því ekki skrifa ég á morgun þar sem við verðum í bænum að skoða bókabúðirnar hérna og hvernig uppstilling á blöðum er í búðunum hérna í Vín.
Á föstudag kem ég svo heim og verð svo glöð að ég fæ tilhlökkunartitring alla leið niður í bjúginn í fótunum þegar ég hugsa til heimkomunnar.
Kollsterinn...milli funda.
25.9.2007
Meira af mér
25.sept ? ráðstefnusalur í Vínarborg.
Sit hér í korters pásu fyrir framan tölvuna og næ því ekki að fara fram á gang í biðröð til að komast á netið svo ég set þetta bara á bloggið þegar ég kem upp á hótel í kvöld ef ég kaupi mér internetkort.
Í dag er mjög hlaðin dagskrá af fundum alveg til klukkan hálf sex. Byrjuðum að funda hálf tíu í morgun og borðuðum góðan og næringarríkan morgunverð á hótelinu áður en við komum hingað.
Í gær komst ég loks í netsamband í sirka klukkutíma á hótelherberginu og fannst það æðislegt, merkilegt hvað nútíminn gerir mann háðan hlutunum, er búin að vera handónýt síðustu daga af því að ég var netlaus. Gat ekki farið á msn að spjalla við fallegu konuna mína og ekki skoðað heimabankann minn, ekki farið á vinnumailið fyrr en í gær og þar voru líka komin lítil 55 ný mail.
Heyrði svo aðeins í múttu minni í gærkvöldi þar sem við sátum á sitthvoru hótelherberginu sín í hvoru landinu, ég í Vín og hún í Riga. Gott að geta spjallað við Lilju mína á msn og heyrt röddina í múttu rétt fyrir svefninn. Alveg merkilegt samt hvað ég á erfitt með að sofna svona ein í útlöndum. Er algjörlega alltaf búin eftir daginn en samt sofna ég ekki fyrr en einum eða jafnvel tveim tímum eftir að ég legst upp í rúm. Ligg bara andvaka og hugsa um næstu daga og planlegg jafnvel heimferðina í huganum frekar en að sofna. Merkilegt alveg....
En já best að ná sér í vatnsglas áður en næstu fundur byrjar og vinnan heldur áfram.
Hafið það gott börnin mín og farið vel með ykkur.
Kollsterinn...business konan
24.9.2007
ónettengd færsla
22.sept
Hótelherbergi í Vín. Klukkan er 22:28 á staðartíma. Kolla ein í tölvunni og ekkert net.
Ég vissi sossum alveg þegar ég var að fara að sofa við hlið fallegu konunnar minnar í gærkvöldi að næstu nætur ættu eftir að verða erfiðar þar sem ég væri á leið til útlanda og þyrfti að sofa án konunnar minnar. En núna bara fæ ég mig ekki til að fara upp í rúm. Hér er sjónvarp til að stytta mér stundir en ALLAR stöðvarnar eru talsettar og því lítið gagn í að horfa þar sem ég skil EKKI NEITT. Hér er líka net, en EKKI þráðlaust svo þar sem ég tók ekki með mér netsnúru þá sit ég hér að "blogga" algerlega netlaust og hlusta á tónlistina mína í tölvunni. Fer líklegast að henda mér ofan í eina af bókunum sem ég tók með mér svo ég sofni einhvertímann. Veit að konan mín er að skemmta sér konunglega í dag því það er verið að gæsa hana. Hún var alveg að fríka út þessi elska áður en ég fór yfir því hvenær hún yrði gæsuð, konan mín veit nefnilega fátt verra en að vita ekki hvað er framundan og þá sérstaklega ekki ef það viðkemur henni sjálfri. Ég hafði mjög gaman af því að vita hvenær hún yrði gæsuð og "þykjast" ekki vita neitt. Eins og fróðir menn vita þá er ég heimsins versti lygari og því sá Lilja mín annsi fljótt á mér að ég vissi allt um gæsunina hennar, henni tókst þó engan vegin að ná neinum upplýsingum frá mér. Vona að hún sé að skemmta sér konunglega og stelpurnar með henni líka.
Á morgun ætla ég í búðina að kaupa netsnúru og tengja mig hið allra fyrsta. Fer í morgunmat klukkan átta og svo er bara beina leið í búðina. Planið byrjar svo almennilega á mánudagsmorgun í vinnunni og þaðan af verður lítill tími til að gera annað en að vinna og láta dagana líða þangað til ég fæ að leggjast við hliðina á konunni minni fallegu aftur. Þegar ég er svona erlendis (sem er ekki oft) þá sakna ég konunnar minnar svo hrikalega að ég mun aldrei geta skilið fólk sem býr til dæmis ekki í sama landinu og er saman. Svona er ég bara háð konunni minni og mér finnst það bara fínt. Næst þegar ég fer í vinnuferð þá ætla ég bara að hafa Liljuna mína memmér. PUNKTUR.
Jæja..farin í háttin. Bið að heilsa ykkur í bili.
Kollsterinn...í Vín
22.9.2007
Vín hér kem ég
Óska ykkur góðra daga og hver veit ef það er net á hótelinu hvort ég sendi ykkur línu af ráðstefnunni og segi ykkur hvernig við kútur höfum það.
Komin í flugvélasokkana svo ég fái ekki bjúg og tilbúin í þetta allt saman.
Hafið það gott blómin mín og ég mun sakna ykkar.
Kollsterinn...flogin , farin

