Kollster
31.8.2007
Ferðatölvublogg
Þá er tölvan okkar heima komin í viðhaldsviðgerð...verið að nota helgina í að yfirfara allt í henni og sjá hvort það þurfi jafnvel smá auka minni í elskuna svo hún vinni örlítið eða mun hraðar en hún er vön. Þannig að ég sit hér við skriborðið heima í herbergi að pikka á vinnuvélina mína. Er nú samt nett handalaus eitthvað því excel skjalið um bókhald heimilisins er í hinni vélinni og því ekki hægt að fylla neitt út eða laga og gera og græja.
Hef nú samt gott af því að vera tölvulaus að excel leytinu til um helgina, þá stressa ég mig minna á mánaðarmótum þegar ég get ekki sett þau algerlega upp í excel.
Fór í stuttan en mjög góðan lunch með Diljáinni minni í hádeginu í dag. Finnst maður vera eitthvað orðin of fullorðin þegar maður hittir vini sína aðallega í hádeginu milli vinnustunda en ekki að koma yfir og gista og horfa á video á Njallanum eins og í gamla dag.
Erum svo að fara fjölskyldan að sækja hundspott til frænku minnar sem við höfum nýverið kynnst á ættarmóti. Hún á nefnilega svona hund eins og við höfum hugsað okkur að fá okkur í nánustu framtíð , svo við tókum það að okkur eða eiginlega Elísabet tók að sér að passa krílið um helgina. Þetta verður eitthvað fjör á heimilinu með börnin bæði, mig ólétta og svo hundspott hlaupandi um :)
Verst að það rignir eins og helt sé úr fötu og því reikna ég með að hundurinn eigi eftir að ná að drulla út heimilið annsi vel þessa helgina.
Annars er ég föst í framkvæmdarhugleiðingum og breytingum fyrir heimilið, er meira að segja oft komin svo langt að vera farin að skoða fasteignasíður til að finna nýtt heimili fyrir okkur. Nú er manni farið að langa í hús með garði og öllu slíku.
En það er nú stefnan í framtíðinni , eignast gott fallegt hús með garði og hafa nóg pláss fyrir alla, jafnvel pláss fyrir fleiri en okkur og páliníus þegar Lilja gengur með næst :) hihhi ;)
Kollsterinn...þarf að hætta og fara að taka á móti börnunum :)

29.8.2007
Drengur K.Liljuson
Elsku fallegu stelpur sem voruð að kommenta í síðustu færslu :
Takk fyrir ótrúlega falleg orð !!! Maður verður eiginlega hálf klökkur og vandræðalegur þegar maður fær svona falleg hrós en mikið sem það gerir gott í hjartað svo ég þakka ótrúlega vel fyrir mig og vil að þið vitið að þetta fer innst í hjartarót :)

Já maður er orðin nett kúlulegur að framan og ég læt undan miklum þrýsting frá ýmsum aðilum um að skella hér inn kúlumynd af gæjanum sem þarna býr innra með mér , finnst annars ekkert sérlega skemmtilegt að láta taka myndir af mér svona óléttri nema auðvita bara fullklædd ..en ég get þó þolað þetta þar sem þetta er bara partur af mér :)
Þessi mynd er samt tekin fyrir tveim vikum svo hún hefur stækkað örlítið síðan þarna !
Ég var að hugsa þegar ég keyrði keflavíkurveginn í morgun hversu ótrúlega heppin þessi ungi maður er að vera að koma í þennan heim, hann á bestu tvær fjölskyldur sem nokkur getur hugsað sér að , allt mitt fólk og allt Lilju fólk er svo gott og ekta og á eftir að geta gefið þessum unga manni svo margt í lífinu. Að ég tali nú ekki um alla vinina okkar Lilju sem eiga eftir að kynnast unga manninum, hann hefur fengið ótal mörg nöfn af vinum okkar og fjölskyldu ( Inga María kallar hann Ingimar, Jódís-Jóel og svo framvegis) svo það eru greinilega margir sem vilja þekkja þennan strák okkar :)
Við erum búnar að hugsa og ræða mikið um nöfn á hann og erum komnar með tvö nöfn sem við erum báðar sáttar við. Svo mun hann vera Kolbrúnar og Liljuson ....getur þá verið skrifað bara x x K. Liljuson :)
Svo á hann helling af vinum líka sem vinkonur mínar hafa verið duglegar að unga út undanfarin ár ...ungir menn á aldri við hann eru til dæmis Erik Þór , Úlfur Kári og svo auðvita Magnús Bjartur :) ekkert nema gleði ...nú svo er Laufey með stlepu í sinni kúlu og ef hún hneygist til drengja þegar þar að kemur nú þá má auðvita skoða ástina ;) Hihihihi
Já drengurinn er sannarlega heppin og við hlökkum mikið til að kynna hann fyrir öllu þessu stórkostlega fólki sem við þekkjum :)
Kollsterinn...stolt verðandi móðir og núverandi stjúpmóðir :)

26.8.2007
Gleðitár
Nú fer ágúst að verða búin...nú svo kemur september og ennþá er engin búin að afboða sig fyrir brúðkaupsveisluna sem við erum að fara að halda í vetur. Sem er frábært því þá gerum við ráð fyrir að allir sem ekki segist ekki komast komi bara. Mikið væri það nú gleðilegt ef allir bara kæmust :)
Annars er helgin búin að vera æðisleg. Barnaafmæli , skoðað lítin Magnús Bjart og haft það huggulegt með Grímu vinkonu á laugardagskvöldi. Í dag er svo kaffiboð hjá ömmu Hönnu þar sem ég er nokkuð viss um að verði boðið upp á heitt í ofni ;)
Er eiginlega bara orðin tilbúin til að komast bara í frí , er farin að undirbúa mig andlega undir að vera ekki að vinna eftir áramót heldur bara sinna litlum dreng sem verður svo ótrúlega velkomin inn í þennan heim og inn á þetta heimili hér hjá okkur.
Þegar ég hélt á Magnúsi í gær þá allt í einu áttaði ég mig á því að þetta er að verða að veruleika, við Lilja erum að fara að eignast lítin dreng þegar árinu líkur, ef satt skal segja þá hef ég ekkert verið alveg með á nótunum, jú mér finnst gaman að valsa um með bumbuna út í loftið, vera í þröngum kjólum svo allir sjái að ég sé ólétt og mér líður ótrúlega vel, en að lítill drengur sé á leiðinni í heiminn eftir örfáa mánuði, það var ég bara ekki búin að átta mig almennilega á. Þetta er búið að vera svo fjarri mér svo lengi ...þannig að þegar ég hélt á litla guðdómlega drengnum þeirra Jódísar og Puff þá læddust nokkur gleðitár niður kinnarnar mínar sem ég náði lukkulega að henda til hliðar áður en þær sæju það. En þetta voru samt svo falleg tár sem blönduðust af fegurð Magnúsar og stelpnanna vinkvenna minna sem taka sig svo vel út í móðurhlutverkinu og svo auðvita tár líka í gleði yfir að fá bráðum að verða mamma sjálf.
En nóg með væmnina, best að skella sér í þrönga gallan og hafa sig til fyrir kaffiboð þar sem allir vilja strjúka bumbubúann.
Kollsterinn...ótrúlega sátt við lífið og sjálfa sig

25.8.2007
Strákar út um allt
Minns nývöknuð þannig lagað og klukkan er ekki einu sinni orðin hádegi svo ég kalla mig góða að liggja ekki ennþá undir feld. Evan mín er á leiðinni hingað með morgunmat handa okkur held ég....verður gaman að sjá stelpuna í smástund og eiga tíma saman :) Liljan mín fríð fer líklegast að koma heim þar sem hún var duglegust og fór í ræktina í morgun á meðan ég svaf á mínu græna. Uni okkar verður hér hjá okkur um helgina þar sem dvölin hans sem átti að vera 4 tímar í Borg óttans ílengdist örlítið eða fram á þriðjudag ! Sem er bara gaman.
Ég er að fara í afmæli í dag til góðs vinar míns hans Tómasar Nökkva. Gleymi aldrei þegar Erna Rán sagði mér í fyrsta skipti að hún væri ólétt ( hún er búin að verða ólétt 3svar sinnum) Hún er ein af mínum fyrstu vinkonum til að eignast barn og mér fannst þetta barasta svo æðislegt að ég vildi helst alltaf vera að hitta hana....í dag er ég að mæta í 4 ára afmæli hjá litla snilling og mér finnst eins og þetta hafi allt gerst í gær :)
En talandi um börn
Elsku Puff, Jódís og Alex Skúli ....
Til hamingju með Magnús Bjart í heiminn og til hamingju með þessa fallegu fjölskyldu sem þið fjögur (og voffarnir auðvita) myndið saman :) hlakka endalaust til að koma og skoða prinsinn sem er svo mannalegur að sjá á öllum myndunum :)
Og Puff mín til hamingju með starfið nýja..þú átt það meira skilið en nokkur manneskja sem ég þekki !!!
Jæja...læt þetta gott heita og minni ykkur á að skoða myndir úr afmælinu hans Alex Una frá því síðustu helgi ;)
Kollsterinn...í góðum gír

22.8.2007
Húsfundur
Þegar ég kom heim í kvöld eftir fínan vinnudag beið mín miði sem ég hafði skellt á ísskápinn til að minna mig á HÚSFUND sem vera átti í kvöld klukkan 20:00. Mér var litið á klukkuna og sá að það var einungis klukkutími í þennan blessaða fund. Verð nú alveg að segja eins og er að mér finnast húsfundir ekkert sérlega skemmtilegir. Fyrir utan það að við Lilja erum nýfluttar hér inn og vissum þarafleiðandi ekkert hvar þessi húsfundur ætti að vera þar sem það stóð ekki á tilkynningunni...svo við ráfuðum um stigagangana þegar klukkan nálgaðist átta og biðum eftir að einhver kæmi úr íbúð sinni til að mæta á fund. Fyrsta konan inn ganginn var með stól undir annarri hendinni og rölti niður að geymsluplássi. Við eltum að sjálfsögðu og kynntum okkur fyrir konunni sem bauð okkur velkomnar á okkar fyrsta fund. Þegar niður að geymslum er komið fer hún að líta mikið í kringum sig og þá aðallega í áttina að geymslunni okkar Lilju....hún talar við sjálfan sig og segir "alveg er ég viss um að hér hafi alltaf verið stólarnir fyrir húsfundina geymdir...." við Lilja litum hver á aðra frekar flóttalega þegar við áttuðum okkur á því að stólarnir sem lágu beint fyrir utan geymsluna okkar og við héldum að hefðu verið settir þar handa okkur væru hér í íbúðinni okkar eftir barnaafmælið sem við héldum síðustu helgi, við vorum ekki lengi að láta okkur hverfa og koma aftur niður skömmustulegar með stóla undir höndum og asnalegt bros á vör sem sagði "við fengum þessa stóla lánaða fyrir afmæli, vissum ekki hver ætti þá!" Sem betur fer var engin annar en þessi kona mætt og við stilltum stólunum "okkar" upp fyrir fundinn og settumst niður eins og ekkert væri eðlilegra. Fundurinn var fámennur en ekki vantaði umræðuefnin....alveg merkilegt hvað fólk getur verið ósammála um ótrúlegustu hluti. Ég hafði ekki sérlega mikla eirð í mér til að sitja þarna svo ég fékk að skreppa út á Nonna báta og kaupa mér að borða á meðan Lilja sat og hlustaði á fólkið masa...ég kom svo aftur eftir matarrúntinn en eftir að sitja þarna í 10 mínútur eða korter þá ákvað ég bara að láta mig hverfa. Notaði óléttu brosið í áttina að fallegu konunni minni og var afsökuð með því sama :) Held að Lilja hafi reyndar lúmskt gaman að fólkinu á fundinum, kjaftakellingunum sem vita nákvæmlega úr hvaða íbúð fiskifýlan kemur sem segja ekkert á fundinum en grípa Lilja til hliðar á leiðinni af fundi og slúðra því í hana hvaðan fýlan komi.....nú svo konan sem neitar að tala við dónalega tryggingamanninn sem kom til hennar í síðustu viku og vill að allt húsið skipti bara um tryggingafélag eins og skot. Svo er auðvita alltaf einhver sem situr og þegir eða horfir á brosandi út í annað eins og við LIlja. Já það er skrautlegt að búa í blokk og alveg stundum soldið gaman barasta. Þakka samt Páliníusi það að hafa ekki þurft að sitja þarna fram eftir kvöldi.
Kollsterinn...farin í háttin eftir annasaman dag

16.8.2007
Skoða nánarFlettingar í dag: 86
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 392
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 348478
Samtals gestir: 105905
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 10:41:34