Kollster

30.6.2007

Æði fyrir jarðaberum

Í dag var fyrsti dagurinn sem ég virkilega naut þess að vera ólétt og spóka mig í sólinni með bumbuna út í loftið þó hún sé ekki orðin stór greyið :)

Fórum í sund með Maggý og Evu Björk og þaðan beint í bæinn. Er búin að kaupa mér óléttuföt sem gera mig mun skemmtilegri í laginu heldur en mín víðu föt sem ég hef verið að nota, allt annað líf að ganga um í fötum þar sem sést að ég er ólétt en ekki bara stór og mikil um mig miðja. Keypti mér meira að segja mjög kvenleg óléttuföt því  boyish lúkkið er ekki málið þegar maður er komin með kríli í kviðin sjáðu til ;) er alveg að njóta þess að ganga um og leyfa bara kúlunni ásamt bumbunni minni að standa beint út í loftið, örugglega sjá fæstir að ég sé ólétt en ég veit það sjálf og það dugir mér alveg :)

Er samt nett svekt núna því ég er búin að vera svo hrikalega góð í allan dag eftir að ég náði að sofa fram yfir hádegi , en svo snöggversnaði mér á leiðinni heim áðan og er ekki alveg búin að ná mér ennþá. Það er grillmatur á leiðinni og ég er bara því miður ekki að sjá mig í anda borða neitt á meðan ógleðin er með völdin í líkamanum mínum. Vona bara að þetta batni með lækkandi sól eins og menn segja :)

Kíkti aðeins á Evuna mína í gærkvöldi og spjallaði smá , gott að fá smá svona one-on-one tíma með sætunni, takk fyrir að leyfa mér að koma í heimsókn í kotið sæta mín og vona að þú sért í seitinni að hafa það kósý í dag ;) Þegar ég kom svo heim tók á móti mér fríður hópur kvenna, Hrönn sæta, Pálí sæta, Hanna sæta og auðvita fallegust konan mín ! Við spiluðum kana og borðuðum ostapopp a la Pálí fram á kvöld :)

Enn skín sól á lofti og grillið komið á fullt ...best að leggjast aðeins í sófagarminn áður en Una mín og co láta sjá sig :)

Kollsterinn...kvenlega ólétt :)

Skrifað 30.6.2007 kl. 19:12 af Kollster

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.6.2007

Bloggedíblogg

Fann aðeins fyrir sparki frá íþróttaálfinum í gærkvöldi, eða ég held allavega að þetta hafi verið einhversskonar hreyfing því þetta var ekkert sem ég hef fundið áður. Það fór ekki mikið fyrir þessu en mér brá nokkuð samt, hlakka til þegar þetta fer að finnast fyrir alvöru. Þetta er annars allt orðið svo raunverulegt eitthvað þessa dagana, fyrir utan ógleðina þá er ég farin að gildna duglega um mig miðja en samt finnst mér engin bumba sjást þannig lagað. Fötin eru aðeins farin að þrengja að og ég er algjörlega búin á því eftir að hafa staðið á fótunum í allan dag og fram á kvöldmat að taka upp bækur. Eins gott að fara ekki oft geist og enda í bólinu með grindargliðnun eða þaðan af verra. Man að Gríma vinkona fékk tilfelli af verk í fæti sem var algjörlega ólæknandi mestan part hennar meðgöngu, ekki beint öfundsvert.

Það er ekki laust við að maður sé farin að fá tilhlökkunarfiðringinn svona þegar ógleðin er ögn að skána og ekki allur dagurinn fer í að reyna að einbeita sér í The Secret aðferðinni við að reyna að losna við ógleði og veikindi í líkama :)

Svo er stutt í smá frí hjá litlu fjölskyldunni, aldrei að vita nema maður bregði undir sig fætinum og leggi út á land ( held þetta hafi verið mjög vitlaust orðað hjá mér) eníveis, Bríet mín er komin til landsins og hún kemur með okkur í sumarbústaðaferð þegar við tökum okkur sumarfrí.
Elísa skvísa byrjar svo á leiklistarnámskeiði næstkomandi mánudag og er að springa á gelgjunni yfir því að það megi ekki mæta í gallabuxum á námskeiðið...alveg steikt eins og hún myndi orða það.

Hafið það annars huggulegt um helgina elskurnar ef ég heyri ekki í ykkur :) knús knús

Kollsterinn...komin í sófa eftir langan vinnudag

Skrifað 28.6.2007 kl. 19:50 af Kollster

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.6.2007

Týnd !

Ég hef áhyggjur af henni Evu minni, við ætluðum að hittast í Lunch í gær og svo heyrði ég ekkert í henni meir eftir að við heyrðumst um tólf leytið. Hún hefur ekki svarað í síma ennþá svo ég vil bara vita að það sé allt í lagi með hana stelpuna mína ! Eva María, ef þú ert að lesa þetta viltu þá allavega senda mér sms og segja mér að allt sé OK svo ég hafi ekki meiri áhyggjur af mér. Leyfi mér ekki einu sinni að hugsa að hún hafi bara ekki nennt að svara mér því það er ekki í boði í stöðunni og ég kaupi þá hugmynd engan vegin :)
Ef einhver veit um ferðir Evu Maríu síðastliðin sólarhring vinsamlegast látið MIG vita hið allra fyrsta :)

Annars sæmilegt að frétta, var að vinna eins og geðsjúklingur í allan dag og gleymdi alveg  að ég væri ólétt, var reyndar ágætt þar sem ég gleymdi allri ógleði og slíkt í leiðinni.
Er að vinna svo aftur langa vakt á morgun og ekki laust við að mig hlakki bara til, er svo mikið að gera á þessum tíma árs og mikið af ólíku fólki að fara inn og út úr búðinni allan daginn, svo fæ ég alveg útrás fyrir laga-til þörfinni án þess að það komi neinn skítur nálægt mér (meika ekki óhreinindi í óléttunni) , er bara að laga til á borðunum öllum og endurraða eins og mér finnst skemmtilegast :)

Annars allt önnur plön en Leifsstöð í bígerð þegar ég kem úr barneignafríinu góða, en kanski of snemmt að tala um það enn sem komið er :)

Kollsterinn...enn að leita að Evu

 

Skrifað 27.6.2007 kl. 19:52 af Kollster

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.6.2007

Myndavélatími

Nú langar mig mikið mikið að fjárfesta í eins og einni myndavél fyrir það sem eftir er af sumrinu og auðvita bara komandi árum. Skrapatólið sem við eigum er alveg að fara að deyja reikna ég með og ef hún ekki deyr þá verður hún allavega með leiðindi þangað til hún gefur upp öndina sem ég reikna með að sé ekki langt undan.
Eru nokkuð myndavélar svo dýrar lengur ? er ekki hægt að fá góða Canon vél fyrir undir 30 þúsund kallinum ? ef einhver er sérlega fróður um myndavélar þá endilega let me know :)

Svo langar mig líka að fara að skoða bílakaup, nú fer að fjölga í fjölskyldunni og komin tími á að láta Fröken Yaris lönd og leið , ágætis bíll en gagnast lítið fyrir fimm manna fjölskyldu í ferðalögum ef taka á með meira en bara auka nærföt í skottið :)

Haddi vinur minn og barnsfaðir Lilju er að skoða bíla á sinni sölu handa okkur og mér líst ótrúlega vel á Lacetti station sem skoða má hér .

Já maður er að eldast og þroskast og verður að vera duglegur að skoða sín fjármál og reikna út hvað er hagstæðast en auðvita líka þægilegast fyrir okkur svo öllum líði vel á heimilinu. Svo þegar vel gengur að vera hagstæð og séð þá má fara að skoða giftingu , sumarfrí og hundakaup ef vel að lætur :)

Annars lítið að frétta, var slæmur dagur í óléttunni í dag eftir ömurlega ferð með morgunmatinn beint til baka ef þið skiljið hvað ég meina..en kvöldið lofar góðu að ég held, búin að ná að laga sjónvarpið okkar, svo er Ingan okkar væntanleg í glápið á eftir ....erum að missa okkur yfir Britains got talent og So you think u can dance þessa dagana.

Kollsterinn...sem bíður enn eftir deginum sem allt er "hætt"

Skrifað 25.6.2007 kl. 20:23 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.6.2007

Morgunfærslan

Sunnudagur og ég komin snemma á fætur, í gærmorgun vaknaði ég um hálf átta og var mætt til vinnu kl 8 í Krókhálsi að hjálpa til við að taka upp Gay Pride tónlistarmyndband :) fullt af góðu fólki lagði okkur lið og kom til að vera með í stuðinu, dagurinn var fljótur að líða og ógleðin lét eiginlega ekkert á sér kræla fyrr en líða fór á kvöldið. Sem er annað en í dag, ástæðan fyrir því að ég er vakandi núna en ekki rotuð upp í rúmi er immit sú að ég rumskaði við það að maginn var ósáttur, fór framúr og fékk mér aðeins að borða og er núna að bíða eftir að maginn taki við sér og slaki á ógleðinni svo ég geti lagst beina leið aftur upp í rúm og hvílt mig aðeins lengur.

Vona svo að sólin láti sjá sig í dag svo hægt sé að fara út með börnin og gera eitthvað skemmtileg, það verða allir svo glaðir í sólinni, sólin virðist geta skipt skapi íslendinga fyrr en nokkuð annað :)

Það er ótrúlega sniðug setning á dagatalinu mínu fyrir daginn í dag og ég er að hugsa um að enda þessa færslu á henni....


You don´t stop laughing because you grow old; you grow old because you stop laughing.
-Michael Pritchard-

Kollsterinn...aftur upp í rúm

Skrifað 24.6.2007 kl. 9:37 af Kollster

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.6.2007

Það er aldeilis

Skoða nánar

20.6.2007

Ó - GLEÐI

Skoða nánar

19.6.2007

Morgundagurinn

Skoða nánar

13.6.2007

Myndir Myndir

Skoða nánar

10.6.2007

Laugardagskveld

Skoða nánar

8.6.2007

Ég fer í fríið

Skoða nánar

1.6.2007

Grátur og hlátur

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 100
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349386
Samtals gestir: 106143
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 12:26:55
eXTReMe Tracker