Kollsterinn & Felix Skafti

Er á meðan er ...best að njóta þess !

Nafn:

Kollsterinn

MSN netfang:

capt_kolla@hotmail.com

Afmælisdagur:

17.Janúar

Tenglar

30.01.2012 15:25

Nógagerast

Sælirnú herrar og frúr og þið öll hin líka.

það er orðið svo langt síðan ég var virkur bloggari að ég fipaðist alveg í fingrunum við að byrja þetta blogg. 
Tjellingin hefur nú samt ekkert setið auðum höndum undanfarið og svona til að nefna brotabrot þá er ég búin að ná að fá kærustuna heim á klakann - flytja úr Skipholtinu yfir í minn elskulega Vesturbæ , ná mér í nýtt starf sem yfir Plötustýra á nýjum kynvillingastað svo fátt eitt sé nefnt. 

Jólin gengu líka ótrúlega vel hér á Fiskislóðinni þar sem ég og bækurnar "mínar" höfum það ótrúlega gott saman. 

Um helgina sem leið opnaði semsagt nýr gay skemmtistaður og fékk ég þann heiður að kynna hann fyrir fólki ásamt Óla Hirti skemmtanastjóra og fullt af góðu fólki. Einnig verð ég plötustýra hússins og planið er að allar helgar verði þarna massa fjör og alltaf hægt að koma og dansa af sér skónna.

Einkalífið er svo ekki af verri endanum þar sem ég var að flytja inn með minni ástkæru , bestu og yndislegu ...erum komnar í 101 en það er nú samt hálfpartinn svindl hjá mér því þó póstfangið sé 101 þá erum við bara rétt við hornið á Vesturbænum , þarf ekki nema labba yfir götuna heima og þá er maður komin í 107. 
Búnar að mála íbúðina hátt og lágt, koma okkur vel fyrir og Felixinn er sjúklega glaður með þetta allt saman. Hann elskar að vera með langtum stærsta herbergið á heimilinu og var ekki lítið sáttur þegar hann fékk að vita að bráðum myndi Emil litli flytja inn með okkur. Emil er semsagt kötturinn hennar Áslaugar sem er að fara að búa með okkur litlu fjölskyldunni. Þeir sem mig þekkja vita væntanlega að ég er ekki endilega það sem við skulum kalla katta-aðdáandi númer 1. En það sýnir bara hversu mikið ég elska þessa konu sem ég er að byrja að búa með. Ég hafði ekki hugsað mér að búa með ketti í lífinu en núna finnst mér það bara hugguleg tilhugsun :) 

Læt þetta gott heita í dag og þakka sérstaklega henni Raggý minni fyrir að minna mig a´bloggið mitt ;9 

Kollsterinn...sprækur Vesturbæingur
Flettingar í dag: 118
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 167
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 632558
Samtals gestir: 151660
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:52:10
eXTReMe Tracker