Kollster

17.3.2010

Lára Björg

Skömmustulegt að sjá hversu langt er um liðið síðan ég skrifaði síðast. Ég tók eiginlega ekkert eftir því að ég hafi ekki verið að blogga fyrr en ég smellti mér í stutta stund inn á Miðjuna (ein af mínum uppáhaldssíðum og ekki endilega af því að ég skrifa þar líka ...) Alltaf þegar ég kíki við á Miðjunni þá athuga ég hvort hún Lára Björg sem er klárlega í dag uppáhalds Penninn minn (auk þess sem hún er bara mjög falleg kona) sé búin að skrifa nýjan pistil. 
Ég hef ekki gert mikið af því að lesa pistla fólks á veraldarvefnum en það eru einstaka manneskjur sem ég les alltaf eins og hún Lára. 
Í flestum tilfellum þegar ég heillast af Pennum (semsagt fólkinu sem er að skrifa) þá er það vegna þess að þeir/þau hafa eitthvað sem ég ekki bara heillast af , heldur eitthvað sem ég myndi gjarnan vilja vera svo "blessed" að hafa. Lára er óstjórnlega fyndin og tekur sjálfa sig á engan hátt hátíðlega, hún kann að gera grín að lífinu og hún gerir það á svo óstjórnlega fallegan og einlægan hátt. Hún er kaldhæðin en samt nær hún að sleppa við að gera lítið úr öðrum , jafnvel á meðan hún gerir grín að fólki.
Einu sinni las ég alltaf blogg sem ég held að sé ekki lengur virkt en það var svona svipuð týpa og Lára er...svona einlæg manneskja sem húmor fyrir lífinu og sjálfum sér. 
Stundum veit ég ekkii einu sinni hvort hún sé neitt að gera grín, ég held nefnilega þvert á móti að hún sé bara að segja sögur af sjálfri sér og hún segir þær svo skemmtilega að mig langar alltaf að lesa meira.
Ég legg það ekki í vana minn lengur að skrifa um bækur - leikhús eða jafnvel blogg hér á 123 því ég er jú komin með vettfang fyrir það inn á Miðjunni , en mér fannst bara eitthvað nett kjánalegt að skrifa um Láru á Miðjunni þar sem hún skrifar...soldið eins og ég væri að reyna að láta hana sjá skrifin. 

En já...er það ekki bara almennt þannig að maður heillast af fólki einmitt vegna þess að þeir eða þau hafa eitthvað sem manni myndi sjálfan langa til að hafa. Ég veit allavega að það er tilfellið hjá mér annsi oft...ekki öfund í rauninni heldur bara aðdáun.

Jæja...ætli maður hendi sér ekki í háttin áður en ég fer að reyna að skrifa eins og Lára líka :) 

Kollsterinn....bloggar

Skrifað 17.3.2010 kl. 23:30 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.3.2010

Og heiðurinn fær...

Góðan daginn.
Mig langaði bara rétt aðeins að tala um eitthvað sem ég var að hugsa um þegar ég lagðist á koddann minn í gærkvöldi eða reyndar meira svona í nótt því ég fór óvenjulega seint að sofa.
Ég var að hugsa til þess hvað maður á það mikið til að segja frá hlutum sem manni finnst sniðugir eins og maður hafi svolítið fundið upp á þeim sjálfur. Eða ég allavega er þannig oft á tíðum. Ég les mér mikið til um til dæmis barnauppeldi, las grein um daginn á Miðjunni sem var rosalega sniðug og var til þess gerð að minna mann á mikilvægi þess að hrósa börnunum sínum þegar þau eru stillt og góð . Við erum auðvita alltof gjörn á það að skamma börnin okkar þegar þau eru óþekk en gleymum kanski að minna þau á það reglulega þegar vel gengur. Það sem mér fannst skemmtilegast við greinina var áminningin um að hrósa börnunum sínum í daglega lífinu þegar þau eru jafnvel bara að leika sér með dótið sitt, eða bara að dunda sér við hvað sem er í rauninni. Við hrósum þeim auðvita þegar þau teikna fína mynd eða gera eitthvað sem þau vilja sýna manni en við gleymum eflaust að hrósa þeim algjörlega óumbeðið. Mér fannst þetta hrikalega grípandi grein og ég reyni þegar ég les svona sniðugheit að tileinka mér þetta í uppeldinu á syninum. Oft samt þegar ég segi frá þessu þá segi ég frekar frá því að þessi aðferð sé að virka rosa vel á Felix og "gleymi" að segja að ég hafi lesið þetta í sniðugri grein um daginn inn á Miðjunni. Ég held að nett ómeðvitað gleymi ég inn á milli að segja hvar ég heyri hlutina því mér finnst gaman að heyra fólk segja "já þetta er sniðugt, ég ætla að tileinka mér þetta" eða eitthvða í þá áttina. En gerum við þetta ekki öll samt ...er ekki nokkuð mannlegt að langa til að virðast doldið klár og flinnkur í alskonar hlutum. Já þetta var nú bara svona pæling sem var mjög sniðug að blogga um í hausnum á mér en svo fer hún ekki alveg eins vel í pikkið og punkturinn er einhvernvegin ekki alveg eins skýr og hann var í hausnum á mér í nóttinni :)

Kollsterinn...á góðan föstudag

Skrifað 12.3.2010 kl. 9:10 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.3.2010

Þreytt og sátt

Mikið var þetta dásamlega fögur og góð helgi sem nú er rétt að klárast.
Við Felix prufuðum að skella okkur í Ásvallalaug sem er rétt hjá álverinu eiginlega..og skemmtum okkur svo vel að við fórum þangað bæði á laugardag og sunnudag :) 
Svo fórum við að sjá Skoppu&Skrítlu í Borgarleikhúsinu og minn maður hefur held ég bara aldrei verið eins kyrr heilan klukkutíma án þess hreint að vera sofandi.
Þetta var líka fyrsta leikhúsferðin hjá mínum manni og það var svooooooo þess virði að drífa sig með hann að sjá þetta. 
Mæli algjörlega með Skoppu&Skrítlu fyrir fólk með minnstu börnin því þær eru algjört æði og minn litli mann var að elska þær endalaust mikið. 
Þegar heim var komið var svo horft á dvd diskinn með Skoppu&Skrítlu og hlustað á tónlistina sem við splæstum í inn á tónlist.is :) 
Litli kallinn minn er þó ekki búin að vera hinn heppnasti þessa helgi þrátt fyrir góðar sundferðir , skemmtilegan félagsskap , góðan mat , mikið kúr og flott leikhús. Hann nefnilega var að skottast upp á bakkann í sundlauginni og tókst á augabragði að detta aftur fyrir sig og missa andann í örstutta stund, hausinn skall líka aðeins á bakkanum og minn maður auðvita varð hrikalega hræddur þegar honum tókst ekki að ná andanum alveg strax, mamman litla var með hjartað í buxunum en tók utan um sinn mann og hélt fast og andaði rólega svo hans andardráttur myndi fylgja mínum og hann myndi róast (lærði það í ungbarnasundinu að best er að róa þau niður alveg strax og vera ekkert að dramatísera hlutina meðan þau eru svona hrædd). Ekki nóg með það heldur tókst honum líka að bíta í tunguna á sér af æsingi við að skella í sig örfáum frönskum kartöflum inn á Kentucky . Hann var þó annsi fljótur að jafna sig á því og steinsofnaði með mér þegar við komum heim um hádegisbilið...enda algjörlega búin á því. 
Á morgun byrjar svo mánudaginn og hvað er að gerast á mánudögum þessar vikurnar..jú Dale Carnigie, og ég er næstum glöð að það er mánudagur á morgun því þegar hádegið er runnið upp þá er eingöngu 1 skipti eftir í námskeiðinu og því ber að fagna ;) 
Eftir helgina er ég líka að vonast til að fá góðar fréttir...sem ég læt þó ekkert uppi hér eins og staðan er í dag..en endilega krossið fingur fyrir mig og Felix því þetta skiptir okkur miklu máli (nei ég er ekki ólétt og ekki giska á það takk ;)
Næstu helgi er svo mikið um að vera, stórafmæli Palla, Frumsýningarpartý Elektru, pallaball á Nasa, vonandi dónaklúbbur með inntökuprófi nýsssss meðLIMS og eflaust margt fleira skettilegt. 
jæja...er að hugsa um að setjast upp í sófa og halda mér vakandi yfir Greys svo ég sofni ekki fyrir allar aldir, gæti nefnilega hæglega sofnað bara núna..algjörlega búin á því og sjúklega sátt eftir þessa góðu og fallegu helgi.

Kollsterinn...Skoppuð&Skrítluð

Skrifað 7.3.2010 kl. 20:54 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.3.2010

Áður frekar en eftir

Er að hugsa um að henda inn nokkrum línum áður en ég fer að horfa á Greys Anatomy, öfugt við það semég gerði í gær þegar ég skrifaði hádramatíska bloggfærslu beint eftir að ég horfði á mjög svo brjálæðislega dramatískan lokaþátt í 5.seríu.
Ég er svo hræðilega mikil týpísk týpa..ég elska Greys Anatomy, ég elska So you think you can dance og mér fannnst Macdonalds góðir. Ég nefni Magga dóna sem dæmi um týpíska venjulega manneskju því ég las svo skemmtilega grein eftir uppáhalds pistlahöfundinn minn áðan og mig langar að deila greininni með ykkur ! 


En út í allt annað..ég er með Hönnu systur á msn-inu mínu að spjallast...spjallið byrjaði nú bara á því að okkur langaði báðar í kók...en núna er ég allt í einu farin að fletta upp á almannavarnasíðum Íslands eftir leiðbeingum um hvað gera skuli ef jarðskjálfti verður ...skjótt skipast veður í lofti segi ég nú bara. 
Og þar sem ég er sérlega slök varðandi alla svona hluti og reyni bara að lifa daginn í dag þá var ég enú ekkert að stressa mig á þessu fyrr en litla siss sagði orðrétt " miklar hörmungar í japan, chile og haiti og þau áttu pottþétt ekkert von á því".
En auðvita er aldrei of varlega farið, mamma okkar sagði okkur einhverntímann að maður ætti aldrei að hafa hillur nálægt rúminu sínu eða sinna...sem er ágæt regla og ég hef alltaf fylgt því sem og litla systir mín líka.

Þannig að núna ætla ég að labba smá hring hér í íbúðinni og finna út hvar burðarveggurinn er ...og fara svo að henda mér oní áhyggjur fólksins á Seattle Greys hospital.

Góðar stundir

Kollsterinn...úr einu drama í annað.
 

Skrifað 4.3.2010 kl. 20:46 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.3.2010

Greys Anatomy

Í kvöld horfði ég á lokaþátt í 5.seríu af Greys anatomy. Þetta hljómar eflaust sjúklega kjánalega en þátturinn hafði hrikalega mikil áhrif á mig, jú þetta er amerísk vella og allt það en vá hvað mér líður undarlega. 
Mig langar að skrifa öllum sem ég þekki og elska bréf hér og nú og segjum þeim hvað ég elska þau mikið. Mig langar að hringja í ákveðna manneskju og biðja hana að koma hingað til mín og segja henni hvaða tilfinningar ég ber til hennar. 
Mig langar svo margt og ég finn svo margt í hjarta mínu, svo margt fáránlega fallegt . Þakklæti er ótrúlega öflug tilfinning og hún er sú tilfinning sem ég finn sterkast til þegar ég horfi á fallega fallega dásamlega litla son minn. Þakklæti er sú tilfinning líka sem fær mig til að vilja vera betri manneskja í dag en ég var í gær og betri manneskja á morgun heldur en ég var í dag. 
Ég er að fara á Dale námskeið út af vinnunni og hefur fundist það kjánalegt, það er búið að pirra mig á margan hátt en samt er helllingur í því líka sem ég get tileinkað mér. 
Svo í dag þökk sé Greys anatomy ætla ég að reyna að hætta að pirra mig á Dale trallinu og í hvert skipti sem ég pirrast yfr því þá ætla ég að hugsa frekar um hvað ég er þakklát fyrir ..eins og það til dæmis að ég er mjög þakklát fyrir að það eru eingöngu 2 tímar eftir af námskeiðinu en ekki 4 ;) 
Ég ætla í háttin núna og ég fer í háttin með nokkur tár í augunum, held þau hljóti nú samt að fara að verða uppurin því þau voru ekkert fá sem streymdu niður augnkrókana meðan ég horfði á ameríska sullið...
Ég er kjáni ég veit...en ég er kjáni sem á svo fallegt líf..svo fáránlega fallegt fólk allt í kringum mig og þegar ég segi fallegt þá meina ég ekki bara fallegt eins og súpermódel heldur bara almennt fallegt..fólk með fallega sál og fallega útgeislun..fallegt bros og almennt fallegt fólk bara. 
Ég er þakklát fyrir það. 
Ég ætla að fara inn í herbergi...skella mér á skeljarnar og vona að englarnir kyssi allt mitt fólk á ennið í kvöld frá mér...og komi því inn í hjarta þeirra hversu mikið ég elska það.

p.s. svo les ég þetta á morgun og æli eflaust yfir væminni og ameríska blogginu sem þetta eflaust er.

Kollsterinn...Greysuð (ekki Dale-uð)

Skrifað 3.3.2010 kl. 23:56 af Kollsterinn

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

1.3.2010

Mánudagur

Skoða nánar

28.2.2010

Myndir og annað trall

Skoða nánar

26.2.2010

Facebook eður ei ?

Skoða nánar

23.2.2010

SYTYCD

Skoða nánar

22.2.2010

Til þín elskan

Skoða nánar

22.2.2010

Hjólastrákur

Skoða nánar

21.2.2010

Taka tiiiii !

Skoða nánar

19.2.2010

Kærleiksleynivinur

Skoða nánar

17.2.2010

Ferðalag um Febrúar

Skoða nánar

17.2.2010

Átta ár !

Skoða nánar

13.2.2010

Lillith

Skoða nánar

7.2.2010

Sveitin

Skoða nánar

4.2.2010

Núna

Skoða nánar

31.1.2010

Myndir

Skoða nánar

27.1.2010

Ástríður

Skoða nánar

26.1.2010

Dagur 2

Skoða nánar

25.1.2010

Leynifélagið

Skoða nánar

24.1.2010

Facebook

Skoða nánar

22.1.2010

Tölum saman

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 10
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 58
Samtals flettingar: 349035
Samtals gestir: 106060
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 01:12:43
eXTReMe Tracker