Flokkur: Bækur
27.04.2012 06:52
Feluleikur
22.04.2012 20:51
Konan sem hann elskaði áður
Libby ætlaði ekki að falla fyrir Jack. Hann var langt frá Því að vera hennar týpa með sitt stóra egó og óbilandi sjálfsöryggi. Seinna fara að læðast að henni grunsemdir um að hann geti aldrei elskað nokkra konu eins og Eve, fyrstu ástina hans sem lést með voveiflegum hætti.
Þegar örlögin snúa lífi þeirra á hvolf einsetur Libby sér að komast að öllu sem hún getur um Jack og hina fullkomnu Eve. En með hverjum steini sem hún veltir við, hverju leyndarmáli sem hún afhjúpar, hefur hún ríkari ástæðu til að óttast um eigið líf .
Ég er hrikalega ánægð að Forlagið fór að þýða bækur eftir þessa konu, hún er fínn penni, ég renn alltaf í gegnum bækurnar hennar á góðu tempói og leiðist aldrei. Uppáhaldið mitt er nú samt ennþá fyrsta þýdda bókin sem hún gaf út en hinar í kjölfarið hafa líka verið mjög fínar.
Bókin sem um ræðir hér er fínasta lesning. Ég tel mig nú ekkert brjálæðislega forvitna manneskju en þessi ´bók hélt forvitninni í mér vakandi allan lesturinn og ekki bara að ég vildi alltaf vita meira og halda áfram með söguna heldur á vissum tímapunktu þá langaði mig helst að fletta á aftasta kaflann og sjá hvort ég gæti stytt mér leið, en þar sem ég svindla ekki þá sleppti ég því að sjálfsögðu.
Karakterar eru skemmtilegar og sumir sem ég sá ljóslifandi fyrir mér meðan aðrir voru meira svona hliðar-spors týpur.
Hlakka klárlega til að lesa meira eftir hana Koomson en ég veit ekki alveg hvar ég staðset þessa í röðinni af uppáhalds samt því hún var rosalega löng en samt er sagan svo einföld og hefði að mínu mati alveg í rauninni mátt vera aðeins styttri.
Kollsterinn..Koomson kreisí
Höf : Dorothoy Koomson
Útg : JPV
13.04.2012 18:18
Hungurleikarnir
01.04.2012 09:49
Ljósa
28.03.2012 08:19
Táknmál blómanna
12.03.2012 19:34
Góðir Grannar
Sagan er byggð á sönnum atburðum, en árið 1964 var Kitty Genovese myrt í Queens í Bandaríkjunum: Þrjátíu og átta manns voru vitni að árásinni en enginn aðhafðist neitt. Síðar hafa sálfræðingar rannsakað þetta fyrirbrigði og gefið því heitið "hlutlaus áhorfandi."
GÓÐIR GRANNAR er saga fórnarlambs, árásarmanns - og vitna, sem ekkert aðhafast.
06.03.2012 17:38
Léttir
23.02.2012 12:24
Veiðimennirnir
19.12.2011 20:31
Trúir þú á töfra ?
Sögumaður hér er tólf ára gömul stúlka sem ber nafn Nínu Bjarkar Árnadóttur, uppáhaldsskáldkonu móður sinnar, og hún lýsir lífinu í þorpinu sínu sem umlukið myrkum múr hvílir undir þungri glerhvelfingu.
Í þessum lokaða heimi fer fram tilraun til að skapa fyrirmyndarsamfélag; þar leikur hver og einn sitt hlutverk undir ógnarstjórn þeirra sem valdið hafa.
En Nína litla á sér drauma og vonir, og knúin áfram af ljóðum nöfnu sinnar, einlægri forvitni og fegurðarþrá leitar hún frelsisins sem allir sakna.
Trúir þú á töfra? er saga sem gerist í náinni framtíð og leiðir lesendur inn í völundarhús gerræðis og grimmdar sem enginn skilur - en einnig til þeirrar tæru gleði yfir lífinu sem ilmur fortíðar og angan framtíðar færir.
Þetta verk Vigdísar Grímsdóttur er sannkallaður óður til skáldskaparins en afhjúpar jafnframt varnarleysi manneskjunnar í flókinni lífsbaráttu þar sem töfrarnir einir megna að lýsa henni veginn.
Þetta er einfaldlega mín uppáhaldsbók þessi jólin og ef ég verð heppin og jólasveinninn hefur heyrt bænir mínar þessi jólin þá fæ ég hljóðbókina í jólagjöf, því mig langar svo mikið að hlusta á bókina lesna. Ég er búin að lesa bókina sjálf og þykir vænt um Nínu en mig langar líka að njóta hennar í hlustun ef ég má orða það svo djúpt :)
Þetta er að mínu mati ein af Vigdísar allra allra bestu bókum, ef hún er ekki bara besta bókin hennar , svei mér þá ég held það bara.
Ég er nú talin frekar jarðbundin manneskja allajafna og hef ekki haft mikla trú á því sem ég ekki get séð...en ég get svo sannarlega trúað á þessa bók og töfrana sem henni fylgja.
Svo er forsíðan líka svo dásamlega fögur enda listaverk gert af rithöfundi.
Kollsterinn...Trúir á töfra.
Höf : Vigdísi Gríms
Útg : JPV
29.11.2011 22:02
Játningar mjólkurfernuskálds
Svo er kápan og titillinn líka algjör snilld.
24.11.2011 20:51
Dögun
Loksins eftir langa bið fékk ég í hendurnar fjórðu bókina í Twilight seríunni á hinu ylhýra. Ég fór snemma heim daginn sem ég fékk þessa bók í hendurnar. Knúsaði prinsinn minn og þegar hann var sofnaður klukkan átta þá fór ég í náttfötin sjálf og lagðist með risabókina mína upp í rúm. Síðustu kvöld hef ég farið snemma í háttinn eingöngu til þess að ná að lesa sem lengst áður en svefninn sækir að mér.
Þessi bók er sú fjórða í svokallaðri Twilight seríu og fjallar um vampíruna Edward sem verður ástfangin af Bellu sem vill svo óheppilega til að er ekki vampíra. Inn í þessa ástarsögu flækjast auðvita fleira fólk og á kantinum er alltaf líka varúlfurinn Jacob sem er líka ástfangin af Bellu.
Fyrsta bókin var að mínu mati algjör snilld. Ég hélt ekki endilega að ég myndi nenna að lesa bók um vampírur en hún náði mér strax á fyrstu síðunum og hélt manni spenntum til síðustu blaðsíðu. Bók númer 2 & 3 voru engan vegin nálægt því að vera eins góðar og sú fyrsta en samt las ég þær því ég vildi vita meira um þetta fólk.
Nú var ég að ljúka við bók númer 4 og hún var algjörlega þess virði að fara snemma í rúmið fyrir. Spennan í þessari bók byrjar snemma og helst vel í gegnum söguna þangað til í sirka miðbikið á bókinni, þá allt í einu dettur allt í dúnalogn og á tímabili fór ég að furða mig á því hvers vegna þeir væru að klára söguna og samt væru 2-300 blaðsíður eftir...en svo allt í einu sirka 100 blaðsíðum síðar hefst spennann á nýjan leik og þegar það gerist þá varla lagði ég bókina frá mér.
Þessar bækur flokkast hér heima sem Unglingabækur en ég segi það núna og hef sagt það áður en ég er gersamlega ósammála því að þær séu eingöngu fyrir unglinga. Þetta er eflaust eitthvað sem heillar ungt fólk og sérstaklega eftir að myndirnar komu út (þó mér finnist þær prump við hliðina á bókunum) en ég held að miklu fleiri fullorðin detti inn í þessar sögur heldur en vilji viðurkenna það.
Þegar kemur að þessum bókum þá allavega er ég unglingur alla leið.
Bók 1 & 4 klárlega bestar að mínu mati.
Kollsterinn...Team Jacob ;)
Höf : Stephenie Meyer
Útg : JPV
08.11.2011 17:06
Nokkrar sniðugar...
02.11.2011 21:25
Bónusstelpan
01.11.2011 21:46
Hugsaðu þér tölu
Höf : John Verdon
Útg : Vaka Helgafell
Óþekktur bréfritari gefur til kynna að hann þekki innstu kima sálar þinnar og skorar á þig að hugsa þér tölu. Það hljómar sakleysislega þar til einmitt sú tala sem þú hugsar þér kemur upp úr umslaginu - þá tekur óttinn öll völd.
Dave Gurney er sestur í helgan stein og fluttur upp í sveit eftir frægðarferil hjá morðdeild lögreglunnar í New York. Þegar gamall skólafélagi leitar til hans í örvæntingu sinni vegna nafnlausra bréfa sem honum hafa borist lætur Gurney tilleiðast að kynna sér málið. Hann grunar ekki að fyrr en varir verði hann ekki aðeins á bólakafi í flókinni morðrannsókn heldur fastur í neti manns sem virðist snjallari og illskeyttari en orð fá lýst.
Ég byrjaði að lesa þessa bók á föstudagskvöldið sem leið og kláraði hana á sunnudagskvöldinu. Verð alveg að viðurkenna að ég hefði ekki haft neitt á móti því að fá þessa bók bara beint í kilju þar sem hún er stór og mikil og fór ekki sérlega vel upp í rúm hjá mér. Hún var nógu spennandi til að halda mér við efnið en samt fannst mér hún á köflum alveg hafa mátt vera styttri. Held að þessi bók yrði gott efni í bíómynd og eins og ég sagði þá er þetta klárlega mjög flott kiljubók því rannsóknin í kringum morðmálin virðist ná annsi miklum blaðsíðufjölda og mér fannst vanta aðeins að halda sig við efnið.
Hinsvegar er höfundurinn snjall því þetta pirraði mig mjög lítið á meðan ég las og þó að eftir lesturinn hafi ég haft ýmislegt að segja um hvað hefði mátt fara betur þá samt las alltaf þegar ég mátti vera að.
Þegar ég hugsa út í það þá er reyndar orðið langt síðan ég las krimma og var alltaf að reyna að vera á undan viðkomandi lögreglumanni að komast að því hver morðinginn væri eða hvernig hann færi að því sem hann væri að gera án þess að nást. Í þessari bók er heilinn á manni inn á milli alveg að sjóða upp úr við að reyna að komast að því hvernig hann gerir það sem hann gerir. Erfitt að útskýra án þess að gefa upp of mikið.
Já fínn krimmi en ég hefði viljað fá hann í kilju , en fyrir þá sem eiga svona rúm sem hægt er að ýta á fjarstýringu og hækka bakið þá er þessi flott í rúmið á myrku nóvember kvöldi.
Kollsterinn...í jólabókaflóði
