Kollster

30.4.2007

Ég skil ekki ...

Alveg ótrúlega er mikið gaman að fylgjast með börnunum ganga í gegnum alskyns tímabil í lífinu ...eins og til dæmis hann Alex Uni okkar. Núna er hann á ótrúlega merkilegu tímabili sem ég kýs að kalla " ég skil ekki " tímabilið. Hann segir núna í annarri hverri setningu þessi orð ..ég skil ekki. Þetta er auðvita bara merki um að hann er að uppgötva það að heimurinn inniheldur svo margt sem maður skilur ekki eða hefur aldrei fengið útskýringar á.
Ég ætla að nefna hér eitt eða tvö góða dæmi.

Kolla og Alex liggja inn í hjónaherbergi að kúra og spjalla saman á laugardagseftirmiðdegi þegar Alexi verður litið á mynd af tveimur gíröffum á veggnum. Hann verður mjög hugsi á svip.

Alex ; Kolla , ég skil ekki af hverju það eru til dýragarðar.

Kolla ; jú það er til þess að fólk eins og við getum farið og skoðað dýrin þegar okkur langar til.

Alex ; já en ég skil ekki af hverju fólk tekur dýr og festir þau inn í búri eins og í dýragörðunum. Mér finnst það mjög skrýtið og asnalegt.

Kolla ; já það eru margir sem skilja það ekki af hverju það er verið að taka dýrin frá heimilunum sínum.

Alex ; Kolla , mér finnst þetta eiginlega mjög ljótt. Hugsa sér bara ef að ég væri ( löng huxs pása) .....Hestur og Hugi vinur minn væri til dæmis (hux aftur) Svín ! þá myndum við ekkert fá að hittast í dýragarðinum þó að við værum bestu vinir. 

Litli snillingurinn varð fremur leiður á svipinn og ákvað að vera ekkert að heimsækja dýragarðinn neitt alltof oft en samt alveg stundum.

Annað lítið dæmi....

Kolla, Alex og Lilja eru að keyra heim á leið niður Kringlumýrarbrautina

Alex lítur til hægri og sér stór tré

Alex ; Ég skil ekki af hverju engin vökvar stóru trén sem eru úti en samt þurfum við að vökva blómin okkar inni , ég skil ekki af hverju stóru trén deyja þá ekki.

Kolla ; rigningin sér um að vökva stóru trén ástin mín.

næst verður honum litið til vinstri og sér stórra blokkir

Alex ; Ég skil ekki hvernig afi Villi getur bara byggt heilt hús alveg sjálfur. Ég skil ekki hvernig fólk getur bara búið til heilt hús.

Lilja ; Afi Villi er búin að læra að smíða elskan mín.

síðast lítur snillingurinn beint af augum á bílinn á undan okkur.


Alex ; Ég skil ekki hvernig bílar eru til og komast bara áfram.

Kolla ; já Alex minn , það er ýmislegt sem við skiljum ekki...

Lilja ; og sumt eigum við ekkert að skilja :)

Kollsterinn...með sögur af snillingnum

Skrifað 30.4.2007 kl. 12:19 af Kollster

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.4.2007

Liljan mín heim

Þá er komin langþráður þriðjudagur þar sem konan mín fagra kemur heim í dag. Er nú samt búin að vera í góðra vina hópi þennan tíma sem Fallegust er búin að vera í danmörku að versla föt og skart. Á morgun ætla ég að knúsa konuna mína eftir vinnu og alveg þangað til við förum í háttin svo önnur plön verða ekki gerð fyrir morgundaginn gott fólk !
Stefnumótunarfundur í Hallarmúlanum sem ég mun mæta á á eftir ...vona nú samt að hann verði ekki of langur.
Svo sæki ég Liljuna mína seinna í dag ásamt Elísu skvísu.

Er alveg búin að vera að missa mig í netheimum undanfarna daga því ég fékk boðslykil inn á ótrúlega sniðuga síðu sem ég er ekki alveg að skilja á allan hátt...er að bíða eftir að geta farið að senda boðslykil sjálf líka en það gerist víst ekki strax :)

Í fyrramálið áður en ég bruna í vinnunna þarf ég að hita lækni í örlitla stund að gera eitthvað sem mér finnst ekki gaman og vita þá flestir hvað um er rætt....jebbs...blóðprufa. En þetta fylgir bara lífinu að fara í prufur hingað og þangað af og til. Maður verður bara að bíta á jaxlinn.....eftir svona sprautur verð ég ótrúleag skrýtin og langar bara að vinna eða vera heima með litlu fjölskyldunni minni óáreitt að pússla helst ...

Kollsterinn..sem bloggar aftur síðar

Skrifað 24.4.2007 kl. 9:29 af Kollster

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.4.2007

Ein í kotinu

Já ég hef ekki endilega verið sú duglegasta í bloggheiminum en hér er ég þó :)
Liljan mín fríð fór erlendis í verslunarferð í gærmorgun og hennar er sárt saknað. Sérlega þá á kvöldin því það er ekkert grín að hafa hana ekki mér við hlið þegar ég fer að sofa.
Anna Þrúður fékk að lúlla hér hjá mér í gær og við höfðum það ótrúlega gott..fórum út að borða á Macdonalds og fengum svo Grímu og Kára í heimsókn um kvöldið. Í morgun vöknuðum við svo eldhressar ...skelltum okkur í betri gallann og kíktum í kaffi í Grafarvoginn til Ernu og the three musketeers :)
Mikið fjör á bænum semsagt og planið er að halda áfram að vera mjög upptekin alveg þangað til minn betri helmingur kemur heim næstkomandi þriðjudag.
Já annars gott bara að frétta..Maggý og Una ætla að kikka á mig eftir kvöldmat hjá múttu og sinna mér aðeins :)

Lítið að segja ..er að hugsa um að pússla soldið og jafnvel kanski halla aftur augunum í hálftíma eða svo ...

Failure seldom stops you. What stops you is the fear of failure.
- Jack Lemmon

Kollsterinn..kona einsömul

Skrifað 21.4.2007 kl. 16:04 af Kollster

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.4.2007

Stutt í spunann

Já mér leiðist ekki að segja það hversu mannhugurinn er merkilegur. Hér sit ég með ferðatölvuna í fanginu og er að hugsa um hvað ég ætla að skrifa....ég mundi eitthvað mjög merkilegt og skemmtilegt í bílnum á leiðinni úr fermingunni en einhvernvegin er það allt horfið úr mér og ég enda á að skrifa um að ég hafi ætlað að skrifa um eitthvað meira heldur en að skrifa um að skrifa...ef þið vitið hvað ég meina :)

Fórum senst í fermingu áðan hjá bróður hennar Lilju og þar var alskyns mjög skemmtilegt og girnilegt í boði , Elísabet skvísa ákvað að borða eitthvað hollt áður en hún færi í veisluna svo hún myndi láta minna óhollt ofaní sig þar...sem var mjög svo sniðugt og útpælt hjá henni ...ég dáist að því að ellefu ára stúlka skuli hafa svona mikin viljastyrk að geta neitað sér um kökur og kræsingar og fá sér ekki nema örlítið  á diskinn og drekka líka vatn bara með því. Auðvita er ekki hollt fyrir hana að hugsa of mikið um þyngdina eða hvað er óhollt og hollt en ég er samt alveg á því að það sé fínt upp að einhverju marki að börn geri sér grein fyrir hvað þau eru að láta ofaní sig. Ég er hinsvegar ekki endilega besta fyrirmyndin í þessum málum en sem betur fer er múttan hennar ótrúlega holl í matarmálum....það er alveg líka á planinu hjá mér í nálægustu framtíð en kanski bara ekki alveg í dag eða á morgun samt :)

Naglinnn...gaman að sjá að þú lítur hér við og gaman að geta stytt þér stundir í annars eflaust skemmtilegum próflestri ;)

Vinna á morgun, er nokkuð glöð að vera loksins að fara að vinna aftur , búin að vera í stuttri en yndislegri pásu. En Kolla er soddan vinnualki (einhversstaðar verður maður að vera alki)  að ég er mjög spennt að mæta til vinnu í fyrramálið :)

Kollsterinn...stutt í spuna

Skrifað 15.4.2007 kl. 18:23 af Kollster

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.4.2007

Slökkva á símanum ?

Ég hef verið annsi dugleg að logga mig inn á Mæspeis síðuna mína eftir að mér tókst að búa mér til slíka síðu hér ekki alls ekki fyrir löngu. Fyndið fannst mér að Hanna siss og Urður vinkonu eru báðar búnar að senda mér svona forward comment sem er voðalega krúttleg en mér finnst samt nett fyndið því það er nákvæmlega svona

This is a toast... 2 us... to the guys who have us, to the losers who had us, and to the lucky guys who will meet us!! Send this only to pretty girls including the one who sent it to you. You have been hit... You have been considered one of the prettiest girls on my friends list. Once you have been hit you have to hit 15 pretty girls. So hit 15 pretty girls on your friends list and let them know they are pretty!!!!

Fannst þetta bara soldið eins og þetta ætti að eiga bara við stelpur sem eru straight, kanski má líka túlka guys sem stelpur og auðvita tek ég því sem hrósi að vera talin ein af 15 sætustu stelpunum sem þessar stelpur þekkja :) það finnst mér gaman en samt fannst mér þetta líka fyndið :)

Já gott að frétta, reyni að leggja mig áðan og einhvernvegin þegar maður leggst niður svona um miðjan dag þá allt í einu verður maður hrikalega vinsæll og allir hringja og öllum langar til að tala við mann..alveg merkilegt :)  En þar sem mér finnst gaman að tala og vera vinsæl þá lét ég þetta ekkert trufla mig neitt sérlega mikið og ákvað bara að drífa mig á lappir eftir sjöttu símhringinguna (takið eftir að ég ákvað ekki að slökkva á símanum mínum því ég er týpískur íslendingur sem heldur að hann sé að missa af öllu ef hann slekkur á símtækinu sínu)

Kollsterinn...á laugardegi og það fínum líka

Skrifað 14.4.2007 kl. 19:25 af Kollster

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.4.2007

Prik ?

Skoða nánar

13.4.2007

Byrjun dagsins

Skoða nánar

11.4.2007

Setning dagsins

Skoða nánar

10.4.2007

Einn í einu gott fólk !!!

Skoða nánar

7.4.2007

Will & Grace

Skoða nánar

5.4.2007

Örfréttir

Skoða nánar

1.4.2007

Nóa konfekt

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 261
Gestir í gær: 64
Samtals flettingar: 349404
Samtals gestir: 106150
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:08:36
eXTReMe Tracker