Kollster
30.7.2007
Greatest dish
Hér sit ég og horfi á þátt um bestu rétti heims...þriðji þátturinn í kvöld af fimm í seríu. Þáttur sem velur bestu rétti heims ...horfði síðast á sjávarréttaþáttinn og núna er fuglakjötsþáttur. Fyndið þar sem mér finnast matreiðsluþættir ekkert sérlega skemmtilegir en var ekki lengi að planta mér í sófann þegar ég sá að þetta var næst á dagskrá.
Elísa skvísa komin heim í kotið eftir ferðalag í sveitina með pabba sínum og Gunnsu. Nú finnst manni vera komin á rútína aftur þegar sætan er komin heim og það er huggulegt, erum búnar að sukka í sjónvarpsglápi mikið mikið á meðan krakkarnir voru í burtu og það var alveg gaman en það er alltaf gott samt að komast aftur í raunveruleikann . En nú hljóp unga stúlkan okkar hingað fram og sýndi mér andlitið á sér mjög mikið málað, sagðist hafa verið að æfa sig að mála sig og hvernig mér fyndist.....úff...erfitt að segja eins og er...mér finnst þetta hrikalegt því mér finnst alltaf hrikalegt að sjá svona unga stúlku málaða í framan, það hryllir mig á einhvern hátt. En það skaðar jú engan á meðan hún er að gera þetta hér heima og er ekkert á leiðinni út svona til fara.
Fór til ma og pa í mat og fengum pizzu sem var ótrúlega fínt bara...alltaf gott að borða heima hjá múttu sama hvort það heimaeldað eða pantað ...bara alltaf gott að hitta fjölskylduna og borða saman :)
Annars gott að frétta...ógleðin er orðin næstum engin nema rétt á morgnanna og ég er þakklát fyrir það ...ótrúleag fegin verð ég að segja..svo líður að því að við fáum að vita hvort þetta er strákur eða stelpa og mikill spenningur á lítilli stúlku hér á heimilinu að fá að vita :)
Kollsterinn...að horfa á matreiðsluþáttinn góða
29.7.2007
Sunnudagur í ......
Vorum ekki lengi úti en það var gaman samt að kíkja aðeins út, mér finnst skemmtilegt að allir hanga aðallega bara fyrir utan staðina út af því að það er sumar og svo auðvita út af reykingarbanni inn á stöðunum, mér finnst nefnilega núna svo vont að hanga inni á stöðunum því mér verður svo fljótt heitt og loftið ógeðslegt og svo framvegis. Hitti fulllt af góðu fólki í gær og ætla að bjóða Unu minni heim í grillmat í kvöld ef hún er ekki að gera eikkva annað...þá verður þetta flottur endir á flottri helgi.
Völdum okkur nýtt sófasett í gær inn í Egg á Smáratorginu og fáum það vonandi sent heim fljótlega eftir helgi . Erum orðnar óðar í að breyta og bæta hér heima hjá okkur.
Ákváðum líka í gær að ef fólk spyr þá langar okkur í innleggsnótu í EGG í brúðkaupsgjöf þegar þar að kemur því við sáum svo margt fallegt þar :)
Já það nálgast brúðkaupið og 20 boðskort tilbúin til að fara út en restin verður kláruð eftir helgi þar sem umslögin sem við vildum voru búin á föstudaginn en koma aftur á morgun eða hinn...:)
Ætlum að taka smá rúnt í dag og keyra út þau boðskort sem við náðum að klára :)
Kollsterinn...ekki sátt við alla
27.7.2007
Garún snillingur
Http://garun.blog.is
Hún skrifar svo skemmtilega og það besta við svo margt af þessu er að hún er ekkert að búa sögurnar um sjálfa sig til, þær hafa allar ef ég skil rétt gerst. Hún er auk þess bara skemmtileg stelpa þar sem ég fékk þann heiður að kynnast henni aðeins og konunni hennar þegar ég vann með þeim í einhverjum verkefnum um árið :)
Endilega skellið ykkur þarna inn og lesið vel tilbaka því þarna má finna marga gullmola sem hægt er að sitja aleinn fyrir framan tölvuna og skellihlægja að :)
En annars er gott að frétta, allt á fullu í brúðkaupsundirbúning. Erna Rán og Ingó eru að hugsa um að bætast í hópinn þegar farið verður til Vegas að endurnýja heitin og ekkert nema gaman að því :)
Ég fór í Saltfélagið með Grímu vinkonu í fyrradag og hún sagði ekki annað en "sjáðu þetta" og "svona langar mig í" , get ekki sagt að ég hafi samsinnt henni í neinu sem hún missti sig yfir því ég er ekki alveg að skilja þetta lista-týpu dót sem kostar miljón skriljón en er svo kanski bara óþægilegur stóll í besta falli eða stofuborð með svo mörgum götum á að fjarstýring myndi detta í gegn. En misjafn er smekkur manna og því labbaði ég búðina í gegn en þó ekki alveg án þess að reka bara nokkrum sinnum á eftir henni þessari elsku því ég hefði ekki nennt að vera alltof lengi þarna inni :)
Endaði nú samt á að kaupa mér ilmsprey með lykt sem ég finn bara í útlöndum, erfitt að útskýra en þessi lykt er oft inn í búðum erlendis ....svo ég keypti mér sprey og þefa af því mjög reglulega og ýminda mér að ég sé erlendis :)
Jæja best að halda áfram að vinna og skella sér svo í mat með Diljá minni á ettir .
Kollsterinn...komin erlendis í huganum
24.7.2007
Til hamingju Lilja
Engin spörk farin að finnast ennþá og margir segja að ég eigi bara að njóta þess að láta ekki sparka í mig í smá tíma því það verður víst nóg um það þegar nær dregur fæðingunni :)
Stundum er samt ekki laust við að manni langi aðeins að láta sparka í sig svo maður viti allavega að engillinn sé þarna í fullu fjöri. Fer í mæðraskoðun 1.ágúst svo það er ekki langt í að maður fái að heyra hjarstláttinn á krílinu. Búin að bjóða múttu með í skoðunina og svo kemur auðvita hin mamman fagra með .
Skrýtið hvað fólk gleymir því mikið að þetta barn sem er að koma í heiminn er líka barnið hennar Lilju, það gleymir ekki endilega með hverjum ég er að eiga þetta barn en það virðast næstum því allir gleyma að óska Lilju til hamingju með óléttunna, fólk er ekkert að spara mér óskirnar og ég veit að engin meinar illa en við getum samt sem áður talið upp skiptin sem fólk tekur utan um Lilju og segir til hamingju með þetta :)
Veit að henni þótti vænt um til dæmis á ættarmótinu þegar Ragna frænka hitti Lilju í fyrsta skipti og óskaði henni til hamingju.
Já þetta er skrýtin heimur og við vitum vel að fólk meinar ekki illa, verður bara öfugt þegar Lilja gengur með næsta barn sem við förum í að eiga :) hihihi þó hún sé nú endilega á því þessi elska að skella sér í þriðju meðgöngu.
Jæja ..best að gera eitthvað af viti ,skella sér í lunch með litlu siss og vinna svo kanski eitthvað líka.
Kollsterinn...að nálgast 17 viku
23.7.2007
Fallegust og ég
Í dag fagna ég því að vera lánsamasta kona sem ég þekki og þó víða væri leitað. Liljan mín er allt sem mig hefur alltaf langað til að hafa í einni konu. Hún er falleg, ótrúlega klár, fyndin með eindæmum, á alskonar fallega litla kæki sem ég elska að þekkja út og inn, hún er góður kokkur, yndisleg móðir, góður elskh...., já hún er allt sem hugsast getur hún konan mín og ég elska hana út yfir endimörk alheimsins.
Já þetta er góður dagur í dag. Ógleði og slíkir smámunir falla auðveldlega í skuggan af ástinni verð ég bara að segja.
Vonandi verðum við saman í mörg mörg mörg 3 ár í viðbót ef þið vitið hvað ég meina..tek bara secret aðferðina á þetta og hugsa með mér " vá hvað ég hlakka til að eyða ævinni með þessari konu"
Kollsterinn..head over heels...in luv

